Læknablaðið - 01.12.1959, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐIÐ
153
Næsta mál var Domus Me-
dica. Nokkrar umræður urðu
um uppkast að stofnskrá, með-
al annars um kjörtímabil
stjórnar. Fundarstjóri las síð-
an stofnskrá lið fyrir lið með
þeim breytingum, sem gerðar
voru og var hún samþykkt.
(Stofnskráin er beft inn í fund-
argerðabókina).
Þá var samþykkt tillaga um
að heimila stjórninni að leggja
fram 100.000,00 krónur í bygg-
ingarsjóð Domus Medica.
Jón Sigurðsson vakti máls á
seinagangi mála, er varða bygg-
ingu fávitahælis í Kópavogi.
Þar eð hælið að Kleppjárns-
reykjum hefði nú verið lagt
niður, vegna skorts á starfs-
fólki, hefði aukning aðeins
orðið 5 rúm á 6 árum. Bygg-
ingin í Kópavogi væri ekki
tekin að fullu í notkun ennþá
og væri þriðji hluti húsnæðis-
ins ófullgerður.
Ófeigur .1. Ófeigsson þakkaði
Jóni Sigurðssyni fyrir að vekja
máls á þessu nauðsynjamáli
og tóku fleiri í sama streng.
Var svo hljóðandi ályktun sam-
þykkt: „Aðalfundur Lækna-
félags íslands haldinn 25,-—27.
júní 1959 átelur þann seina-
gang, sem verið hefur undan-
farin ár á bvggingafram-
kvæmdum við Fávitahælið í
Kópavogi. Skorar fundurinn
enn á ný og eindregið á heil-
brigðisstjórnina að hún hlut-
ist lil um, að bætl verði iiið
fyrsta úr brýnni þörf á þessu
sviði.“
Fundarstjóri (Eggert Ein-
arsson) ítrekaði áskorun til
svæðafélaganna um að til-
kynna vikar-þörf ár hvert.
Enn fremur hvatti hann félags-
menn lil góðrar samvinnu með
upplýsingar varðandi kostnað
við læknisstörf, gjaldskrár-
nefnd til aðstoðar. Þakkaði
góða fundarsetu og kurteisleg-
an málflutning. Fundi slitið.
Læknafélag Reykjavíkur
bauð læknum og konum þeirra
svo og gestum L. 1. til fagnaðar
i kjallara Þjóðleikhússins kl.
18 um kvöldið, en síðan var
snæddur kvöldverður á sama
stað og skemmt sér fram eftir
kvöldi.
------•------
FRÁ LÆKNCM:
Lausn frá embætti, fyrir aldurs
sakir, liafa fengið héraðslæknarnir
Árni Vilhjálmsson, Vopnafirði og
Halldór Kristinsson, Siglufirði.
Bragi Níelsson, læknir, hefur hinn
21. júlí 1959 verið skipaður liéraðs-
læknir i Kirkjubæjarhéraði frá 1.
júli 1959 að telja.
Tómas Helgason, læknir, hefur
hinn 19. sept. 1959 fengið leyfi til
þess að mega starfa sem sérfræð-
ingur í geð- og taugasjúkdómum.
Magnús Þorsteinsson, cand. med.
var hinn 25. sept. 1959 settur til
þess að vera héraðslæknir í Bakka-
gerðishéraði frá 1. nóv. 1959 og þar
til öðruvísi verður ákveðið.
Sigursteinn Guðmundsson, cand.
med chir., var hinn 10. okt. 1959