Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 57

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ 27 in að haustinu, því að þá fer oft saman lítil mótstaða, léleg beit og mikið lirfusmit. Það er alkunna, að fullorðin kind hefur tök á því með aðstoð mótefna sinna að halda ormum í skefjum, þeg- ar hún er heilbrigð og í góðum þrifum. Hún hýsir þá stundum aðeins fáein hundruð af helztu ormategundum, en ormafjöldinn breytist lítið eða ekki, þótt kindin gleypi að staðaldri í sig mikið af smitnæmum lirfum. Þetta hefur verið kallað, að kindin hafi náð ormajafnvægi (wormballance). Margt er á hinn bóginn óþekkt í sambandi við mótefna- myndunina, t. d. hvaða efni í fæðunni auka á mótstöðumyndun eða á hvern hátt sjúkdómar brjóta hana niður. Skerman sýndi fram á það með tilraun (1962), að ormar mögnuðust til muna í lömbum, sem fengu ekki alveg nóg af cobalti í fóðrinu.4 Þó var cobaltvöntunin það smávægileg, að lömbin þrifust vel án cobalt- gjafa, meðan á tilrauninni stóð. Þetta sýnir, hve samsetning fæð- unnar er mikilsverð og efnavalið nákvæmt við myndun mótefna, og nær án efa til fleiri snefilefna og jafnt, hvort líkaminn er að framleiða mótefni gegn ormum, æxlisfrumum, sýklum eða veir- um. Að sjálfsögðu gilda sömu lögmál um mótefnamyndun í mann- fólki, og því gæti það verið ótrúlega mikilsvert að fá staðfest, hvaða næringarefni eða snefilefni örva myndun mótefna eða

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.