Bændablaðið - 03.10.2013, Qupperneq 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. október 2013
Tanksýnin gefa vísbendingar
um fóðrun kúnna
Niðurstöður tanksýnanna gefa
okkur mikilvægar upplýsingar
hvort rétt sé staðið að fóðrun
kúnna. Sérstaklega eru það
niðurstöðurnar um úrefni, fríar
fitusýrur, fitu, prótein, laktósa og
frostmark sem ber að skoða. Hér
eru nokkur dæmi um það hvernig
megi lesa út úr tanksýnunum og
meta ástand fóðrunarinnar. Þó
ber að geta þess að ekki má horfa
blint á eitt tanksýni heldur reyna
að bera saman yfir lengra tímabil,
enda getur eitt tanksýni mistekist,
gefið villandi niðurstöður.
Í töflu 1 eru tekin nokkur dæmi
um tanksýni þar sem eitthvað er að
og með því að meta saman ólíka
mæliþætti má komast til botns í
vandræðunum sem eru á hverjum
bæ fyrir sig. Ráðunautar í fóðrun
geta hjálpað til við slík tilfelli, en
þeir þurfa einnig að fá upplýsingar
um fóðrið og fóðrunaraðferðir,
holdstig kúnna og heilsu. Þá geta
mjaltakerfi einnig verið vanstillt
og valdið skemmdum á mjólkinni
í tanknum.
Mjólkurmagn
Er samræmi milli innvegins
mjólkur magns og þess sem mælist
úr kúnum dags daglega? Er
samræmi milli fóðuráætlunarinnar
sem unnið eftir og þess magns sem
selt er til mjólkurbús, þegar búið er
að draga frá mjólk sem fer í kálfa
og heimilishald? Með því að vikta
fóðurnotkun til eins dags er hægt að
gera sér í hugarlund hversu mikið
kýrnar éta og ættu að framleiða
miðað við gæði fóðursins.
Úrefni gefur vísbendingar um
prótein- og orku í fóðrinu
Þó að úrefnainnihald hafi ekki áhrif
á verð innlagðrar mjólkur gefur það
okkur mikilvægar vísbendingar
um fóðrunina og samræmi orku
og próteins í fóðrinu. Almennt er
talað um að úrefni í mjólk eigi að
liggja á bilinu 3-6 mMól/l. Þá má
reikna með að 100 gramma aukning
á PBV á dag hækki úrefnagildið í
tankmjólkinni um það bil 0,4 mMól/l.
Sé orkuskortur í fóðrinu upp á 7 MJ
um 0,5 mMól/ml. Sé offóðrað á AAT
hækka úrefnin einnig örlítið.
Út frá dæmi 1 í töflu 1 liggur
grunur á að offóðrað sé á próteini,
sérstaklega í ljósi þess að fríar
fitusýrur eru á mjög góðu róli.
Þetta er einfalt að laga með því
að skipta um kjarnfóður og velja
þá kjarnfóðurblöndu með lægra
hrápróteininnihaldi.
Dæmi 2 er andstæða dæmis 1, hér
vantar sennilega hráprótein í fóðrið
og einfaldast er að skipta um kjarn-
fóðurblöndu og velja þá eina sem
inniheldur meira hráprótein. Sumum
bændum finnst kannski óþarfi að vera
að horfa mikið á úrefnainnihaldið þar
sem verðefnainnihaldið er á góðu
róli, sérstaklega þar sem úrefnin
hafa engin áhrif á mjólkurverðið til
bóndans. Hins vegar getur of lágt
eða hátt úrefnainnihald haft áhrif á
frjósemi kúnna. Sé úrefni lágt fyrst
eftir burð er hætt við að kýrnar liggi
niðri og beiði ekki fyrst eftir burð. Sé
úrefni hátt er hins vegar hætt á því að
kýrnar haldi ekki en beiði þó eðlilega
auk þess sem við fáum minni afurðir.
Það er orkufrekt ferli fyrir kúnna að
umbreyta köfnunarefninu í fóðrinu
magnast orkuskortur ef hann er til
fóðrun
Nú þegar sala á mjólkurfitu er
orðin jafn mikil og sala á mjólkur-
próteini þurfa sumir bændur að
auka framleiðslu sína á mjólkurfitu
og hækka fituhlutfall mjólkur
sinnar. Hátt fituhlutfall miðað við
próteinhlutfall gefur hærra hlutfall
af smjöri miðað við framleiðslu á
undanrennudufti. Í dæmi 3 í töflu
1 sést að fituinnihaldið er óeðlilega
lágt þó að próteinhlutfallið sé nokkuð
eðlilegt. Það getur bent til þess að
vambarumhverfið er ekki mjög
hagstætt eða að kýrnar séu með skitu.
