Læknablaðið - 01.01.1931, Síða 27
LÆKNABLAÐIÐ
21
gerir normal niÖurstaÖa af efnaskiftarannsókn myxödem mjög ósennilegt.
Vanti indikan í þvag, 48 klst. eftir sjúkdómsbyrjun, þá er diagnosis ilenz
ósennileg, o. s. frv.
Pathologiskar breytingar geta útilokaÖ að um suma sjúkdóma sé að
ræða, eða gert það mjög ósennilegt. T. d. hækkaður blóðþrýstingur gerir
diagnosis nephrosis ósennilega, en bendir aftur á móti á nephritis, ef einn-
ig er um önnur nýrnaeinkenni að ræða, sem geta verið sameiginleg fyrir
nephrosis & nephritis. Tb. i sputum getur ekki stafað frá mesenterial tu-
berkulosis, heldur bendir ótvírætt á phthisis pulm.
Loks kemur fyrir, að niðurstaða sérrannsókna sé þýðingarlaus fyrir diag-
nosis ákveðin sjúkdóms, komi þeim sjúkdómi ekki við, sem rannsóknin
er gerð vegna. T. d. gæti við rtg.mynd af fract. claviculæ komið í ljós
einhverjar breytingar í apex. pulrn., sem í sjálfu sér væru því algerlega
óviðkomandi, hvort sjúklingurinn hefði fract. clavic. eða ekki.
Það má þvi flokka diagnostista þýðingu einkenna eða sérrannsókna á
eftirfarandi hátt:
1) Það, sem í ljós kemur við rannsókn, getur lítilokað, að um þcnnan
eða hinn sjúkdóminn sé að ræða.
2) Það, sem i ljós kemur við rannsókn, getur gert óscnnilegt, að um
þennan eða hinn sjúkdóminn sé að ræða.
3) Það, sem í ljós kemur við rannsóknina, getur verið þýðingarlaust
fyrir diagnosis.
4) Það, sem í ljós kemur við rannsóknina, getur vcrið þannig, að það
ekki tali á móti því að diagosis sé þessi eða hin.
5) Það, sem í ljós kemur við rannsókn, getur vcrið þannig, að það styðji
að um þennan eða hinn sjúkdóminn sé að ræða.
6) Það, sem í ljós kemur við rannsókn, getur verið þannig, að það
geri sennilegt, að um þennan eða hinn sjúkdóminn sé að ræða.
7) Það, sem í ljós kemur við rannsókn, getur vcrið þannig, að það sanni,
að um þennan eða hinn sjúkdóminn sé að ræða.
Það mun vafalaust öllum læknum holt, að gera sér jafnan grein fyrir
því, undir hvern þessara flokka þau sjúkdómseinkenni heyra, er þeir finna.
Og einkurn að hafa það i huga, er þeir láta framkvæma fyrirhafnarmiklar
og kostnaðarsamar sérrannsóknir. H. T.
Oluf Thomscn: Antigens in tlie Light of Recent Rcsearch. Levin
& Munksgaard, Kaupmannahöfn 1931. 187 s.
Höf. er prófessor í alm. pathologi við Kaupmannahafnarháskóla, afkasta-
mikill, varkár og mjög vel ritfær vísindamaður. Bókin gefur yfirlit yfir
rannsóknir viðvíkjandi antigenum frá því um seinustu aldamót og eink-
um seinustu árin, ýms efni með antigen eiginleikum, ýms læknisfræðileg
fyrirbrigði i ljósi nýjustu rannsókna á antigenum, syfilitiskum breyting-
um í blóði, anafylaxi, idiosynkrasi, infektiös og bakteriel allergi, einkum
tuberkulin-ofnæmi. Má af bókinni ljóst verða, að nokkur þekking á þess-
um atriðum hinnar ahnennu sjúkdómsfræði, hefir ekki aðeins þýðingu fyrir
þá lækna, sem einkum fást við iminunologi, heldur einnig þá, sem fyrst
og fremst eru almennir læknar, og síðan alla aðra, er við læknisstarf-
semi fást. H. T.