Læknablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 55
LÆKNABLAÐIÐ
25
1. tafla
Flokkun á /47þús.ormumúr vinstur
og mjógörn úr 44 ditkum frá Hest/siátrad
__ ' __________________itádÓD.
Ormaheiti fannsti a//s i iömbur oftoo n Ormoi ,a//s c a/an jftoo Ormata/ iþ at/s ús.eft.œttkv. af /oo.
o.circumcinctc 43 98% /09000 74% /24 84%
o.trifurcato 23 52- /5000 /O-
r oxei 2 4- 400 0.2-
r capricoia 28 64- /0500 7- /2 8%
t vitrinus /4 32- /700 /-
n. fi/icoi/is /8 4/- 8600 6- /0 7%
n. spathiaer 7 /6- /700 /-
b. trigonoce- 2 4- 2
phaium
sem gekk á sama landi, en var ekki slátrað fyrr en 2. október,
fundust aðeins um 400 vinstrarormar í hverju lambi, og nú voru
vinstrarormar ekki nema 5% af heildartölunni. Þeir höfðu þann-
ig að mestu leyti horfið úr lömbunum í septembermánuði, en
flækjuormar aukizt, og voru þeir nú yfir 7000 að meðaltali í
lambi og 87% af heildartölu orma. Aukning ormaeggja í júlí—
ágúst, sem kemur fram á I. línuriti, stafar þannig af fjölgun
vinstrarorma. Skýringin mun vera sú, að lömbin, sem voru orðin
4—5 mánaða gömul, höfðu þegar náð að mynda mótefni gegn
vinstrarormum, sem þau smituðust af nýfædd. En þau voru óvið-
búin hinu magnaða haustsmiti flækjuormalirfanna. Eins og sést
á I. línuriti, hafði ormalyfsgjöfin í júlíbyrjun engin áhrif á þróun
ormanna.
Viðkvæmni ormalirfanna fyrir kulda og þurrki er mjög mis-
munandi mikil. Það virðist yfirleitt einkenna þá.orma, sem mest
er af í sauðfé hér á landi, að þeir þola vel kulda og eggin klekj-
ast út við lágan hita. Vinstrarormaegg klekjast út við 5°C lægst,
en hárormar og ristilormar við um 8°C. Cooperia curticei þarf um
16°C hita. Líklegt er, að ýmsar ormategundir þrífist illa eða ekki
á Islandi vegna hins kalda loftslags. Flækjuormalirfur þola allra
bezt kulda og lifa örugglega árið, og lirfur vinstrarormsins eru
einnig mjög lífseigar. Aftur á móti eru egg og lirfur bitormanna