Bændablaðið - 03.10.2013, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. október 2013
Dagana 14.–18. ágúst síðastliðinn
var íslenskt áhugafólk um
jarðrækt, sem er í félagsskapnum
Ræktunar félag um nytjaplöntur,
á ferðalagi um norður hluta
Finn lands að kynna sér búskap
þarlendra. Leiðin lá um Austur-
botn, þar sem heimsótt voru kúabú,
svínabú og tvö bú með nautakjöts-
framleiðslu – en öll búin framleiddu
korn, ýmist til eigin nota eða
sölu. Að auki heimsótti hópurinn
tilrauna stöð í jarðrækt, finnsku
bænda samtökin, mjólkursamlag
og sáðvélaframleiðanda. Síðast
var heim sóttur kúmen bóndi,
sem jafnframt er jarðræktar-
ráðunautur.
Hópurinn samanstóð af átján
íslenskum bændum og þar á meðal
voru bændurnir í Keldudal í Skagafirði,
þau Þórarinn Leifsson og Guðrún
Lárusdóttir. „Flogið var til Oulu,
sem er á svipaðri breiddargráðu og
suðurhluti Íslands, en svo var ferðast
með rútu um Austurbotn. Þegar þangað
var komið byrjuðum við á að skoða
héruðin suður af Oulu og allt að Vasa,
en á svæðinu er bæði öflug kornrækt
og búfjárrækt. Við heimsóttum fimm
býli, rannsóknarstöð í jarðyrkju,
sáðvélaframleiðanda, mjólkurstöð og
finnsku bændasamtökin. Meri Ojanen,
ungbændafulltrúi finnsku bænda-
samtakanna, skipulagði ferðina ásamt
Finnboga Magnússyni hjá Jötunn
Vélum. Við nutum svo leiðsagnar Meri
og Niinu Kangas, sem báðar hafa verið
verknemar í Keldudal,“ segir Guðrún,
en frásögn hennar af ferðinni fer hér
á eftir.
Fyrsta stop: Bullstop
„Fyrsta býlið sem við heimsóttum
heitir Bullstop og er rekið af feðgum.
Þar eru 1.400 naut alin til slátrunar
á ári. Innleggið var um 450 tonn á
ári. Kálfarnir koma inn á býlið frá
tveimur uppeldisbúum sex mánaða
gamlir og eru aldir í 12 mánuði. Eftir
þann tíma er meðalfallþunginn um 340
kg. Gripirnir eru fóðraðir á votheyi
úr stæðum sem eru yfirbyggðar,
byggi og bjórhrati, auk steinefna.
Allt gróffóður og bygg var ræktað á
búinu, kornið valsað í flatgryfjur og
sýrt með mjólkursýrugerlum. Fóðrað
er með sjálfkeyrandi og sjálfhlaðandi
heilfóðurvagni.“
Sáð beint án jarðvinnslu
„Næst heimsóttum við sáðvéla-
framleiðandann V&M, sem framleiðir
sáðvélar sem hægt er að sá með beint
– án jarðvinnslu. Þar hlustuðum við á
fyrirlestur um kosti beinnar sáningar
umfram hefðbundinnar jarðvinnslu
og sáningar.
Í kjölfarið heimsóttum við svína-
bú, rekið af feðgum, sem framleiddu
11.500 sláturgripi á ári. Engar gyltur
voru á búinu, en grísirnir keyptir
inn á búið við fráfærur. Á búinu var
ræktað bygg til nota á búinu, á 350
ha, sem sáð var með beinni sáningu.
Bændurnir töldu ótvíræðan hag af
þessari ræktunaraðferð.“
Byggrækt til bjórframleiðslu
„Um kvöldið heimsóttum við svo
Hanhimäki-kúabúið, sem er með
100 mjólkandi kýr. Kýrnar voru í
básafjósi með mjaltabás, gróffóður og
kjarnfóður var gefið með sjálfvirku
fóðurkerfi. Meðalnytin var 9.500
lítrar og á búinu var framleidd um 1
milljón lítra á ári. Allt gróffóður var
verkað í heymetisturni, túnin voru 50
ha og slegin tvisvar sinnum. Bygg
var ræktað á 40 ha, þurrkað í eigin
þurrkstöð og allt selt til bjórframleiðslu.
