Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1968, Page 45

Læknablaðið - 01.02.1968, Page 45
LÆKNABLAÐIÐ 19 Guðmundur Gíslason: ORMAR I BÚFÉ Á ÍSLANDI Við rannsóknir á húsdýrasjúkdómum verður naumast kom- izt hjá því að kynnast náið ýmsum sníkjudýrum. Hvað íslenzka sauðféð snertir, eru ormarnir oft einna mikilvirkastir skaðvald- ar, einkum ungviðinu. Á það einnig við um fullorðið fé, ef eitt- hvað skortir á viðurværi þess eða sjúkdómar hafa dregið úr mót- stöðu fjárins. Mörgum mun finnast það harla ótrúlegt, að ekki sé auðvelt að leysa þennan ormavanda með kröftugum lyfjum og inngjöf- um. Ekki skortir það, að mörg og góð ormalyf bjóðast — og eru vel auglýst. Lyfin firra oft miklum vandi’æðum, en um þau gild- ir hið sama og um mörg önnur hinna nýju lyfja, að þau skapa einnig nýja óvissu og nýjar hættur, en ná þó ekki fyrir rætur meinsins. Alls er talið, að fundizt hafi um 50 ormategundir (species) í meltingarvegi sauðfjár. Stundum eru ekki nema fáeinir ormar af sumum tegundum, en af öðrum er oft mjög mikill fjöldi. Þeir þráðormar (nematoda), sem koma til greina hjá okk- ur, eru af ættum Trichostrongylidae, Strongylidae, Trichinelli- dae, Ancylostomatidae og Metastrongylidae. Nokkrar tegundir af algengustu ormum í sauðfé hafa ekki enn fundizt hér á landi. Það eru hárormarnir Trichostrongylus colibriformis og Cooperia curticei, sem eru mjög algengir í fé á Bretlandseyjum, í Skandinavíu og víðar. I þriðja lagi er Nemat- odirus battus (brúneggur), sem varð frægur á Bretlandseyjum fyrir nokkrum árum. Tegundin hafði verið lítið eða ekki þekkt áður, en magnaðist nú á skömmum tíma og olli alvarlegum sýk- ingum. Orsökin var sú, að þessi ormur aleinn af frændliði sínu lifði árás ormalyfjanna, sem þá voru í notkun. Þá má í fjórða lagi telja ösophagostomum columbianum og í fimmta lagi Hæm- oncus contortus, en sá ormur er um allan heim talinn valda einna mestum búsifjum í lömbum. 1 fyrravetur fundust í fyrsta skipti Hæmonchus contortus ormar hér á landi. Það var sænskur ormafræðingur, Olle Nilsson prófessor, sem vann hjá okkur við ormarannsóknir á Keldum í nóvember 1966, sem staðfesti tvo orma af þessari tegund í vinstur

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.