Bændablaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. október 2013 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Fræðsla um sauðfjárbúskap fyrir sunnlenska og skagfirska sauðfjárbændur Fyrir fáeinum árum settu starfs- menn Búnaðarsambands Austur- lands af stað fundaröð sérsniðna fyrir sauðfjárbændur og gekk hún undir nafninu „Sauðfjárskólinn“. Sambærileg fræðsla var síðan boðin sauðfjár bændum í Strandasýslu, Húnavatns sýslum, Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og stóðu viðkomandi búnaðarsambönd fyrir þessum fundum þar. Þessi Sauðfjárskóli var mjög vel sóttur í þessum héröðum og voru bændur almennt ánægðir með þetta framtak. Fræðsla í fimm sýslum RML ætlar að halda þessu starfi áfram og bjóða næst sauðfjárbændum í fimm sýslum landsins þennan fræðslukost. Þessar sýslur eru Austur-Skaftafellssýsla, Vestur- Skaftafellssýsla, Rangárvallasýsla, Árnessýsla og Skagafjarðarsýsla. Allir sauðfjáreigendur í þessum sýslum sem áttu 50 ær eða fleira á síðasta framleiðsluári hafa þegar fengið bréf um þessa fræðslu. Þeir sauðfjáreigendur sem eiga færra fé á þessum svæðum er að sjálfsögðu velkomið að koma í „Sauðfjárskólann“. „Sauðfjárskólinn“ stendur í u.þ.b. eitt framleiðsluár og verða haldnir sjö fundir á þessum tíma, sem standa alla jafna frá kl 13-17. Fyrsti fundur verður seinnipart nóvember n.k. og sá síðasti um ári síðar. Á þessum fundum verður fjallað um fjölmargar hliðar sauðfjárræktar en meginstefið verður hvernig ná megi sem bestum árangi og afkomu í þessari búgrein. Leiðbeinendur verða fyrst og fremst starfsmenn RML á svið sauðfjárræktar sem eru þau Árni B. Bragason ab@ rml.is, Eyjólfur Ingvi Bjarnason eyjolfur@rml.is, Eyþór Einarsson ee@rml.is, Fanney Ólöf Lárusdóttir fol@rml.is og Lárus G. Birgisson lgb@rml.is en starfsmenn RML á sviði jarðræktar, bútækni og rekstra verða einnig leiðbeinendur á sumum fundum. Jafnframt verður leitast við á fá þátttakendur til að miðla reynslu sinni úr sauðfjárbúskapnum. Dagskrá fundanna Hér á eftir fer örstutt lýsing á áætlaðri dagskrá fundanna með fyrirvara um breytingar. 1. fundur – seinni hluti nóvember 2013. Fóðrun og umönnun áa til frjósemi og afurða. Haustmeðferð og fóðuráætlun. - Farið yfir niðurstöður tilrauna og almennar ráðleggingar. Nokkur a t r i ð i um sauðfjársæðingar, tilgangur og leiðir til að ná góðri fangprósentu. Frágangur á haustbók í fjárvís.is og skipulag á komandi fengitíð. 2. fundur – miður janúar 2014 Fóðrun og markmið með fóðuröflun og haustbeit. Kynning á skýrsluhaldi í sauðfjárrækt og uppbyggingu þess. Fjárvís, uppgjör síðasta árs. Uppgjörsskýrslur, stöðumat og markmiðasetning. Skráning fangs, fósturtalninga o.fl. 3. fundur – miður febrúar 2014 Fóðurkostnaður, fóðuröflun og fóðurgæði, greining á kostnaðarþáttum. Sniðið að sauðfjárbúum. Undirbúningur vorsins, áburðardreifing, sáningar í tún og grænfóður. Skipulagning vor og haustbeitar. Sumarbeitin afréttir/heimalönd – rætt um nokkur umhugsunaratriði 4. fundur – miður mars 2014 Húsvist sauðfjár, vinnuhagræðing á vetri, fóðrunaraðferðir. Byggingarreglugerð, gólfgerðir og einangrunarefni (kostir og gallar), helstu húsgerðir, gjafagrindur, gjafavagnar, brynningar. Vinnuhagræðing við gjafir, umhirðu og meðhöndlun áa á vetri. Fyrirhyggja sauðburðar, flokkun áa, bólusetning og lyfjagjöf. Vinnuskipulag á sauðburði. 5. fundur - snemma í apríl 2014 Sauðburður, fæðingarhjálp, sjúkdómavarnir, undirvenjur, vinnulag, beitarskipulag. Helstu sjúkdómar á sauðburði og meðhöndlun þeirra. Fjárvís. is, burðarskráning og aðrar vorskráningar. Dýralæknir verður væntanlega meðal leiðbeinenda á þessum fundi. 6. fundur – seint í ágúst 2014 Hauststörfin, flokkun lamba og beitarskipulag og vinnulag við fjárrag haustsins. Þuklun ásetningslamba – verkleg kennsla Mat á væntanlegu verðmæti afurða og val á sláturtíma. Fjárvís.is, nýting hans til undirbúnings hauststarfa og líflambavals. 