Læknablaðið - 01.02.1968, Síða 46
20
LÆKNABLAÐIÐ
úr kind austan úr Holtum. Þessir ormar voru litlir og grannir,
en Hæmonchus contortus, sem nefndur hefur verið stóri vinstrar-
ormurinn, getur verið allt að því þrír cm á lengd og einn mm á
þykkt. Hann á því vegna stærðar sinnar að vera auðþekktur með
berum augum, en einnig auðfundinn vegna blæðinga, sem hann
skilur eftir sig í slímhúð vinstrarinnar. Þar sem slímhúðarblæð-
ingar eftir þá hafa ekki fundizt í vinstrum sauðfjár hér á landi,
eru allar líkur til, að sú Hæmonchus-tegund, sem nú hefur fund-
izt í okkar fé, sé fremur smávaxin og í litlu magni. Er því senni-
legast, að hún þrífist illa við íslenzkar aðstæður og veðurfar.
Hæmonchus contortus tegundir hafa reynzt mjög misjafn-
ar að stærð og skaðsemi í ýmsum löndum, og eru enn mörg óút-
kljáð rannsóknarefni tengd þessum ormi.
Heita má, að sömu aðalormategundir finnist í sauðfé um
allan heim. Þess vegna er óvarkárni að fullyrða um einstaka
ormategund, að hún geti ekki verið til í kind á íslandi. En þeim
mun mikilsverðara getur það verið, ef unnt er að ganga örugg-
lega úr skugga um, að einhver af þessum ormategundum sé alls
ekki til í okkar búfé.
1 þessu sambandi má geta þess, að Nilsson prófessor, sem
fyrr var nefndur, hefur hvað eftir annað látið í Ijós við mig
fyllstu efasemdir um það, að hárormategundin Trichostrongylus
colibriformis sé ekki til í íslenzku fé, þar eð hún er einna algeng-
asta hárormategundin í Skandinavíu og á Bretlandseyjum. Það
hef ég og að sjálfsögðu ekkert fullyrt um, en þessi ormur hefur
ekki fundizt hér þrátt fyrir vandlega leit í nokkrum hundruðum
kinda síðustu tíu árin. Og ekki tókst Nilsson heldur að finna þenna
orm í fyrstu atrennu. Þetta sýnir, að talsvert þarf til að vera
fyllilega viss í sinni sök.
Nú langar mig til að kynna lauslega þá orma, sem fundizt
hafa í sauðfé hér á landi.
Ostertagiu, vinstrarormar sjást varla með berum augum.
Þó eru þeir um einn cm á lengd, en hárþunnir. Lirfan þróast
milliliðalaust, er minnst eina viku utan kindarinnar, og skemmst
líða 20 dagar frá því 3. stigs lirfa kemst í kindina, þar til hún
sjálf er orðin fullþroska ormur og farin að verpa eggjum. Orm-
ur þessi heldur til í vinstrinni og er af ættum Trichostrongylidae.
Þekktar eru hér í sauðfé tvær tegundir, 0. circumcincta og tri-
furcata. Ekki er talið, að þessir ormar skaði kindina fyrr en
fjöldi þeirra er kominn yfir 10 þúsund.
Trichostrongylus, hárormar eru minni en vinstrarormar,