Bændablaðið - 17.10.2013, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. október 2013
Sýningin MATUR-INN 2013
var haldin í Íþróttahöllinni á
Akureyri um liðna helgi og tóku
um 30 sýnendur þátt, allt frá
smáframleiðendum upp í stór
fyrirtæki. Sýningin var nú haldin
í sjötta sinn, en hún er haldin á
tveggja ára fresti.
Að sýningunni stendur félagið
Matur úr Eyjafirði en sýnendur eru
bæði af Eyjafjarðarsvæðinu og víðar
af Norður landi, sem og af Austurlandi.
Þungamiðjan í sýningunni er
norð lensk matarmenning og
matreiðsla eins og hún gerist best.
Sýnendahópurinn var fjölbreyttur
en þar mátti finna framleiðslu-
fyrirtæki, veitinga fyrirtæki, bændur,
drykkjarvöru framleiðendur, þjónustu-
fyrirtæki við matvælaiðnað svo
dæmi séu tekin. Þá var á svæðinu
markaðstjald smáframleiðenda þar
sem meðal annars voru í boði glænýjar
og ljúffengar sultur, grænmeti beint
úr garðinum og margt fleira. Sýningin
er sölusýning þannig að margir
sýningargestir gátu þar gert góð kaup.
Fiskisúpa sóknarprestsins
þótti best
Boðið var upp á dagskrá í eldhúsi
sýningarinnar þar sem leikmenn
spreyttu sig í skemmtilegum keppnum.
Klúbbur matreiðslumeistara á
Norðurlandi hafði umsjón með þessari
dagskrá en fyrri sýningardaginn
var keppni í súpugerð og fór
sóknarpresturinn í Akureyrarkirkju,
sr. Svavar Alfreð Jónsson, með sigur
af hólmi í þeirri keppni. Hann útbjó
fiskisúpu með laxi, steinbít og reyktri
ýsu.
Dömuleg hvítsúkkulaðimús
Matreiðslunemar á akureyrskum
veitingahúsum kepptu svo síðari
daginn og var þemað hráefni úr héraði.
Sigurður Már Harðarson á Strikinu
vann þá keppni. Loks var efnt
til keppni meðal kvenna um
dömulegasta desertinn og þótti
eftirréttur Ingibjargar Ringsted
framkvæmdastjóra Lostætis
bestur, en hún gerði hvítsúkkulaðimús
með hindberjabotni.
Söfnuðu tæplega 700 þúsund
Í lok sýningar var uppboð á
gjafakörfum frá sýnendum. Rúsínan
í pylsuendanum var þegar matarboð
fyrir 8 manns var boðið upp, en Klúbbur
matreiðslumeistara á Norðurlandi mun
koma í heimahús og elda 3ja rétta
matarveislu og sjá um allan frágang.
Var sú veisla slegin Darra – Eyjabita á
Grenivík fyrir 210.000 kr. Norðlenska
lagði sömu upphæð til málefnisins,
Krabbameinsfélags Akureyrar og
nágrennis. Samtals safnaðist á milli
6-700 þúsund krónur til félagsins í
uppboðinu. /MÞÞ
Fjölbreytt matarsýning í Íþróttahöllinni á Akureyri
Tungurétt í Svarfaðardal:
Hross vel haldin þótt sumarið hafi verið stutt
„Réttarstörf gengu almennt
mjög vel,“ segir Þorsteinn
Hólm hrossabóndi á Jarðbrú í
Svarfaðardal, en stóðréttir voru
í Tungurétt á dögunum. Miklu
skipti að sögn Þorsteins að veðrið
var mun betra en spár höfðu gert
ráð fyrir. „Spáin hafði verið mjög
leiðinleg alla vikuna á undan en sem
betur fer gekk hún ekki eftir og við
fengum þokkalegasta veður.“
Hrossum hefur fækkað
Þorsteinn segir að um 130 hross hafi
verið í réttinni nú í haust, nokkru
færri en verið hefur undanfarin ár.
Sem dæmi voru þau um 180 talsins
í fyrrahaust. Hann segir að hrossum
hafi fækkað mikið í Svarfaðardal.
Veðurfar á liðnu ári hafi þar haft sitt
að segja, miklir þurrkar sem gerðu að
verkum að heyfengur var víða minni
en í meðalári og snjóþungur vetur sem
settist snemma að.
„Ætli bændur hér hafi ekki sent
um það bil 60 hross á sláturhús í
fyrrahaust og vetur, hross sem enginn
tilgangur var í að halda þegar svona
árar og hey er af skornum skammti,
segir Þorsteinn. „Þetta er afleiðing af
þessu tíðarfari.“
Rekin óvenjuseint á fjall
vegna snjóa
Þorsteinn segir að hross hafi farið
óvenju seint á afrétt í ár, í kringum
verslunarmannahelgi. Vanalega sé
rekið á fjall í kringum 20. júní. Snjór
var víða mikill upp til fjalla langt
fram á sumar og segir Þorsteinn sem
sinnir girðingarvinnu að langt hafi
verið komið fram í júlímánuð þegar
menn voru enn af moka snjó ofan
af girðingum. „Hrossin voru þó vel
haldin og haginn góður,“ segir hann.
/MÞÞHrossum hefur fækkað í Svarfaðardal, en fjörið í réttinni hefur ekkert minnkað. Myndir / Unnur Elva Hallsdóttir
Réttarstörf gengu vel í Tungurétt í Svarfaðardal. Hér er Þröstur Karlsson
að störfum.
Rafn Arnbjörnsson frjótæknir hjá
Búgarði.
Tíkin Sunna á spjalli við eitt
hrossanna.