Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 47

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 47
LÆKNABLAÐIÐ 21 5—7 mm á lengd og grennri. Þeir eru af sömu ætt, hafa líkan lífsferil og taldir geta valdið tjóni, ef þeim fjölgar yfir 15—20 þúsund. Við þekkjum hér í fé þrjár tegundir, T. axei í vinstur og T. capricola og T. vitrinus, sem búa um sig framarlega í mjó- görn. Nematodirus, flækjuormur, er einnig af ætt Trichostrong- ylidae, en nokkru stærri eða allt að 2 cm á lengd og 0.5 mm á þykkt. Hann á heima í mjógirni, þegar komið er um þrjá metra aftur í görnina. Lirfan þolir vel frost. Hún getur dvalið í heilt ár utan kindarinnar, og er líklegt, að hún lifi í súgþurrkuðu heyi. Bunostomum trigonoce'phálum, bitormur, er stór, þrír cm að lengd og einn mm á þykkt, af ætt Ancylostomatidae, á heima í mjógörn í nábýli við flækjuorminn. Ekki er talið, að þurfi meira en 100 bitorma til að valda sjúkleika. Lirfan er öflug og smýgur húðina, en er viðkvæm fyrir frosti. Trichuris ovis, halaormurinn, af ætt Trichinellidae, er stór, 5—8 cm langur og lifir í langatotunni. Hann er með löngum hala, sem raunar er framhluti ormsins eða háls. Halaormurinn er ekki talinn valda tjóni. ösophagostomum venulosum, langaormurinn, og Chabertia ovina, ristilormurinn, eru báðir af ætt Strongylidae, um 2—3 cm á lengd og 0.5 mm á þykkt. Þeir eiga heima í langa og ristli og valda skaða, ef þeir skipta hundruðum. Einkum virðast ristil- ormar vera óvenjulega magnaðir í fé hér á landi, geta orðið á annað þúsund í einstökum kindum og valdið miklum bólgum i ristilslímhúð. Dictyocaulus filaria, hinn stóri barkapípuormur, og Proto- strongylus 't'ufecens, minni barkapípuormurinn, eru ásamt Cysto- caulus ocreatus og Mullerius capillaris af ætt Metastrongylidae. Þetta eru miklir ormar, eins og 3—8 cm langir seglgarnsspottar, sem iða í lungnapípunum. Þeir valda stundum miklum óþægind- um með því að erta slímhúðina í barka. Stóri barkapípuormur- inn, Dictyocaulus filaria, sem er mjög algengur hér á landi, smit- ast beint, þannig að lirfurnar, sem klekjast úr eggjum í sauða- taði, verða smithæfar eftir ákveðinn tíma og hafa þá tvisvar haft hamskipti og eru orðnar að 3. stigs lirfum. Lirfur hinna lungna- ormanna þurfa millilið. Þær verða að dvelja um tíma í sniglum til að geta orðið smithæfar. Moniezia expansa, mjólkurmabkurinn, er af flokki band- oi-ma, Cestoda, og ætt Anoplosephalidae. Hann getur orðið allt að fimm metra langur og um einn cm á breidd. Lirfan þarf sinn

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.