Kraftur - 01.05.2003, Blaðsíða 15

Kraftur - 01.05.2003, Blaðsíða 15
14 15 Það má til sanns vegar færa að upphæðirnar séu ekki stórar í hvert skipti en þegar einstaklingur þarf að sækja þjónustuna daglega fimm daga vikunar er þetta fljótt að safnast saman. Á þeim rúmu þremur árum sem liðin eru frá því að ég lauk meðferð hefur kostnaðurinn í heilbrigðiskerfinu hækkað gríðarlega þ.e. kostnaður sjúklinga. Þannig þarf ég að greiða rúmar 15.000 kr. fyrir sneiðmyndatökuna í dag sem ég greiddi 1.500 kr. fyrir áður. Og alltaf heyri ég hamrað á því að heilbrigðiskerfið sé rekið með miklum halla og skuldahalinn sem Landsspítalinn dragi á eftir sér lengist með hverju árinu. Í byrjun meðferðar minnar komst ég fljótt að því að ég hafði hreint ekki efni á því að vera veikur. Ég átti að taka flví rólega þar sem ég var í erfiðri meðferð og félagsráðgjafinn sem ég ræddi við vegna fjárhagshugleiðinga minna stakk upp á því að konan mín tæki að sér fleiri aukavaktir til að brúa bilið á þessum erfiða tíma. Ráðgjafinn sagði mér jafnframt að ég væri ekki með réttindi í lífeyrissjóðum sem kæmu að gagni, helsta ráðið væri að taka svokallaða tímabundna örorku og sækja um greiðslur úr veikindasjóði stéttafélags míns sem ég og gerði. Á trúartímabilinu mínu hefði ég haldið að félagsráðgjafinn yrði okkur ráðgefandi um hvernig konan gæti losnað frá vinnu til að auðvelda okkur þetta erfiða tímabil. Ári› 2003 okt. (vonartímabili›) Sem betur fer var ég kominn út í lífið aftur eftir smá raunveruleikaskell. Sem júdómaður hugsa ég flennan skell sem krabbameinið veitti mér sem Yuko (hlutasigur) en það er langur vegur í a› krabbinn nái á mér Ippon (fullnaðarsigri). Spurningin er samt sú hvort ráðamenn og jafnvel þjóðin öll séu enn á trúarstiginu með heilbrigðis- og almannatryggingakerfið og hvort allir eru jafn lánsamir og ég að hafa bara fallið á annað hnéð. Ég vona a› allir verði jafn lánsamir og ég vona a› rá›amenn sjái a› eitthva› raunhæft ver›ur a› gera í flessum málum. Daníel Reynisson forma›ur Krafts A›standendur Krabbameinssjúklinga Opið kvöld fyrir aðstandendur krabbameinssjúklinga verður mánudaginn, 17. nóvember nk. kl. 20.00 í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8, 4.hæð. Fjallað verður um þætti og þarfir aðstandenda krabbameinssjúklinga sem oft verða útundan í veikindaferlinu. Umsjón með fundinum hafa Halla Þorvaldsdóttir sálfræðingur og Nanna K. Sigurðardóttir félagsráðgjafi. KRAFTUR hvetur alla aðstandendur til að mæta á fundinn. fiakkir Krafti hafa borist óvæntir og velþegnir styrkir til starfseminnar og er það í senn óvenjulegt og sérlega hvetjandi fyrir okkur að flessir styrkir eiga það sammerkt að gefendurnir komu til okkar færandi hendi án þess að til þeirra væri sérstaklega leitað. Þessir styrkir hafa ekki aðeins veitt okkur veraldlegan stuðning heldur andlegan og kunnum við eftirtöldum velunnurum okkar ómetanlegar þakkir. Handknattleikssamband Íslands stó›u a› Dans-Krafti Danssmi›jan

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.