Nokkrar fóðrunarástæður geta verið
fyrir því að fituinnihaldið er lágt:
Of lítið gróffóðurát vegna rangrar
fóðrunaraðferðar (s.s. of lítið
gefið eða fóður orðið ólystugt
Léleg gróffóðurgæði eða lítið át
Lágt sykurinnihald í gróffóðrinu
veldur ólystugra gróffóðri og
þar með fær kýrin minna af
byggingarefnum fyrir mjólkurfitu
óþarflega lágt og of smátt saxað
fóður hefur neikvæð áhrif á
vambar umhverfið og dregur úr
jórtrun
Stórir skammtar af kjarnfóðri í
einu valda miklum sýrustigs-
sveiflum í vömb og þar af leiðandi
lélegt vambarumhverfi
Röng kjarnfóðurtegund miðað við
gróffóðurát og –gæði. Sé mikið
kjarnfóður gefið (yfir 12-14 kg/
-
vegis sykurrófuhrat til að veita
vambarörverunum nægilegt tréni
til að vinna úr.
Mikil vanfóðrun á bæði próteini
og orku
Selenskortur
Þá ber að nefna að lágt fituinni-
hald getur verið erfðafræðilegs
eðlis enda lengi verið ræktað fyrir
aukinni nyt og próteinmyndun
hjá kúnum en minni áhersla lögð
á fitumyndun vegna aðstæðna á
markaðnum. Kynbótamat hjarðar-
innar fyrir einstökum eiginleikum
s.s. fituinnihaldi getur gefið vís-
bendingar um þetta.
Lágt próteinhlutfall í mjólk
bendir til orkuskorts
Ef kýrnar fá of litla orku úr fóðrinu
eða ef vambarumhverfið er lélegt
verður framleiðsla própíonsýru
í vömbinni lítil. Þar með verður
upptaka glúkósa í blóðinu lágt,
en glúkósi er eitt mikilvægasta
hráefnið í framleiðslu mjólkur-
próteina í júgranu. Á sumum bæjum
fer saman lágt próteinhlutfall og
lélegar afurðir sem þá kemur af
of litlu próteini í fóðrinu. Dæmi
4 í töflu 1 sýnir tanksýni með lágt
próteinhlutfall og há úrefni. Þó svo
að fríar fitusýrur séu ekki mjög
miklar virðast kýrnar þó fá of litla
orku úr fóðrinu. Það sést best á lágu
fituinnihaldi.
Í dæmi 5 er einnig lágt prótein-
innihald en ekki aðrar vísbendingar
sem gefa til kynna að kýrnar fái
of litla orku. Þetta tanksýni er úr
hjörð þar sem kýrnar bera á afmörk-
uðum tíma og voru því allar komnar
um það bil 1-2 mánuði frá burði.
Á þeim tíma er þurrefnisinnihald
í mjólkinni hvað lægst án þess
að fóðruninni sé beint ábótavant.
Mynd 1 sýnir verðefnahlutfall í
mjólkinni frá burðartíma í október
fram í júní. Þar sést greinilega
hvernig verðefnahlutfallið fer lækk-
andi fyrstu vikurnar eftir burð en
hækkar svo jafnt og þétt út mjalta-
skeiðið.
Háar fríar fitusýrur og hátt
úrefni = orkuskortur
Verði fitukúlurnar í mjólkinni fyrir
hnjaski og springa veldur það háu
hlutfalli af fríum fitusýrum auk
bragðgalla af mjólkinni. Þetta
getur verið bæði vegna fóðrunar
eða vegna galla eða bilunar í
í mjaltakerfið við mjaltir, rangur
halli á mjólkurrörum eða frysting
mjólkur í mjólkurtanknum geta
verið ástæður þess að fríar fitusýrur
mælast háar í tankmjólkinni. Einnig
geta of tíðar mjaltir í mjaltaþjónum
valdið því að fitan í mjólkinni
verður viðkvæm eða óstöðug og
þolir því verr alla meðhöndlun s.s.
dælingu og hræringu í tanknum.
Þá getur orkuskortur í fóðrinu
valdið því að mjólkurfitukúlurnar
verða viðkvæmari en ella. Í
mörgum tilvikum er hægt að
finna ástæður hárra fitusýra með
því að skoða betur hina þættina
sem mældir eru í tanksýnunum.
