Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1920, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 01.10.1920, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 147 alla alvörugefnina og hluttekninguna í raununi sjúklingsins gerði eg mig nú kátan og glaöan, fullvissaöi haiin á ný, að okkur skyldi ekki veröa skotaskuld úr því aö gera gott úr öllu þessu. Ef mögulegft var, sagöi eg sjúkl. aö leita til mín meö %—1 mán. millibilum og láta mig vita hversu alt gengi. — Þegar svo langt var komiö viötalinu, var sjúklingurinn alla- jafna farinn aö hressast við og taka gleöi sína aftur. Eg fann ljóslega, er alt haföi tekist vel, aö skapiö var léttara og vonin vakin um leiöréttingu þessara mála. Sjúkl. þakkaöi mér fyrir góö ráö og tók innilega í hönd rnína. Eg skal aö eins nefna eitt dæmi til skýringar. Kona kemur til mín, sem upprunalega haföi veriö glaðlynd og heilsugóö, hraustlega vaxin og líkleg til þess aö hafa verið hraust. Hún kvartaöi i fyrstu um svefnleysi, en svo bættust við ýmsar aörar algengar umkvartanir, istööuleysi, veila fyrir hjarta & cet. Alt í einu fer hún að gráta og rnissir stjórn á sjálfri gér. Eg tala viö hana á þann hátt sem fyr er sagd, og smámsaman kemur þetta upp úr kafinu: Hún hafði átt hvert barnið á fætur öðru, haföi lítinn svefnfrið á nóttum (börnin), en sífelt arg og slitvinnu allan daginn, mikiö unr aö hugsa og stóru búi aö stýra. Þetta þoldist þó. Svo bættist alt í einu viö deila milli hennar og mannsins um breytingu á högum þeirra og nokkurt ósamlyndi út úr þessu. Þ e 11 a jioldist ekki, í viðbót viö hitt, og þá b'raust þessi veila fram. Ráðlögö tveggja mánaða dvöl á ágætum staö utan heirn- ilisins, hvíld og ríkulegt fæöi. Talað viö mann konunnar og misklíöin milli hjónanna jöfnuö. Eftir þennan tíma gott útlit, gott skap og einkennin horfin. Góð heilsa eftir heimkomuna. Þaö heföi veriö vit í því, að ráöleggja henni köld böö og valeriana! Eg gæti bætt við mörgum öðrum dæmum og sumu kátlegum, en læt þetta nægja,. því aöferöin var ætíð svipuð. Þó oft væri ókleift aö bæta úr raunum manna, sáru basli, missi ástvina, vonbrigöum í ástamálum, þá virtist mér þaö hafa góö áhrif á sjúklingana, aö fá rækilega um þetta tal- að, aö fá lækninn sem vin sinn og trúnaðarmann í vandræöunum. Eflaust nutu sumir góös af þeirri „verbal suggestio“, er eg gaf þeim, sumir fengu betri ráö en þeim haföi hugkvæmst sjálfum. Eg vissi þess dæmi, aö sjúkl. batnaði til fulls eftir eitt rækilegt viötal — án allra lyfja. Oft sárnaöi mér að kunna ekki til dáleiðslu, sem eg hugöi aö kynni vel aö duga sumum sjúkl.ingum. Annars haföi eg mesta trú á h v í 1 d (andlegri og líkarn- legri) og ríkulegu f æ ö i, svo sjúkl. gætu fitnaö. Á bööum eöa köld- um þvotti hafði eg enga trú. Aðrir læknar höfðu stundum ráðlagt slíkt, en að litlu haldi komiö. Útigöngur og erl hélt eg fremur spilla en bæta. Eg skal taka það fram, til þess aö fyrirbyggja misskilning, aö eigi voru þaö ætíö neinir skyndilegir atburöir, er andleg slys fylgdu, sem voru undirrót vanheilsunnar. Eg hitti áþreifanleg dæmi ]iess, að hún gat verið a r f g e n g, eöa að minsta kosti mikil tilhneiging til hennar. Þá höfðu fleiri en einn sjúklingur s m i t a s t af öörum. Slík andleg smitun er eins og allir vita, daglegur viðburður, því bver dregur dám af sínum sessu- naut, þó sjaldnar gerist úr því sjúkdómur. Viö smitunina reyndist mér ágætlega aö stía sjúklingunum sundur og sjá þá jafnframt um, að sjúkling- urinn kæmist á gott heimili. Þurfti þá, aö sjálfsögðu, aö gera húsmóöur- inni þar grein fyrir öllum ástæöum. (Framh.)

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.