Bændablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 3. október 2013 Bækur Með útgáfuteiti á Árbæjarsafni Útgáfufélagið Uppheimar og Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri héldu í síðustu viku útgáfuteiti í Árbæjarsafni. Tilefnið var útkoma bókarinnar Frá hestum til hestafla eftir Bjarna. Þetta er þriðja bók Bjarna um verkhætti til sveita á tækniöld. Þær fyrri, … og svo kom Ferguson og Alltaf er Farmall fremstur, hafa notið mikillar hylli, enda rekur höfundur sögu íslensks samfélags út frá framvindu í landbúnaði á fróðlegan og bráðskemmtilegan hátt, að ógleymdu frábæru myndefni. Í þessari bók segir Bjarni sögur af vinnuhestum og hestanotkun við bústörf, fyrstu dráttarvélinni sem til Íslands kom, Akranesstraktornum svonefnda, Lanz-þúfnabananum og loks af landbúnaðarjeppunum Willys og Land Rover. Þá rifja átta einstaklingar upp minningar sínar frá þessum breytingatímum. Í tilefni af útkomu þriðju bókarinnar í þessum flokki hafa verið sett í sölu 100 tölusett sett af bókunum árituðum í öskju. Bjarni lék bókstaflega við hvern sinn fingur í útgáfuteitinu. Fyrir utan að lesa upp úr verkinu dró hann fram gítar og söng ljóð eftir Guðmund Inga þar sem hann lýsir heyskap þar sem hestum var beitt fyrir heyvinnslutækin. Og Bjarni spilaði og söng um heyskapartækni liðinna tíma. Bjarni við forláta Willys-jeppa sem einn gestana mætti á í fögnuðinn. Myndir / HKr. Landsmarkaskrá 2013 Landsmarkaskrá 2013, sú fjórða í röðinni, er til sölu á skrifstofu Bændasamtaka Íslands í Bændahöllinni við Hagatorg í Reykjavík (s. 563-0338 eða á jl@bondi.is). Verð kr. 9.500,- kr. m. vsk. Upplag er takmarkað, eingöngu tölusett eintök. Fáein eintök eru eftir af 2004 útgáfunni en hinar tvær eru uppseldar. Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.