Bændablaðið - 03.10.2013, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. október 2013
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Krónur og dómar:
Íslenskt sýningasumar 2013
Pétur Halldórsson
Hrossaræktarráðunautur
hjá Ráðgjafar miðstöð
landbúnaðarins
Sýningasumarið 2013 var
stofnað til 18 kynbótasýninga
hrossa vítt og breitt um landið
auk fjórðungsmóta á Austur-
og Vesturlandi. Minnstar voru
fyrri vorsýning á Selfossi, 11
hross, og síðsumarssýning
á Miðfossum, 14 hross.
Stærstar urðu héraðssýning á
Gaddstaðaflötum, 286 hross,
héraðssýning á Vesturlandi,
217 hross, og seinni vorsýning á
Selfossi, 216 hross – sjá Töflu I.
Skráning hrossa á sýningar var
nú með breyttu sniði og fór öll
gegnum nýtt kerfi í W-Feng. Þetta
nýja fyrirkomulag gekk framar
öllum vonum og hefur án vafa
sparað bæði tíma og peninga
í aðdraganda allra sýninga.
Utanumhald og framkvæmd var
nú í fyrsta sinni á hendi nýstofnaðs
fyrirtækis, Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins (RML), í stað
einstakra búnaðarsambanda svo
sem áður var. Gjaldtaka fyrir dóma
var óbreytt frá fyrra ári (2012),
þ.e. kr. 18.500 fyrir fullnaðardóm
en 13.500 fyrir byggingardóm/
reiðdóm. Sýningagjöld á Íslandi
eru skilgreind í Töflu II.
Sýningar erlendis
Nú er það svo að íslensk hross
eru sýnd og dæmd vítt og
breitt um heiminn ár hvert. Í
sýningaskrá W-Fengs er að finna
dómsniðurstöður frá 63 sýningum
í 11 löndum, fyrir árið 2013.
Óformleg könnun á gjaldtöku
fyrir dóma í nokkrum löndum
gefur eftirfarandi niðurstöðu miðað
við gengisskráningu þann 5. sept.
2013: Tafla III
Ljóst er af fjöldatölum
dæmdra hrossa að Ísland dregur
vagninn og skapar langstærstan
hluta þeirra gagna sem liggja
til grundvallar alþjóðlegu
kynbótamati í hrossarækt.
Það er í sjálfu sér gleðilegt og
staðfestir enn sem fyrr þá miklu
ástríðu og metnað sem einkennir
íslenska ræktendur. Talsverður
breytileiki er í sýningagjöldum
milli landa svo sem taflan ber
með sér. Stærstu breyturnar þar
eru að líkindum mismunandi
aðstöðugjöld (vallarleiga), laun og
ferðakostnaður dómara og aðkeypts
starfs-fólks, stærð sýninga og sá
fjöldi hrossa sem kostnaður dreifist
á.
Áfram veginn...
Það er lykilatriði í öllu okkar
sameigin lega starfi að ná sem
flestum gripum til dóms. Sýninga-
gjöld mega aldrei verða flöskuháls
sem takmarkar aðsókn og þátttöku.
Gjöldin eiga að endur spegla
raunkostnað í hvívetna. Kynbóta-
dómar eru þjónustustarf og framboð
sýninga á að lúta eftirspurn í einu
og öllu m.t.t. tímasetninga viðburða
og staðsetningar þeirra, innan
heilbrigðra hagkvæmnimarka.
Fagráð í hrossarækt setur niður
sýningaáætlun fyrir íslenskar
kynbótasýningar og sú áætlun liggur
að jafnaði fyrir snemma á nýju
ári. Í þessu tilliti er eftirtektarvert
hversu smáar fyrstu vorsýningar á
Íslandi hafa verið undangengin ár.
Nýr framkvæmdaraðili (RML) þarf
að greina, þegar öll rekstrargögn
sýninga 2013 liggja fyrir, hvar
skynsamleg neðstu fjöldamörk
liggja til að setja á sýningu. Reynsla
undangenginna ára undirstrikar
að eftirspurn eftir sýningum er
hverfandi lítil fram yfir miðjan
maímánuð en þá vex hún bratt.
Þegar nálgast mánaðamót maí-júní
verður eftirspurninni engan veginn
mætt nema með því skipulagi sem
þróað hefur verið, þ.e. að hafa tvær
dómnefndir að störfum á stærri
sýningum, dæma 70 hross á dag
í stað 35.
Miðsumarssýningar um og eftir
miðjan júlí eru vonandi komnar
til að vera sem einn af mörgum
sýningamöguleikum ræktenda;
hvort heldur sem er á landsmótsári
eins og nú fer í hönd eða „milli-
mótaári“. Hér gildir að eðlilegt er
að bjóða upp á möguleikann og láta
skráningu ráða aðgerðum.
Nýliðið sýningasumar var
opnað fyrir skráningu á velflestar
sýningar strax á vordögum, gegnum
W-Feng. Sami háttur verður hafður
á komandi vori. Skráning í tíma
einfaldar mjög allt skipulag,
mönnun og undirbúning. Það er
ráðandi en vondur plagsiður að skrá
til dóms á síðasta korteri síðasta
skráningardags – eða að treysta á
framlengdan skráningarfrest. Það
græða allir ef þessi vani verður
aflagður.