Í dæmi 6 í töflu 1 eru úrefni og
fríar fitusýrur háar, verðefna- og
laktósahlutfallið lágt en frostmarkið
eðlilegt. Það bendir sterklega til
þess að vandinn sé fóðrunarlegs
eðlis. Lítið gróffóðurát, hvort
sem það kemur af of lítilli gjöf
eða lélegu fóðri sem veldur lítilli
lyst, of lítil kjarnfóðurgjöf eða
sein upptröppun á kjarnfóðri eftir
burð geta valdið orkuskorti. Einnig
geta verið óbeinar orsakir s.s.
lélegt vambarumhverfi sem veldur
hraðara flæði í gegnum kúna (þunnt
Laktósaframleiðsla gefur einnig
mikilvægar upplýsingar
Hvorki úrefnainnihald né laktósa-
hlutfall í mjólkinni hefur áhrif á
skilaverð til bóndans en þau geta
hins vegar veitt mikilvægar upp-
lýsingar um fóðrunina, sérstaklega
þegar horft er á þau saman. Í dæmi
6 kemur fram hátt innihald af fríum
fitusýrum og lágt hlutfall laktósa
sem bendir til þess að kýrnar sjálfar
séu ástæða þess að fríu fitusýrurnar
eru háar, en ekki t.d. mjaltakerfið.
Hins vegar getur það verið vegna
mjaltakerfis eða tæknilegra ann-
marka þegar fríu fitusýrurnar rjúka
upp án þess að laktósahlutfallið
breytist (en algengast er að það sé
Laktósahlutfall gefur bóndanum
mikilvægar upplýsingar þegar
frostmarkið er of hátt, eins og sést
í dæmi 7 í töflu 1. Of hátt frostmark
(þegar frostmarkið fer að nálgast
of mikilli vatnsíblöndun, s.s. þegar
vatni er bætt í endaeininguna eða
mjólkurlögnina eftir mjaltir til að
dæla mjólk fram í tank. Í slíkum
tilfellum ætti verðefnainnihald
ekki að vera hátt. Hins vegar getur
frostmark mjólkurinnar verið
afbrigðilegt vegna sérstakra aðstæðna
við fóðrun. Laktósahlutfall í mjólk
stjórnast af osmótískum þrýstingi
í júgranu, sem aftur stjórnast af
steinefnaframboði kúnna. Í Noregi
tíðkast að gefa kúm „kartöfludrykk“,
þ.e.a.s. hrat og öll þau næringarefni
sem verða eftir þegar kartöfluákavíti
er framleitt. Slíkur „kartöfludrykkur“
inniheldur mikið kalí og lítið kalk
miðað við kjarnfóður. Kýrnar í dæmi
7 höfðu ekki aðgang að saltsteini
og fengu því líka of lítið natríum.
Með því að stilla fóðrunina af fannst
lausn á þessu vandamáli; þ.e.a.s. hið
tæknilega var í lagi.
Lélegt júgurheilbrigði getur
valdið lágu laktósainnihaldi, enda
saltinnihald hærra í mjólk með háa
frumutölu. Þegar frumutalan er há er
rétt að skoða einnig laktósahlutfallið.
Dæmi 8 í töflu 1 bendir til þess
að mjaltatæknin hafi klikkað og að
í mjólkina hafi blandast mikið vatn.
Heldur lágt innihald fitu, próteins og
laktósa, auk þess sem frostmarkið
er hátt, bendir til þess. Í eðlilegri
mjólk, beint úr kúnni, er frostmarkið
-0,527°C en í þessu dæmi er það
-0,509°C, sem bendir til þess að um
4% vatn hafi bæst við í tanknum.
Að lokum
Verðefnainnihald mjólkur getur
skipt miklu máli fyrir rekstrarafgang
á kúabúum og ættu bændur að
kappkosta að auka verðmæti mjólkur
sinnar. Með því að stilla af fóðrun
og fóðrunaraðferðir er hægt að auka
verðmæti hvers mjólkurlítra, bæta
fóðurnýtingu og draga úr kostnaði
sem hlýst af rangri fóðrun, of hárri
útskolun úrefna, lélegri frjósemi og
heilbrigði. Því er mikilvægt að skoða
tanksýni gaumgæfilega og leita ráða
hjá fóðrunarráðgjöfum Ráðgjafar-
miðstöðvar landbúnaðarins.
Þýtt og staðfært úr Buskap 5/2013
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
Ráðunautur í fóðrun
hjá Ráðgjafar miðstöð
landbúnaðarins
jona@rml.is