Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1968, Page 43

Læknablaðið - 01.02.1968, Page 43
LÆKNABLAÐIÐ 17 LÆKNABLAÐIÐ 54. árg. Febrúar 1968 rELAGSPRENTSMIÐJAN H F. CODEX ETHICUS Islenzkum læknum hefur nú borizt „Codex Ethicus“ — siða- reglur lækna — 1968. Codex þessi var saminn af Ólafi Björnssyni, Páli Gíslasyni og Páli Sigurðssyni og samþykkt- ur á aðalfundi L. I. 27.—29. júlí 1967. Er hér um mjög fullkomna endursamningu á Codex að ræða, og er ekki neinni rýrð á aðra nefndarmenn kastað, þótt fullyrt sé, að það starf hafi mest mætt á Ólafi heitnum, og því skilað af þeirri vandvirkni og lipurð, er einkenndu öll hans störf. I inngangi að Codex segir Ól- afur svo: Codex Ethicus er læknum til leiðbeiningar, hvernig þeim beri að gæta „heiðurs og göfugra erfða“ stéttarinnar, og almenningi til verndar gegn hvers konar skottu- lækningum. Heit það, sem kennt er við Genf, en á rót sína að rekja til Hippo- kratesar, skal hver verðandi lækn- ir festa til að hljóta ius practicandi og leggja við mannorð sitt og drengskap að halda það ævinlega. Samkvæmt lögum Læknafélags íslands eru Alþjóðasiðareglur lækna lagðar til grundvallar þeim Codex Ethicus, sem félagið setur meðlimum sínum. Með þessum Codex viðurkennir læknastéttin: 1. að hún er bræðralag, 2. að hún helgar sig þjónustu við alla menn í baráttu gegn sjúk- dómum og verndun heilbrigði, 3. að hún gegnir ábyrgðarhlut- verki og getur því aðeins vænzt vegs og trausts af samfélaginu, að hún geri sér allt far um að vera vaxin þeim siðferðilega vanda, sem þekking, tækni og félagslegt hlutverk leggja henni á herðar. Fyrsta tilraun til að setja ís- lenzkum læknum Codex Ethicus var gerð 1896. Var þá reynt að stofnsetja „Hið íslenzka lækna- félag“; voru samin bráða- birgðalög og uppkast að Codex Ethicus. — Ekki varð þó neitt úr, og næst virðist hugmyndin um Codex Ethicus stinga upp kollinum snemma á árinu 1915, er Læknafélag Reykjavíkur kýs læknana Guðmund Magnússor., Guðmund Hannesson og Matthí- as Einarsson í nefnd til þess að gera tillögur um Codex Ethicus. Voru tillögur nefndarinnar lagð- ar fyrir félagsfund 8. nóv. það ár, en síðan einnig sendar lækn- um utan Reykjavíkur til um- sagnar og tillagna. Nokkuð barst af breytingartillögum á næsta ári, og er svo að sjá, að jafnframt þessari könnun hafi yerið unnið að undirbúningi að stofnun Læknafélags íslands. Jafnframt því, er frumvarp að lögum „Læknafélags Islands" birtist í Læknablaðinu í marz

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.