Kraftur - 01.05.2011, Blaðsíða 7

Kraftur - 01.05.2011, Blaðsíða 7
KRAFTUR 7 Ég verð að viðurkenna að ég var nokkuð stressuð í upphafi enda mikið búin að breytast bæði líkamlega og hvað varðar sjálfsöryggi mitt eftir að hafa farið í gegnum lyfjameðferðina. Ég er búin að bæta á mig mörgum kílóum og finnst ég ekkert voðalega kvenleg. En ákvað samt sem áður að láta slag standa, enda ekkert nema fagmenn sem komu að þessu verkefni og ekki amalegt að fá stílista til þess að segja manni til og ég gæti án efa lært eitthvað. Jafnvel rekist á kvenleika minn í einhverri búðinni :) Það sem kom mér hvað mest á óvart var hvað þetta var ótrúlega skemmtilegt verkefni og hvað ég get í raun gert sjálf til þess að vera kvenlegri í klæðnaði og hvernig ég get málað mig og „sett“ á mig augabrúnir og laðað fram mína andlitsdrætti. Eins verð ég að taka fram hvað það var ótrúleg upplifun hvað allir voru að nostra við mann og hvað allir voru fúsir til þess að hjálpa og gleðja mig. Ég fékk að „eiga“ daginn. Minn eigin prinsessudag. Haffi var algjörlega meiriháttar og kenndi mér margt og gaf mér fullt af frábærum ábendingum um hvað færi mér vel og hvað ég ætti að forðast þegar kæmi að því að velja mér klæðnað. Svo lagði hann sig ótrúlega mikið fram við að láta mér líða vel og upplifa daginn til hins ítrasta, byggja upp sjálfstraust mitt og laða fram mínar sterku hliðar. Vil ég koma á framfæri kærum þökkum fyrir tækifærið fyrir að fá að vera með í þessu verkefni og fyrir magnaðan dag sem ég á í hjarta mér sem dásamlega minningu og í huga mér lærdómur sem ég get nýtt mér áfram í framtíðinni. BREYTT ÚTLIT Bara glæsileg hún Nilla. Bara flott hjá honum Haffa. Ný sköpuð fyrirsæta. Pínulítið rokk.Brugðið á leik.Náttúrulegfegurð. Bolur, 1.790 kr. Vera Moda Hálsmen, 7.490 kr. Friis & Company Hálsmen, 7.490 kr. Friis & Company Leðurjakki, 54.991 kr. Kello Buxur, 8.995 kr. Evans Skór, 24.995 kr. Kaupfélagið Nilsína: Nilsína:

x

Kraftur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.