Læknablaðið - 01.01.1931, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ
25
Diagnosis amoris.
Persneski læknirinn Avicenna (um 1000) komst þannig eftir nafni manna,
sem sjúkl. var ástfanginn af: Hann hélt um æ8 sjúkl. og nefndi síðan
allskonar manna- e'ða kvennanöfn. Þegar rétta nafniö var nefnt, breyttist
æÖarslagiS, varÖ óreglulegt eða slag mistist úr. Á sama hátt mátti finna
héraÖ eSa landshluta, ])ar sem persónan átti heima. „Eg hefi sjálfur reynt
þetta og haft gagn af því“, segir A.
Læknafundur.
„Den XV. nordiske kongress for innvortes medisin" verÖur í Osló 29.
juní—1. júlí 1931. MóttökuhátíÖin þ. 28. júni aÖ kvöldi. Forseti er pró-
fessor dr. med. Olav Hansen.
Fyrirlestrar mega vera alt aÖ 15 mínútur; tilkynnist aÖalritaranum í
siÖasta lagi 1. maí 1931, og afhendist honum þegar í staÖ, eftir a'Ö fyrir-
lesturinn hefir verið haldinn.
Þátttaka tilkynnist aðalritaranum, dr. Carl Miiller, Kr. Augustsgt. 23,
Oslo, fyrir 1. maí 1931.
Frakknesku alþýðutryggingalögin
ákveða, að sjúklingar horgi lækni sínum alla læknishjálp. 15% af henni
eiga þeir að greiða sjálfir, en hitt endurborgar sjúkrasjóÖur. Þessi ákvæði
eiga að hindra, aÖ læknar gefi óhæfilega háa reikninga og að sjúkl. leiti
lækna að ástæðulitlu. — I Þýskalandi eru nú sjúkl. látnir greiða 50 pf.
sjálfir, er þeir leita læknis.
Úr læknaheiminum vestan hafs.
IV. C. Rappleyc hélt nýlega fyrirlestur í American Medical Association
um „Problems of medical education". Fins og kunnugt er, streyma lækn-
arnir vestra úr sveitunum í borgirnar og horfir því sumstaðar til vand-
ræða fyrir strjálhygðari landshlutana, vegna læknaleysis. Fyrirlesarinn taldi
eitt mesta vandamálið vera það, að siá öllum landslýð nokkurn veginn
jafnt fyrir góðri læknishjálp með aðgengilegu verði. Talið er, að Ameríku-
menn greiði að jafnaði 3% af árstekjum sínum til lækninga. Af því fá
læknarnir 25% og jafnmikið fer til sjúkrahúsa, hjúkrunarkvenna og tann-
lækna, ennfremur ganga 25% til lvfja og fer mestur hluti ])ess kostnaðar
í patent-lyf. Meira en þrefalda þessa upphæð greiðir ameríska þjóðin ár-
lega fyrir bíla, tóhak, sætindi, snyrtingarlyf, skrautgripi og skemtanir.
Tóbakið eitt kostar rúmlega tvöfalda þá upphæð*), sem allir læknarnir
vinna sér inn, og sætindin meira en öll sjúkrahúsin. Almenningur kaupir
auðvitað það, sem mest er gvlt fyrir honum, enda gjalda verksmiðju-
eigendur fyrir auglýsingar hér um hil helming á við það, sem öll læknis-
hjálp samanlögð kostar. Ræðumaðurinn kvartaði undan þvi, hve óheppi-
legt það væri, að fólk gengi beint til sérfræðinganna, án þess að spyrja
húslækni sinn fyrst, og gengi svo stundum frá einum sérfræðingi til ann-
ars, sem yrði til þess að læknishjálpin yrði miklu dýrari en hún þyrfti
* Til samanburðar má geta þess, að hér á íslandi kostar tóbakið rúmlega 3Jd sinn-
um þá upphæð sem allir læknar landsins vinna sér inn samtals. Mun þó tóbaks-
nautn miklu meiri og almennari vestra en hér. — N. D.