Læknablaðið - 01.12.1959, Side 10
128
LÆKNABLAÐH)
isenibættið i Reykjavík. Hann
tók þá við þvi embætti og
gegndi því til ársloka 1949, en
þá lét hann af þvi embætti
samkvæmt eigin ósk.
Þetta er hið helzta um náms-
feril og embættisferil Magn-
úsar Péturssonar.
Eins og ég hef þegar tekið
fram, var Magnús Pétursson
skipaður héraðslæknir i
Strandahéraði frá 1. júní 1910.
Eins og kunnugt er, þá er liér-
að þetta mjög erfitt. Aulc þess
varð hann stundum að gegna
nágrannaliéruðunum, Revkjar-
fjarðarhéraði og Reykhólahér-
aði. Hann varð brátt mjög ást-
sæll af héraðsbúum, og auk
emhættisins, er hann rækti
með sérstakri samvizkusemi,
hlóðust á hann ýmis opinber
trúnaðarstörf. Fjórum árum
eftir að hann tók við héraðinu,
var hann kosinn þingmaður
Strandamanna, og var það ó-
slitið næstu 9 árin. Á al])ingi
gerðist hann fljótlega áhrifa-
mikill, sem meðal annars má
marka af því, að þar voru hon-
um brátt falin ýriis ábyrgðar-
mikil trúnaðarstörf. Eftir eins
árs þingsetu var hann orðinn
framsögum að ur f j árveitinga-
nefndar, og því starfi hélt
hann öll þau ár, er hann átti
sæti á alþingi eftir það. Enn
fremur var liaun formaður
fullveldisnefndar á árunum
1917 og 1918.
Ilaustið 1919 var Magnús
Pétursson skipaður í nefnd til
þess að undirhúa lög um
berklavarnir, ásamt þeim próf.
Guðmundi Magnússvni og próf.
Sigurði Magnússyni. Næsta ár
sigldi Magnús á vegum þessar-
ar nefndar til þess að kynna
sér berklavarnir erlendis. Ár-
ið 1921 skilaði nefnd þessi
vönduðu nefndaráliti, sem
samþvkkt var á alþingi með
lítilsháttar hreytingum sem
lög. Má hildaust fullyrða, að
lög þessi marki alger tímamót
í berklavörnum á íslandi.
Á árunum 1928—1929 dvaldi
Magnús Pétursson í Hamhorg
til þess að kynna sér berkla-
varnir og millilandasóttvarnir.
Það gat naumast hjá því
farið, að Magnús Pétursson yrði
að taka að sér ýmis opinber
trúnaðarstörf, auk hin§ um-
fangsmikla emhættis, eftir að
hann flutti til Revkjavíkur, og '
skal nú nefnt það helzta. Hann
var formaður Hjúkrunai’félags
Reykjavíkur frá 1929—1937,
en eftir að það var lagt niður,
var hann í stjórn Rerklavarna-
félags Islands. Hann átti sæti í
íæknaráði frá 1942, að það var
stofnað, og fram á árið 1951.
Enn fremur átti hann sæti í
rikisspítalanefnd.
Nokkrum árum áður en
Magnús Pétursson lét af störf-
um sem héraðslæknir í Revkja-
vík, samdi hann með aðstoð
færustu sérfræðinga hérlendis,
uppkasl að heilbrigðissam-