Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1920, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 01.10.1920, Blaðsíða 4
146______________________LÆKNABLAÐIÐ_____________ sjúklingana, hvort seni þaS nú var basl og féleysi, vonbrigiSi í ástamál- um eða missir sinna nánustu, stóöu aö minsta kosti í einhverju sambandi viS slíka atburSi. Þessi tilcfni sýndust æriS mismunandi, stundum átakan- leg, stundum æriS lítilfjörleg í mínum augum, t. d. aS sæmilega efnaSur maSur taldi sig hafa gefiS meira fyrir jörS en hyggilegt hefSi veriS og gat tæpast um annaö hugsaS, jafnvel ekki sofiö eSa litiö glaöan dag af áhyggjum og leiöa yfir þessu glappaskoti. Eg ráSlagSi honum, aS selja jörSina meö litlum afslætti og þá lagaSist þetta. Einhvern veginn festist smámsaman sú sannfæring i mér, aS þessi vanheilsa kæmi oftast, eöa mjög oft, af nokkurs konar andlegum slysum. ÞaS hafSi e i 11 h v a S k o m i S f y r i r m e n n i n a, einhver armæSa eSa ólán, sem var meira en þeir voru menn fyrir aS þola, hvort sem þáö nú var mikiS eöa lítiö. AuövitaS voru þeir veikari fyrir, ef heilsan var aö ööru leyti tæp, svo grandgæfilega þurfti aS athuga hversu likamleg þrif og heilsa væri. Þessi sannfæring mín um þaö, aö einhver slik orsök lægi alla-jafna til grundvallar, kom mér til þess aS taka upp alveg sérstaka aöferS í viStali mínu viS sjúklinga, sem til mín leituSu. Hún var á þessa leiS : Eg tók vingjarnlega móti sjúklingnum, reyndi til þess aö gera mér ljóst, hvort um verulega líkamlega vanheilsu væri aS ræSa, en fyndist elckert, verulegt i þá átt, gaf eg mér góSan tíma til þess aS spjalla viS hann, eSa öllu heldur fá hann til þess aS segja sem best frá öllum sínum vandkvæS- um og kynlegu sjúkdómseinkennum, ]jó þolinmæSisvant sé þaö. Sérstak- lega reyndi eg til þess aS grafast fyrir, h v e n æ r fyrst hefSi boriS á þessari veilu og hversu öllu lífi sjúklingsins hefSi veriS fariS, hálft eöa heilt ár á undan. Þegar eg þóttist hafa fundiS hvenær þessi veila haföi hafist, breytti eg skyndilega mínu háttalagi. Eg haföi til þessa fariö mér hægt og gætilega aö öllu. Nú sneri eg mér alvarlega aö sjúklingnum og spuröi: ,,Hv a S k o m f y r i r yöur u m þessar m u n d i r ? Svariö var oft og einatt, aö þaS hefSi ekkert sérstakt veriö. Næsta spurn- ingin var þá tafarlaust: „ÞaS hefir eitthvaS h 1 o t i 8 aö koma fyrir yöur! H v a S v a r þ a S ?“ Ef ekkert haföist upp úr sjúkl. reyndi eg til aö spyrja í röö um ýmsa lífsins hagi, efnahag, áhyggjur, ástamál, dauSa náinna, heimilislíf, vinnu- brögS o. fl., yfirleitt alt, sem mér gat til hugar komiS, aS lagst heföi þungt á hann eöa oröiS honum ofraun. ÞaS rak þá oft aS því, aö alt í einu fór sjúkl. aö gráta, eöa hálfrann út í fyrir honum, og upp úr kafinu koln eitt- hvert atvik eSa armæöa, sem haföi veriö undanfari þessara vanheilinda allra. Þegar ísinn var brotinn, var sjaldnast nein tregöa á því aS fá ná- kvæmlega frá öllu sagt. Ef mér nú hafSi tekist aö grafa upp a 11, sem mér virtist aö þessu lúta, fanst mér hálfur sigur unninn. Eg reyndi til aS setja mig í sjúklings- ins spor, og hugsa mér hverir útvegir væru út úr þeim vandræöum, sem fyrir höföu komiö, útlistaöi máliö, gerSi tillögur og ræddi þær viö sjúkl. Því, sem mér virtist álitlegast og sjúklingnum næst skapi, sló eg s i ö- a n f ö s t u, fullvissaöi hann kröftuglega um, aö þetta væri leiSin, eina sjálfsagöa úrræöiö, sem hiklaust myndi reynast vel. Síöan fékk sjúkl. ein- hver lyf eöa læknisráö í ofanálag, sem eg sagSi aö myndu hjálpa til. Eftir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.