Læknablaðið - 01.01.1931, Blaðsíða 37
LÆKN ABLAÐIÐ
3i
Maðkar og sár.
í ófriðnum mikla kom þa'ð ekki sjaldan fyrir, aÖ viur eða flugnamaðk-
ar, fundust í sárum. Þótt undarlegt væri, hreinsuðust slik sár fljótt, og
var haldið, að maðkarnir eyddu dauðum vef og jafnvel sýklum. Leiddi
þetta til þess, að læknar hafa með vilja sett víur í óhrein sár (án þess
að láta sjúkl. vita af því), og þótt gefast vel. — Um þetta má segja, að
flest er reynt. (Lancet, Dec. 13. '30).
Ónæmi gegn barnaveiki.
Þó mikið hafi verið látið af anatoxini Ramons, telja sumir „Diptherie-
Schutzsalbe nach Prof. Löwenstein“ (Serum-Laboratorium Ruete-Enoch
Hamburg 39) betra og hættuminna. Húðin er þvegin og hreinsuð með æther.
Síðan er 1 ccm. af smyrslinu núið vandlega með fingurgómi inn í hörundið.
Eftir 1 mánuð er 2 ccm. núið inn á sama hátt, og eftir 3 mán. 3 ccm.
Ónæmi er fengið að mestu eftir 45 d., en mest er það eftir 4—6 mán. —
Aðferðin er einföld og hættulaus og hefir reynst ýmsum vel. Væri sjálfsagt
að reyna hana, ef barnaveiki færi að ganga. En þá þarí að taka þetta ráð
i tíma. — (D. med. W. 8. ág. '30). G. IJ.
F r é 11 i r.
Landlæknir hefir legið rúmfastur síðan um nýársleytið. Jón Hj. Sigurðs-
son, yfirlæknir, gegnir nokkrum af störfum landlæknis fyrir hann.
Héraðslæknisembættið í Rvík. Jón Hj. Sigurðsson, yfirlæknir, hefir
sagt af sér héraðslæknisembættinu í Reykjavík, með þeim fyrirvara, að
hann verði ráðinn yfirlæknir við Landsspítalann. Hefir bæjarlæknirinn,
Magnús Pctursson, verið settur héraðslæknir.
Yfirlæknar Landspítalans buðu læknum í Reykjavik að skoða Land-
spítalann um miðjan janúar. Skömmu seinna var blaðamönnum og ýms-
um öðrum bæjarmönnum boðið að skoða spítalann.
Dr. Skúli V. Guðjónsson, í Kaupmannahöfn, hefir nýlega tekið danskt
embættispróf i læknisfræði. Hann veitir m. a. forstöðu efnarannsóknastofu
Otto Mönsteds smjörlikisgerðarinnar og hefir undanfarið unnið að því
að útbúa smjörlíki þannig, að í því sé jafn mikið A-vitmin og í smjöri.
Hefir verksmiðjan nýlega látið skrásetja vörumerkið „Vitoma“ á sliku
smjörlíki.
Docent N. P. Dungal fór utan um mánaðamótin jan.—febr., og verður
erlendis fram undir haust. Hann er á vegum Rockefeller Foundation í
París, ferðast um Evrópu, til þess að kynnast ýmsum path.-anat. stofnunum.
í fjarveru hans hefir form. L. R. skipað IJannes Guðmundsson til þess að
gegna ritstjórnarstörfum við Læknablaðið.
Halldór Kristjánsson, læknir í Khöfn, varði doktorsrit sitt 5. febr. s.l.
Hlaut hann, að því er blaðafregnir herma, mikið lof fyrir það hjá oppo-
nentunum, sem voru próf. Kjœrgaard og próf. Thomsen, og ex auditorio
próf. Chr. Gram.
Árbók Læknafélags íslands, 1. árg. er komin út, og hefir verið send