Læknablaðið - 01.06.1935, Page 10
24
L Æ K NAB LAÐIÐ
lagist, meðan hvergi á landinu er
hægt að fá áhöldin corrigeruð.
Þetta ástand má ekki haldast, ef
fslendingar ætla ekki að verða eft-
irbátar annara þjóða í læknislist,
en spurningin verður þá, hvernig
verður á ódýrastan og þó viðunan-
legan hátt bætt úr þessu ? Það
mun ljóst, að ekki verður sökum
kostnaðar hægt að koma upp full-
komnum spítala í hverju héraði, en
það ætti ekki að verða ofviða að
koma upp fullkomnum spitala í
hverjum landsfjórðungi. Til þess
þyrfti ekki nema tiltölulega litlar
breytingar i 2 fjórðungunum, vest-
lendinga- og norðlendingafjórð-
ungi, enga í sunnlendingafjórð-
ungi, en ;stofnun spitala í aust-
lendingafjórðungi, t. d. á Norð-
firði. Breytingarnar, sem þyrfti að
gera er að skifta spítölunum (Ak-
ureyri, ísafirði, Norðfirði) í 2
deildir,, chiritrgiska og medicinska
deild. Medicinska deildin ætti aðal-
lega að vera sniðin sem diagnosu-
station. Héraðslæknar úr nær-
liggjandi héruðum og praktiser-
andi læknar gætu sent þangað
sjúklinga og fengið þær nauðsyn-
legustu rannsóknir gerðar (bakt-
eriologiskar rannsóknir, Widal,
jafnvel Kahn, hjartabilun, Rönt-
genmyndir, sykur- og þvagrann-
sóknir). Deildin sendi svo hlutað-
eigandi lækni yfirlit yfir rannsókn-
irnar og tillögu um meðferð. Oft
eru medicinskir sjúkdómar þannig,
að alt að einu er hægt að lækna
þá i heimahúsum, ef ekki því verri
skilyrði eru fyrir hendi, og við
kroniska sjúkdóma þykir oft
heppilegra, að sjúkl. sé stundaður
undir þeim skilyrðum, sem þeir
annars eiga við að búa. Enda bein-
ist nú straumurinn í þá átt erlend-
is, að láta meðferðina, að svo
miklu leyti sem hægt er, fara fram
í heimahúsum, en hafa ekki spí-
talaveruna lengri en nauðsynlegt
er til að fá nákvæma rannsókn á
sjúklingnum. Með þessu sparast
dýr spítalavera. án þess að árang-
urinn yrði nokkuð lakari, þar sein
undirstaðan undir viðeigandi með-
ferð er fengin, sem sé: rétt dia-
gnosa.
Við hvern þessara spítala yrðu
2 sérmentaðir læknar, í chirurgi
og medicin, sem skiftu með sér
verkum. Skurðlæknirinn hefði auk
sinnar deildar að nokkru leyti á
hendi Röntgenrannsóknir (t. d. af
öllurn líffærum utan brjóstholsins)
en lyflæknirinn hefði auk sinnar
deildar á hendi kliniskar rann-
sóknar (s. s. bakteriologiskar
rannsóknir, hjartabilun, o. s. frvr.)
og Röntgenmyndatöku af líffærum
brjóstholsins. Til aðstoðar þessum
læknum gæti svo verið, ef ástæða
þætti til 1 aðstoðarlæknir eða
kandidat.
Stofnkostnaður við þessar
breytingar yrði nokkur. í fyrsta
lagi breyting á húsaskipun, sem
yrði lítilfjörleg á ísafirði. Á Ak-
ureyri er nú i ráði að byggja nýjan
spítala og mætti þá haga bygging-
unni með tilliti til þess arna, án
þess að af hlytist nokkur auka-
kostnaður. Á Norðfirði þyrfti nýj-
an spitala og það hvort eð væri.
í öðru lagi þyrfti rannsóknará-
höld fyrir 3—5000 kr. auk Rönt-
gentækja.
Reksturskostnaður j'rði nokkuð
meiri en nú er. Á ísafirði og Ak-
ureyri er yfirlæknir og aðstoðar-
læknir, en í þess stað kæmu 2 yfir-
læknar og auk þess 1 aðstoðar-
læknir á Akureyri. Á Norðfiröi
þyrfti 2 yfirlækna. Auk þess yrði
iaukinn kostnaður til reagensa og
þessháttar, en hann ætti að vinn-
ast upp og meira til í því sem inn
kæmi fyrir rannsóknir.
Kostimir við þetta fyrirkomu-