Læknablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ
9
Eftir þessu að dæma mætti búast við, að um það bil 11—13
sjúklingar á íslandi þyrftu árlega á P-M meðferð að halda. Áð-
ur en farið var að nota P-M, voru sjúkdómshorfur (prognosis)
þessara sjúklinga mjög slæmar. Þriðjungur sjúklinganna dó inn-
an fjögurra vikna frá því, að algjör A-V stöðvun var greind, og
eftir eitt ár er aðeins helmingur á lífi. Sjúkdómshorfurnar versna
cftir því sem aldur sjúklinga hækkar. Hjá sjúklingum<59 ára
er dánartala innan eins árs 43%, en hjá þeim, sem eru >80 ára,
erhún78% (Johansson).2
Eg mun þessu næst gera grein fyrir helztu ástæðum P-M
meðferðar.
Ástæður P-M meðferðar
1) Algjör A-V leiðslustöðvun (block) með S-A köstum. Þetta
má telja sígilda ástæðu P-M meðferðar. Hjá 85% sjúklinga með
S-A köst er orsökin algjör A-V leiðslustöðvun, með lengri eða
skemmri hjartastöðvun (asystolia cordis).3 Ef sjúklingarnir
deyja ekki í slíku kasti, leiðir þetta, þegar til lengdar lætur, til
heilaskemmda, vegna þess að heilinn þolir verst líffæra líkamans
lélega blóðrás. Þessir sjúklingar verða smám saman gleymnir og
andlega sljóir, og svo getur farið að lokum, að þeir verði algjör-
lega ruglaðir. Þetta er oft mjög átakanlegt, þar sem sumir sjúkl-
inganna eru tiltölulega ungir að árum.
2) Við hjartabilun (insufficentia cordis) með algjörri A-V
stöðvun má ekki gefa digitalis, því að það getur orsakað hjarta-
stöðvun. Eftir að þessir sjúklingar hafa fengið P-M, er áhættu-
laust að gefa þeim digitalis og á þann hátt bæta hjartastarfsem-
ina og blóðrásina. Það sakar ekki að benda á, að með bættri blóð-
rás til nýrnanna eykst „glomerularfiltrationin“ og útskilnaður á
natríumklóríði.
3) Kransæðastífla með A-V stöðvun. Ein af alvarlegustu af-
leiðingum kransæðastíflu er skyndileg A-V stöðvun. Dánar-
tala þessara sjúklinga var mjög há, áður en farið var að nota
P-M, eða um 64%, en er nú 14% með P-M meðferð (Bruce et
al.).4 P-M hefur ekki í öllum tilfellum þurft að vera til lang-
frama, þar sem um það bil 50% sjúklinganna fá aftur sinushjart-
slátt, þegar sárið (infarctinn) í hjartavöðvanum er gróið.
Á brjóstholsdeildinni hér í Malmö höfum við haft til með-
ferðar nokki'a slíka sjúklinga, og hefur árangur verið svipaður.
1 þessum tilfellum notum við ávallt P-M af ,,Demand“-gerð (sbr,
síðar).