7. fundur – snemma í nóvember 2014 Rýnt í ræktun og rekstur. Helstu áhrifaþættir og helstu leiðir til að bæta afrakstur búsins? Þátttakendur fá leiðbeiningar um hvernig þeir getað skoðað ýmsar tölur framleiðsluársins sem hér er að ljúka og metið árangurinn. Nýverið gáfu Uppheimar, í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands, út veglega 300 bls. kennslubók um sauðfjárrækt. Reiknað er með að þátttakendur í Sauðfjárskólanum eigi þessa bók. Bókin er komin í bókaverslanir en einnig er hægt að kaupa hana hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á 7.000 krónur. Bókin verður boðin til sölu á því verði á fyrsta fundi „Sauðfjárskólans“ á hverjum stað gegn staðgreiðslu. Að lágmarki 15 bú þurfa að skrá þátttöku á hverjum stað Eins og fyrr segir er ráðgert að bjóða „Sauðfjárskólann“ næst á fimm stöðum, þ.e. Smyrlabjörgum í Suðursveit, Kirkjubæjarklaustri, Hvolsvelli, Stóra-Ármóti og Sauðár- króki. Til þess að „Sauðfjárskólinn“ sé settur af stað á hverjum stað þurfa að lágmarki 15 bú að vera skráð til þátttöku. Frá hverju búi geta komið á fundina þeir aðilar sem standa að búrekstrinum þannig að t.d. hjón geta komið bæði eða skipst á að mæta ef það hentar. Í nóvember á næsta ári er ráðgert að bjóða sauðfjárbændum á gamla starfssvæði Búnaðarsamtaka Vesturlands að byrja í Sauðfjárskólanum og hefur hann þá verið í boði í öllum sveitum landsins. Sunnlenskir og skagfirskir sauðfjárbændur sem hafa áhuga á „Sauðfjárskólanum“ þurfa að skrá sig fyrir 25. október nk. Senda skal skráningu í tölvupósti á netfangið rml@rml.is eða hringja í síma 516- 5000. Í skráningunni þarf að koma skýrt fram nafn bæjar og nöfn, kennitölur, símanúmer og netföng þátttakenda frá búinu. Haft verður samband við alla sem skrá sig fyrir 1. nóv. Í sama netfangi eða símanúmeri er einnig hægt að fá nánari upplýsingar um kostnað og fleiri atriði vegna þátttökunnar en þessi atriði koma vel fram í bréfinu sem sauðfjárbændur á þessum svæðum fengu um miðjan september. Nautastöð BÍ að Hesti Nautgripasæðingar 2012 Grein 2 Áfram ætlum við að líta yfir sæð- ingastarfsemina undanfarin ár. Mynd 1 sýnir metinn árangur sæðinga áranna 1997 til 2012. Metinn árangur þýðir að kýrin/ kvígan kom ekki til endursæðingar innan 56 daga frá sæðingu. Þessi samanburður sýnir að metið fang- hlutfall hefur heldur lækkað undan- farin ár og má hluta þess rekja til betri skráningar með tilkomu Huppu. Árið 2011 er ástæðan trúlega sú að þá fóru í umferð ungnaut með mjög lágt fanghlutfall. Erfitt var í venjulegri greiningu að sjá það fyrir og því fór sem fór. Skemmtilegt er að brjóta þetta niður og tafla 1 sýnir árangur sæðinga eftir svæðum. Tekin eru þrjú ár sem eiga að vera fyllilega sambærileg. Þegar litið er yfir tölur hefur árangur á Vesturlandi heldur fallið á meðan hann hefur batnað í Eyjafirði og í Skagafirði og einnig á Suðurlandi. Gaman væri að geta skýrt þennan mun en væntanlega eru þarna margir samliggjandi þættir s.s heygæði, veðurfar, sæðisgæði og mannsins verk. Sveinbjörn Eyjólfsson framkvæmdastjóri Nautastöðvar BÍ að Hesti, Borgarfirði Mynd 1. Árangur sæðinga 1998 til 2012 Samanburður milli áranna 2010, 2011 og 2012 Búnaðar- 2010 2011 2012 samband 1.sæðing Árangur 1.sæðing Árangur 1.sæðing Árangur Kjalnesinga 248 61% 259 64% 234 63% Borgarfjarðar 1.477 69% 1.721 71% 1.507 66 Snæfellinga 583 68% 534 70% 590 69% Dalamanna 306 72% 329 69% 314 67% Vestfjarða 450 76% 501 72% 464 72% Strandamanna 36 89% 42 86% 37 92% V-Hún. 465 75% 442 70% 447 72% A-Hún. 752 75% 798 77% 860 77% Skagafjarðar 1.726 72% 1.855 68% 1.806 71% Eyjafjarðar 4.090 74% 4.094 68% 3.892 72% S-Þing. 1.227 65% 1.212 62% 1.143 62% Austurlands 915 68% 872 68% 892 64% A-Skaft. 379 72% 385 68% 293 71% V-skaft 518 67% 547 68% 601 64% Rangárvalls 2.516 65% 2.785 63% 2.649 65% Árnessýsla 4.540 69% 4.622 66% 4.399 69% Landið 20.228 70% 20.998 67% 20.128 69%

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.