Bændablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. október 2013 Kaffihúsið Gísli, Eiríkur, Helgi opnað á Dalvík: Unnið að uppsetningu sýningar um bræðurna þjóðþekktu frá Bakka í Svarfaðardal Gísli, Eiríkur og Helgi, bræðurnir geðþekku sem kenndir eru við Bakka í Svarfaðardal, eru mættir galvaskir til Dalvíkur. Kaffihús sem ber nafn bræðranna var opnað á besta stað í bænum síðla sumars og það er bara byrjunin. Til stendur að vinna í vetur að því að koma upp fyrsta hluta Bakkabræðraseturs í sama húsnæði og er hún þegar hafin. Það eru hjónin Kristín Aðalheiður Símonardóttir og Bjarni Gunnarsson sem reka kaffihúsið Gísli, Eiríkur, Helgi og hyggja á opnun Bakkabræðraseturs. Fyrir reka þau öfluga ferðaþjónustu að Vegamótum á Dalvík og eru með um 70 gistirými. Sá rekstur hefur gengið vel, enda hefur ferðaþjónusta í Dalvíkurbyggð vaxið hröðum skrefum líkt og gildir um marga aðra staði á landinu. „Við höfum verið að velta þessu fyrir okkur lengi, en hugmyndin kviknaði árið 2008 þegar við fórum að huga að því hvað hægt væri að gera til að byggja upp og auka afþreyingu hér á svæðinu. Þá fórum við að skoða hvað það væri sem við ættum hér í Dalvíkurbyggð sem hægt væri að nýta í þessu skyni, til að efla ferðaþjónustuna,“ segir Kristín Aðalheiður, Heiða eins og hún er jafnan kölluð. Hafði augastað á gömlum fjárhúsum Fljótlega skutu Bakkabræður upp kollinum og þau fóru að skoða hvort ekki væri hægt að nýta sér þessar þekktu þjóðsögur af bræðrunum og tengja saman menningu og ferðaþjónustu. „Landsmenn þekkja allir sögurnar af Bakkabræðrum og okkur fannst vera tími til kominn að festa þá betur í sessi hér í héraðinu,“ segir hún, en fyrsta skrefið var að leita að húsnæði undir eins konar sýningu. Heiða hafði lengi haft augastað á gömlum fjárhúsum sem stóðu skammt sunnan við Dalvík og höfðu lengi verið tóm. M.a. hafði hún staðið fyrir undirskriftasöfnun þess efnis að ekki yrði hróflað við húsunum, þau ekki rifin eða fjarlægð. Komu sér fyrir í Siggabúð „Ég fór að vinna á fullu í þessu verkefni, gerði viðskiptaáætlun og fór að huga að endurbyggingu fjárhúsanna með það að markmiði að setja þar upp Bakkabræðrasetur. Fljótt kom í ljós að verkefnið var viðamikið og endurbygging yrði kostnaðarsöm, áætlað var að kostnaður yrði um 30 milljónir króna og þetta var að gerast svona um það bil korteri fyrir kreppu. Það var því ekki um auðugan garð að gresja þegar leita átti eftir fjármagni til uppbyggingarinnar. Við notuðum hins vegar tímann vel og unnum að margvíslegum öðrum störfum, hugmyndavinnu, búningahönnun og búningasaumi svo dæmi séu nefnd,“ segir Heiða, en þau hlutu nokkra styrki til að vinna að verkefninu á þeim tíma. „Það fór svo að fólk nefndi við mig hvort ekki væri betra að færa setrið inn í bæinn og leggja fjárhúsahugmyndina á hilluna og það varð úr að sú hugmynd varð ofan á,“ segir hún. Þau fengu fínasta húsnæði, hús sem nefnist Sigtún og er sambyggt húsæði Leikfélags Dalvíkur, Ungó. Þar rak Sigurður P. Jónsson krambúð á sínum tíma, sem í daglegu tali var nefnd Siggabúð, en Siggi var langömmubróðir Heiðu. Hann hóf verslunarrekstur á Dalvík í kringum árið 1930 og eru innréttingar og ýmis annar búnaður enn til staðar í húsnæðinu og í fullri notkun nú þegar búið er að opna þar kaffihús. Kjallarinn kjörinn til að endurskapa þjóðsögurnar „Málið tók við þessa ákvörðun algjöra U-beygju, við fengum húsnæðið í júní og byrjuðum á endur- bótum og náðum að opna kaffihúsið skömmu fyrir Fiskidagshelgina þegar hér var fólk í þúsundatali. Það var mjög gaman og mikið um að vera,“ segir Heiða. Húsið sem um ræðir, Sigtún, er á þremur hæðum og undir því er kjallari. Kaffistofan er á jarðhæð þess og Setri Bakkabræðra verður komið fyrir á hæðum fyrir ofan og eins í kjallara, sem Heiða segir að henti einkar vel til að endurskapa sögur af bræðrunum. „Við sjáum til dæmis fyrir okkur að hann sé kjörinn til að koma þeim þar fyrir í fótabaðinu fræga og eins sögunni af því þegar þeir báru myrkrið út úr húsi sínum í húfum sínum og sólskinið í bæinn,“ segir hún. Unnið verður af kappi við að setja sýninguna upp á komandi vetri og stefnt að því að fyrsti hluti hennar verði tilbúinn vorið 2014. Samstarf við Leikfélag Dalvíkur Sem fyrr segir er kaffihúsið við hlið húsnæðis Leikfélags Dalvíkur, en félagið fagnar 70 ára afmæli sínu á næsta ári. Samstarf verður á milli aðila, en meðal annars verður veitingasala opin fyrir og eftir sýningar sem og í hléi þegar félagið efnir til sýninga. Jafnan hefur Leikfélag Dalvíkur sýnt tvö verk á ári, eitt að haustinu og er það gjarnan fyrir börn og ungmenni og svo annað eftir áramót. Þann tíma sem félagið nýtir húsið ekki, sem er frá því í apríl eða maí og fram í október, munu þau Heiða og Bjarni hafa húsið til afnota og eru þegar farin að huga að ýmsum uppákomum. „Þetta samstarf styður hvert annað, nýting á húsinu verður betri en áður og þá stendur líka til að fara í nokkuð umfangsmiklar endurbætur á Ungó á næstu þremur árum, sem er mjög ánægjulegt,“ segir Heiða. Spennandi tímar fram undan Kaffihúsið Gísli, Eiríkur, Helgi verður opið daglega í allan vetur frá kl. 11 til 18 en Heiða segir að viðtökur hafi verið góðar og margir sem leið eiga um Dalvík hafi staldrað við, fengið sér kaffisopa og litið á innanstokksmuni. Haustið og komandi vetur lofi góðu, en ýmsar uppákomur eru í farvatninu og þá má búast við að margt verði um manninn í bænum, enda skíðasvæði Dalvíkinga í Böggvisstaða fjalli vinsælt. Hópar af ýmsu tagi eiga þess kost að panta utan hefðbundins afgreiðslutíma og liggja þegar fyrir fjölmargar pantanir frá t.d. starfsmanna félögum. „Það er bara spennandi tími fram undan og hér verður mikið um að vera,“ segir Heiða. Hægt er að hafa samband utan opnunartíma ef hópar hafa áhuga á að koma í heimsókn. /MÞÞ Myndir / MÞÞ -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.