Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 70

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 70
38 LÆKNABLAÐIÐ Domus Medica — sjálfseignarstofnunar. Voru því á sameiginlegum fundi húsráðs Domus Medica og byggingarnefndar í maí 1967 gerð þau makaskipti, að eigendur hábyggingarinnar eignuðust framan- talda eignarhluta frá Domus Medica — sjálfseignarstofnun, en Domus eignaðist kvaðalaust bókasafnsherbergi og skrifstofu framkvæmda- stjóra á II. hæð í háhýsinu, eins og nánar er útskýrt í samningi um eignaskiptingu (fylgiskjal 4), sem er reistur á fyrra samkomulagi milli eigenda og útreikningum Gunngeirs Péturssonar. Byggingar- Lokauppgjör byggingarkostnaðar hófst í janúar 1967, en kcstnaður ýmissa orsaka vegna var því ekki lokið fyrr en 1. des- ember s. á. Sáu þeir Sigfús Gunnlaugsson cand. oecon. og Ragnar H. Guðmundsson stud. oecon. um uppgjörið og endurskoð- uðu reikninga og fylgiskjöl varðandi byggingarkostnað. Eins sömdu þeir efnahagsreikning þann, sem hér er birtur (íylgiskjal 5). Er kostnaðarverð Egilsgötu 3 samkvæmt þessum reikningi kr. 25.361.492.97, en með áföllnum vöxtum af lánum, frá því að bygg- ingarframkvæmdir hófust, telst heildarkostnaður vera, miðað við 1. desember 1967, kr. 29.004.932.91. Til samanburðar má geta þess, að brunabótamat alls hússins í nóvember 1967 var kr. 37.560.000.00, en húsnæðið á I. hæð, sem ætlað er röntg'endeild, er ekki metið enn að fullu til brunabóta. Greinargerð Á skuldadálki efnahagsreikningsins, þar sem stendur framlag Domus Medica, vil ég gefa þá skýringu, að í því felst hluti af leigu af húsnæði (verzlanir) og tekjum af veitingasal, sem lagðar voru í bygging'una. í framlagi læknafélaganna er sá hluti af árgjaldi lækna, sem runnið hefur til Domus Medica frá upphafi, sem og stofnframlag. Þess ber og geta, að húsaleigutekjum af verzl- unum í félagsheimilinu og ágóða af veitingasal hefur auk afborgana ver- ið varið til áhalda- og vélakaupa vegna veitingareksturs, sem og kaupa á borðum og stólum í veitingasal og til annars, sem að rekstrinum lýtur. Athuga ber í þessu sambandi, að ekkert rekstrarfé var hand- bært, er rekstur veitingasalar hófst. Athuga ber og, að framlög Nes- stofu h.f. í hússjóð eru á efnahagsreikningi talin vera kr. 3.522.168.37, en meðan sjóðirnir voru aðskildir, eins og að framan getur, höfðu vaxtagreiðslur og þóknun fyrir lögfræðistörf numið kr. 77.831.33. Heildarframlag Nesstofu h.f. er þess vegna kr. 3.600.000.00. Sömu sögu er að segja um framlag „Lækna í Domus Medica“. Þeir hafa lagt í byggingarsjóð kr. 3.373.208.00, og er mismunurinn vaxtagreiðslur. Rekstrarsjóður (afborgun lána, vextir o. fl.) í skuldadálki kr. 2.000.771.71 er upphæð úr rekstrarsjóði hábyggingarinnar, sem varið hefur verið til afborgana af lánum og í vaxtagreiðslur frá 1. nóvem- ber 1966. Mánaðarleg framlög (húsaleiga) lækna renna í rekstrar- sjóð hábyggingarinnar. Byggingarkostnaður hábyggingar og lágbyggingar var hafður að- skilinn frá byrjun, eins og áður greinir, og skiptist hann þannig:

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.