Læknablaðið - 01.11.1933, Side 42
i68
LÆKNABLAÐIÐ
yfirbor'Ösþekjan hreinsist, og að eftir 20 minútur finnist ætíð sýklar á yfir-
borðinu. Sorel sleppir allri dauðhreinsun, baðar sjúkl. og strýkur yfir hör-
undið á undan skurði með grisju, vættri í steril sápuvatni, þerrar það síðan
með hreinni grisju. Þetta hefir gefist honum vel í 10 ár. — (J. A. Ass.
12. ágúst ’33).
Blóðflutningur úr líkum.
Serge Judine yfirlæknir í Moskva hefir gert tilraunir með að flytja blóð
úr dauðum dýrum í lifandi, og tekist það vel, jafnvel 8 klst. eftir dauða
dýrsins. Nýlega flutti hann blóð úr manni sem dáinn var fyrir 6 klst. i
sjúkling og gekk ágætlega. Auðvitað voru blóðflokkar ákve'ðnir og W. R.
gerð áður. Nú tekur hann blóð úr nýdánum, setur citrat saman við það,
svo að það ekki storkni, og geymir það síðan í kulda alt að 28 dögum án
þess blóðið spillist. (ibicl.).
Skólaskoðun-berklaveiki.
Eg veit, að stundum hefir fundist smitandi berklaveiki á skólabörnum
við almenna skoðun, og hefi átt tal við stéttarbræður, sem hafa veriö
upp með sér af því að finna slík börn. Eg hefi þá oftar en eitt sinn orðið
þess vísari, að læknirinn hefir algerlega vanrækt að skoða heimilisfólkið.
Ef læknirinn hefir leyst þessa sjálfsögðu skyldu af hendi, þá hefði hann
unnið þarfara verk en með þvi einu að uppgötva sjúkdóminn hjá harninu.
(S. S. Wollf í T. f. n. L, ’33, bls, 1105).
Það er fágætt að finna smitandi berklaveiki hjá skólabörnum, en —
skoðum vér heimilisfólk þeirra og systkini ?
A. Ravina:
L’epidemiologæ de la scarlatime. La Presse Medicale 11. octobre 1933.
Enn þá er margt á huldu um útbreiðsluháttu skarlatssóttarinnar. Oft
er ómögulegt a'ð segja hvaðan hún kemur eða hvert hún fer. Margir lækn-
ar hafa veitt því eftirtekt að barn, sem fengið hafði skarlatssótt fyrir
nokkrum mánuðum án þess að neitt bæri á smitun út frá þvi, þangað
til alt í einu að það sýkist á ný af hálsbólgu eða inflúensu, ])á brá oft
svo við að margir sýktust af scarlatina í næsta umhverfi sjúklingsins.
Eftir þessu ættu þeir, sem fengið hafa scarlatina, að bera stundum i
sér virus svo mánuðum saman latent og avirulent. Virulent verður hann
svo fyrst þegar ný infectio kemur i kokiö. Slikir sjúklingar eru því mestu
hættugripir ef satt reynist. En verða þá ekki scarlatinusóttvarnirnar
lítils virði eins og þær eru framkvæmdar? V. A.
Evipan-svæfingin, >
sem Þjóðverjar láta svo mikiö af, hafa nú Englendingar þrautreynt. Lyf-
ið reyndist líkt og fyr. Eftir inndælingu i æð kom óðara rólegur svefn,
en ])ó kom það fyrir að vöðvar spentust, og andardráttur stöðvaðist
snöggvast. Yfirleitt þóttu vöðvar slakna helst til litið, ef gera skyldi
laparotomi. Svefninn varir ekki öllu lengur en 10—20 mínútur og lyfið
hentar best við smáar aðgerðir. Við þær er það bæði gott og þægilegt.