Læknablaðið - 01.01.1931, Qupperneq 20
14
LÆKNABLAÐIÐ
Af þessu yfirliti er þa'ð ljóst, að yfirleitt hafa öll bórn smitast, scm lifffu
samvistum við berklaveika heimilismenn.
AÖ þau börn sluppu, sem fæddust eftir aÖ upprunalegi smitberinn er
úr sögunni.
AÖ sumum reynast niörg börn frá berklaheimilum P, stafar senni-
lega af þvi, aÖ talin eru nteÖ yngstu börnin, sem ekki hafa veri'ð samvist-
um viS smitbera.
Hertzberg tókst að finna smitberana á flestöllum heimilum. Hann legg-
ur þetta til:
1) Á öllum börnum, sem koma inn í skólann og öllum í efsta bekk,
skal gera Pirquetspróf.
2) Rannsaka skal öll heimili smituðu barnanna.
3) Árangur rannsóknar skal skrifa í berklabók og rnerkja berklaheim-
ilin á korti yfir héraðið.
4) Gera allar nauðsynlegar ráðstafanir á heimilum og viðvíkjandi þeim
b()rnum, sem helst sýnast í hættu stödd.
Af 40 börnum með + P voru 6 illa útlitandi, 19 miður vel, 15 ágætlega.
Læknafélag Reykjavikur.
(Útdráttur úr fundargerðum).
Aukafundur var haldinn í L. R. mánudag 15. des. '30. Fundarefni:
Fyrirspurn til starfrækslunefndar Landsspítalans viðvíkjandi læknamálum
spítalans.
Forseti (G. E.) hafði fyrir hálfum mánuði farið þess á leit viö formann
Landsspítalanefndarinnar, landlækni, að hann gæfi félaginu upplýsingar um
það viðvíkjandi Landsspítalanum, er L. R. aðallega gjarna vildi vita nokk-
uð um, nfl. læknamálin og t. d. daggjöld, en formaður nefndarinnar kvaðst
ekki geta orðið við þessu. Félagsstjórnin hefir því fengið tilmæli um að
bera upp fyrirspurn til spítalanefndarinnar og stjórnar L. 1. svohljóðandi:
„Sökum þess, að sá orSrómur gengur meðal lækna, að veitingar á öll-
um stöðum við Landsspitalann, sem hvergi hafa verið auglýstar, fari
algerlega í bága við samþyktir L. í. um embættaveitinganefnd og um-
sóknir um embætti, þá viljum vér lieina þeim fyrirspurnum:
a) til Landsspítalanefndarinnar: Hvað er hæft i þessum orðrómi?
b) til stjórnar L. í. og embættanefndar: Hvað hefir stjórn L. í. gert,
til þess að halda samþyktir félagsins i þessu máli, og
Hvernig horfir málið við frá hennar sjónarmiði?"
Próf. G. Thor.: Sendur af nefndinni til þess að svara fyrir hennar
hönd; afsakar, að allir læknarnir úr nefndinni séu ekki mættir, sakir þess
að búið var að ákveða nefndarfund þetta kvöld, en nefndin hefir haldið
fundi sína síðan i haust á mánudögum og miðvikudögum.
Stöðurnar við Landsspítalann hafa ekki verið og verða ekki auglýstar,
a. m. k. ekki fyrst um sinn. — Nefndin hefir viljað auglýsa stöðurnar, en
þvert bann hefir verið lagt við því af ráðherra. Um ástæður fyrir því
getur próf. G. Th. ekki látið neitt ábyggilegt uppi, en býst við að ráð-