Læknablaðið - 01.08.1967, Page 67
LÆKNABLAÐIÐ
161
b) hvaða próf og aðferðir eru árangursríkust við uppgötvun
sjúkdóma,
c) hvort reglubundnar hóprannsóknir, m. a. með hjálp tækni-
legs þjálfaðs starfsliðs og aukinni sjálfvirkni (t. d. notkun
skýrsluvéla og rafreiknis), geta létt nokkuð álagið á sjúkra-
húsunum,
d) hverju máli uppgötvun sjúkdóma skipti fyrir einstakling-
inn og þjóðfélagið.
Upphaflega voru rannsakaðir 500 karlar og 500 konur eða
sýnishorn úr um 22.000 manna hópi á aldrinum 45, 50, 55, 60 og
65 ára.
Þessi rannsókn var allumfangsmikil. Sjúkdómsferill þátt-
takenda var rakinn með stöðluðum spurningalista, sem síðar
var yfirfarin af lækni, ritara og sálfræðingi. Klínisk skoðun
var gerð og jafnframt því var tekið hjartarafrit, röntgenmynd
af lungum og hjarta með skuggaefni, gerð öndunarpróf (peak
flow og vital capacity), augnspeglun, mældur augnþrýstingur og
gerðar um 40 mismunandi mælingar á blóð- og þvagsýni frá
hverjum þátttakenda (auto-analyzer). Allar upplýsingar voru
lyklaðar (coded) og gataðar inn á spjöld. Urvinnsla fór fram í
tölvu og er nú að mestu lokið. Við framhaldsrannsóknina var
tölvan látin skrifa sjúkraskrána, og auðveldaði það mjög alla
vinnu.
Til þess að kanna mikilvægi rannsóknarinnar fyrir ein-
staklinginn var beitt eftirfarandi aðferðum:
1) Allir þátttakendur voru spurðir um líðan tveimur árum eftir
fyrstu rannsókn.
2) Skýrslur frá læknum þátttakenda voru athugaðar.
Niðurstöður af báðum þessum athugunum voru þær, að
20% eða um 200 manns af 1000 höfðu haft verulegt gagn af
rannsókninni, vegna þess að þeir höfðu fengið:
a) lækningu á alvarlegum sjúkdómi,
b) verulega bót á einhverjum sjúkdómi, samfara betri líðan.
Læknar, sem gerðu rannsóknina, athuguðu úrtak (sample)
úr þátttakendahópnum, án þess að vera kunnugt um niðurstöður
þær, er getið er um hér að framan, og fengu líkar niðurstöður.
Af öðrum rannsóknum má draga svipaðar niðurstöður.10
Jafnframt má geta þess, að um 200 þátttakendur, sem voru
sendir til nánari athugunar, þurftu ekki frekari aðgerða við,
en algengustu orsakir þeirrar athugunar voru óreglulegar blæð-