Bygg til bjórframleiðslu er á hærra
verði en ræktunin er vandasamari og
uppskeran minni því að þess konar
bygg þarf að vera með mjög lágt
próteininnihald. Dóttirin á bænum var
nautgriparæktarráðunautur á svæðinu
og gerði fóður- og sæðingaráætlanir
fyrir 25 bændur og sæddi einnig allar
kýrnar á bænum. Á meðalkúabúi í
Finnlandi eru 30 árskýr.“
Afleysingar á frídögum bænda
greiddar af ríkinu
„Næsta dag byrjuðum við á því að
heimsækja tilraunastöð í jarðrækt,
MTT Agridood Research Finland.
Hjá MTT vinna 750 manns á 15
starfsstöðvum vítt og breitt um
Finnland. Á stöðinni sem við
heimsóttum eru í gangi 70-90
tilraunir á hverjum tíma og sex
fastir starfsmenn. Við hlustuðum á
fyrirlestur um kornrækt, kartöflur og
kúmen meðal annars og skoðuðum
tilraunareiti með kúmen, ertur og
hestabaunir.
Við heimsóttum starfsmenn
finnsku bændasamtakanna í
héraðinu, MTK. Skrifstofa þeirra var
í sama húsi og leiðbeiningaþjónusta
bænda, ásamt fleiri stofnunum. Þar
fræddumst við um MTK og þjónustu
þeirra við bændur. Samtökin eru með
skrifstofur á 14 svæðum auk þess eru
þar sjö skrifstofur vegnar skógræktar
og veita samtökin ýmsa aðstoð, t.d. í
samskiptum bænda við aðrar stofnanir
og félagslega þjónustu. Fannst okkur
áhugavert að hver finnskur bóndi
hefur rétt til 26 frídaga á ári og er
kostnaðurinn við afleysingarnar að
mestu greiddur af finnska ríkinu. Um
kvöldið fórum við í grillveislu og ekta
finnskt sána úti í skógi. Allt endaði
það vel.
Á degi þrjú byrjuðum við á því að
heimsækja bændur með Highlander-
holdagripi. Býlið heitir Lakeuden
Highland. Þar bjuggu hjón sem
framleiddu og seldu beint frá býli.
Gripunum var slátrað þriggja til
þriggja og hálfs árs gömlum. Þá voru
þeir að jafnaði 380-400 kg að þyngd
en þeir þyngstu allt að 500 kg. Öllum
gripunum var slátrað í sláturhúsi
og kjötið unnið í lítilli kjötvinnslu
samkvæmt óskum bændanna. Úr
gripunum voru framleiddir vöðvar,
hakk, pylsur, álegg og niðursuðuvara.
Kornrækt var á 20 ha, til að fá hálm,
en kornið selt. Gripirnir gengu úti
allt árið og einungis var lítið skýli
til að nota við burð. Hjónin áttu tvær
jarðir; uppeldið var á annarri jörðinni
en kýrnar á hinni.
Mjólkurstöðin rekur veitingastað
og sérvöruverslun
Næstu heimsóttum við mjólkur-
stöðina Juustoporrti sem vann úr
30 milljónum lítra mjólkur. Þar
af voru þrjár milljónir lítra af
lífrænni mjólk og geitamjólk ein
milljón lítra. Mjólkurstöðin rekur
veitingastað við þjóðveginn og þar
er einnig verslun fyrir ýmsa sérvöru
mjólkurstöðvarinnar og bænda af
svæðinu. Á staðinn komu ein milljón
manns á ári. Vöruúrvalið sem stöðin
framleiddi var gríðarlegt og unnu 150
ársstarfsmenn í fyrirtækinu. Nánast
einungis var framleidd dýr sérvara.
Við enduðum á því að heimsækja
kornbónda sem jafnframt var
jarðræktarráðunautur hjá ProAgria.
Þar skoðuðum við kúmenrækt og
nýlega þurrkstöð. Kúmenið var
ræktað fyrir sérleyfishafa sem eiga
yrkin og sköffuðu fræið. Finnskt
kúmen er hágæða kúmen og gefur
tvöfalt meiri olíu en kúmen sem
ræktað er sunnar í Evrópu. Hann
ræktaði bygg og vorsáðu hveiti með
góðum árangri.“
Ræktunarfélag um nytjaplöntur kynnti sér búskap í norðurhluta Finnlands:
Getum sótt þangað þekkingu í jarðrækt
Hópurinn samankominn.
Sóla í Seli skoðar kúmen.
Eitt nautahús af mörgum á Bullstop.