Það er veisla fram undan á
komandi vori og landsmótssumri.
Stórar vonir og væntingar fylgja
okkur inn í veturinn. Sameiginleg
ástríða fyrir íslenskri hrossarækt er
það afl sem knýr starfið allt.
Pétur Halldórsson
hrossaræktarráðunautur.
RML, Hvolsvelli.
Sími 487-1513 / 862-9322
/ petur@rml.is
Kynbótasýningar 2013
Tafla I Alls hross Fulln./Reiðd. B.dómar
Sauðárkrókur, fyrri. 15 12 3
Selfoss, fyrri. 11 5 6
Víðidalur 37 27 10
Sörlastaðir 67 57 10
Selfoss, seinni. 216 172 44
Gaddstaðaflatir 286 237 49
Akureyri 27 22 5
Hvammstangi 28 26 2
Sauðárkrókur, seinni. 115 103 12
Fljótsdalshérað 20 17 3
Melgerðismelar 66 52 14
Miðfossar 217 180 37
Gaddst.fl., miðsumarss. 191 171 20
Miðfossar, síðsumarss. 14 14 0
Blönduós, síðsumarss. 25 20 5
Gaddst.fl., síðsumarss. 155 128 27
Skagafjörður, síðsumarss. 34 28 6
Dalvík, síðsumarss. 28 28 0
1.552 1.299 253
Sýningagjöld, kynbótasýningar hrossa 2013 Gengisskráning 5. sept. 2013
Fullnaðardómur Byggingardóm. Hæfileikad.
Austurríki, AT IS kr 24.078 11.236
(3 - 28 - 21) EUR 150,0 70,0
USD 198 93
Kanada, CA IS kr 41.270 23.661
(1 - 20 - 4) EUR 257,1 147,4
USD 340 195
Sviss, CH IS kr 32.570 / 26.052 13.034 *Stóðh. / Hryssur-Geld.
(1 - 10 - 6) EUR 202,9 / 162,3 81,2 *Stóðh. / Hryssur-Geld.
USD 268 / 215 107 *Stóðh. / Hryssur-Geld.
Þýskaland, DE IS kr 22.954 13.323 22.954
(12 - 418 - 35) EUR 143 83 143
USD 189 110 189
Danmörk, DK IS kr 44.897 / 40.660 32.762 / 20.033 *Stóðhestar / Hryssur.
(3 - 128 - 47) EUR 279,7 / 253,3 204,1 / 124,8 *Stóðhestar / Hryssur.
USD 370 / 335 270 / 165 *Stóðhestar / Hryssur.
Ísland, IS IS kr 18.500 13.500 13.500
(18 - 1.299 - 253) EUR 115 84 84
USD 152 111 111
Holland, NL IS kr 27.288 / 13.644 13.644 / 6.020 *Stóðh. / Hryssur-Geld.
(1 - 26 - 4) EUR 170,0 / 85,0 85,0 / 37,5 *Stóðh. / Hryssur-Geld.
USD 225 / 112 112 / 50 *Stóðh. / Hryssur-Geld.
Svíþjóð, SE IS kr 44.304 33.228 44.304
(7 - 229 - 43) EUR 276 207 276
USD 364,9 273,7 364,9
Bandaríkin, US IS kr 30.355 - 48.568 12.142 - 30.355 *Á bilinu... háð hrossafjölda.
(1 - 11 - 5) EUR 189 -303 76 - 189 *Á bilinu... háð hrossafjölda.
USD 250-400 100-250 *Á bilinu... háð hrossafjölda.
* Í svigum: Fjöldi sýninga sem lokið er þann 17. sept. 2013 - fjöldi fulln./reiðd. - fjöldi byggingardóma.
Byggt á svörum W-Fengsskrásetjara í Evrópu og Ameríku vor og haust 2013
Nú líður að vetri með válynd veður og rafmagnsleysi
LEDperur ehf. er með til sölu
hleðslu kastara sem hægt er að nota
í 6 klst. á hleðslu. Þá bjóðum við
ORKUbanka sem er lítið tæki sem
notar 4AA rafhlöður til áfyllingar
farsíma 4-5 sinnum.
10W kastari sem gefur frá sér 900lm. og dugar í 6 klst. á hleðslu kr. 14.900.-
20W kastari sem gefur frá sér 1800lm og dugar í 6 klst. á hleðslu kr 33.900.-
30W kastari sem gefur frá sér 3000lm. og dugar í 6 klst á hleðslu kr. 54.600.-
50W kastari sem gefur frá sér 5000lm. og dugar í 5 klst. á hleðslu kr. 63.000.-
Þá er hægt að fá
20W kastarann í
tösku og kostar
það saman kr.
54.500
ORKUbankinn
með 4AA rafhlöðum
kr. 2.500
LEDperur ehf. – Lýsandi sparnaður
UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 445-2600 og 663-8172
asgeir@ledperur.is