Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.1958, Blaðsíða 18

Læknablaðið - 01.03.1958, Blaðsíða 18
22 LÆKNABLAÐIÐ Næsta sólarhring linignaði hon- um. Axlar- og uppliandleggs- vöðvar lömuðust, síðan brjóst-, hak og kviðarvöðvar og fætur urðu slappir. Þindarhreyfingar voru góðar og kynging sömu- leiðis, lióstinn var það kröftug- ur, að lungun héldust þurr. Blóð- þrýstingur var hækkaður, mest- ur 185/115, púlsliraði mestur 112, öndun hröðust 40/mín. Hann mókti mikið og varð að- eins blár á fingrum. Hann fékk súrefni úr grímu, því honum leið verr í öndunartæki. Barka- skurður var fyrirhugaður, en liætt við það.vegnaþess að hann lagaðist kliniskt. Skynjunin varð ldárari, diastoliskur þrýst- ingur féll niður í 100, púlshraði minnkaði og bláminn hvarf. Um miðnætti þ. 12. nóv. var liann rólegur, hlóðþr. 170/105, púls- inn 98 og öndun 38. Litarháttur var góður. Hann svaf rólega um nóttina, en kl. 7,20 að morgni þess 13. nóv. féll hann skyndi- lega í lost og dó á nokkrum mín- útum. Þessi maður liefir dáið úr losti. Eins og við sáum á síð- ustu töflu, þá var dánartala þeirra sem voru í F flokki 85 %, þrátt fyrir öndunarhjálp með tækjum og barkaskurði. í Cir- culation, desemberhefti frá 1955, var sagt frá sjúklingum sem þessum frá Municipal Ho- spitals í Winnepeg. 1 farsóttum, sem gengu þar á árunum 1952 og ’53, komu alls 1359 sjúkl. á spítalana, 523 höfðu poliomye- litis hulbaris og dóu 82 þeirra. I þessari frásögn er greint nán- ar frá 28 sjúklingum, sem fengu lost, 22 þeirra dóu, en 6 lifðu. Lyfjameðferð, bæði gegn liá- og lágþrýstingi hafði mjög vafa- saman árangur. Allir þessir sjúkl. fengu öndunarhjálp í tækjum og á 11 þeirra var auk þess gerður barkaskurður. Þessi meðferð hafði einnig vafasamt gildi, hvort sem hún var reynd til þess að fyrirbyggja lost, eða eftir að sjúkl. voru komnir í það ástand. Tuttugu sjúklinganna voru rannsakaðir post mortem. í öllum fundust miklar breyt- ingar í taugakerfi, en þó ekki mun meiri en í þeim sjúkl., sem dóu með öðrum hætti. Myocar- ditis fannst í flestum. Tveir sjúklinga minna liöfðu lömun á nervus facialis, sem talin var vera af poliomyelitis uppruna, en auk þeirra kom á spítalann 3. sjúklingurinn með facialislömun, sem við töldum stafa af arachnoiditis, og er liann því eklci talinn með hér. Lömun á n. facialis, án annarra lamana, kemur lielzt fyrir í poliomyelitis farsóttum og er flokkuð sem poliomye- litis, þegar aðrar þekktar or- sakir eru útilokaðar, þ. e. otitis, mastoiditis, sinuitis, tumor cerebri, abscessus, men- ingitis, encephalitis, allergi og rheumatismus. Sj úklingarnir hafa venjulegast lágan hita, eru lítið linakkastífir, hafa oftast

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.