Læknablaðið - 01.02.1968, Qupperneq 68
36
LÆKN ABLAÐIÐ
Nokkrir læknar fluttu í húsið 1. nóvember, en margir síðar í mán-
uðinum, og flestir voru fluttir, þegar húsið var vígt við hátíðlega at-
höfn hinn 3. desember 1966 að viðstöddum forseta íslands og miklu
fjölmenni.
Húsbyggingarráð Er bygging Egilsgötu 3 var komin alllangt áleið-
is, var fyrst gengið formlega frá samningi milii
byggjenda hússins (sjá fylgiskjal 1). Var sá samningur gerður til
þess, að unnt yrði að ganga frá lánaskjölum og veðsetja eignina. Var
byggingarstjórn samkvæmt samningi þessum veitt fullt og ótakmark-
að umboð til þess að ganga frá lánaskjölum og veðsetja eignina í
heild, að fengnu samþykki húsbyggingarráðs.*
Með útgáfu sérskuldabréfanna þurfti að breyta þessum samn-
ingi, til þess að hægt yrði að fá þau með ábyrgð ríkissjóðs og borgar-
sjóðs (sjá fylgiskjöl 2og3). Varð nú að þinglýsa húseigninni ásamt lóða-
réttindum á nafn Domus Medica. Kemur því stjórn Domus Medica,
eins og hún er skipuð á hverjum tíma, fram gagnvart ríkissjóði og
borgarsjóði í öllum málefnum fasteignarinnar sem eigandi hennar
og hefur heimild til að taka lán vegna byggingarframkvæmda og að
veðsetja alla fasteignina til tryggingar þeim lánum, auk vaxta og
alls kostnaðar. Er þessi samningur enn þá í gildi.
Húsbyggingarráð hafði yfirumsjón með byggingu hússins, og til-
nefndi hver byggingaraðili eftirtalda menn í ráðið:
Domus Medica — sjálfseignarstofnun, er var eigandi að útbygg-
ingunni allri og hluta af II. hæð í háhýsinu, tilnefndi Bjarna Bjarna-
son, sem var formaður ráðsins, Bergsvein Ólafsson og Eggert Stein-
þórsson.
Nesstofa h.f., er átti IV. og V. hæð háhýsisins og hluta af I. hæð,
tilnefndi Eggert Steinþórsson, Guðmund Björnsson og Þórarin
Guðnason.
„Læknar og tannlæknar í Domus Medica“ áttu III. hæð alla
ásamt hluta af I. og II. hæð. Fulltrúar þeirra voru: Hannes Þórarins-
son, Kjartan Magnússon og Stefán Bogason, en Þorgeir Jónsson kom
síðar inn í ráðið, er Stefán hafði selt sinn eignarhluta í byggingunni.
Ráðið valdi þrjá menn, einn úr hverjum hópi, til að annast bygg-
ingarstjórn og hafa umsjón í samráði við framkvæmdastjóra og um-
sjónarmann byggingarinnar, en hann var Friðrik Karlsson. Bygg-
ingarstjórnina skipuðu: Bjarni Bjarnason formaður, Hannes Þórar-
insson og Þórarinn Guðnason.
Nú að reikningsuppgjöri byggingarkostnaðar loknu og lögmætri
eignaskiptingu hefur byggingarráð hætt störfum og húsráð Domus
Medica tekið við stjórn hábyggingarinnar, og stjórn Domus Medica
— sjálfseignarstofnun fer með stjórn félagsheimilisins.
í lokagrein þessarar skýrslu er sagt frá núverandi stjórn Egils-
götu 3.
* Samningar þeir, sem hér eru birtir, eru allir gerðir af Einari
B. Guðmundssyni hrl.