Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1968, Page 72

Læknablaðið - 01.02.1968, Page 72
40 LÆKNABLAÐIÐ sem það hefur nú. Með skipulegum aðgerðum væri þó hægt að koma félagsheimili lækna á allfastan fjárhagsgrundvöll án meiri fórna af hálfu lækna landsins en nú er, ef vilji er fyrir hendi hjá forráða- mönnum læknasamtakanna og ekki sízt hjá læknunum sjálfum, sem eru eigendur félagsheimilisins. Núverandi Stjórn Domus Medica — sjálfseignarstofnunar fjallar stjórn um mál, er varða félagsheimili læknasamtakanna, en í Egilsgötu 3 henni eiga sæti: Bjarni Bjarnason formaður, Eggert Steinþórsson ritari, Bergsveinn Ólafsson gjaldkeri, Jón Sigurðsson og Oddur Ólafsson, Reykjalundi. Varamenn: Arinbjörn Kolbeinsson, Guðmundur Karl Pétursscn og Ólafur Björnsson. Húsráð Domus Medica fjallar um sameiginleg mál, er varða há- bygginguna og hlut hennar í lágbyggingunni. Eftirtaldir fulltrúar eiga sæti í ráðinu, sem kosið er til tveggja ára. Kjörtímabil hófst í maí 1967: FRÁ NESSTOFU H.F.: Bjarni Bjarnason, Guðmundur Björnsson og Þórarinn Guðnason. FRÁ „LÆKNUM OG TANNLÆKNUM í DOMUS MEDICA“: Ein- ai Helgason, Hannes Þórarinsson og Þórður Eydal Magnússon. Vara- menn: Jón G. Hallgrímsson, Kjartan Magnússon og Geir R. Tómasson. FRÁ DOMUS MEDICA — SJÁLFSEIGNARSTOFNUN: Eggert Steinþórsson. FRAMKVÆMDASTJÓRN HÚSRÁÐS SKIPA: Guðmundur Björnsson formaður, Eggert Steinþórsson varaformaður og Einar Helgason ritari. Að lokum vil ég fyrir hönd byggingarnefndar og húsráðs þakka framkvæmdastjóra hússins, Friðriki Karlssyni, sem hafði umsjón með byggingu hússins allt frá byrjun, fyrir ósérhlífni hans, trúmennsku og hagsýni. Jafnframt þakka ég öllum þeim, sem af óeigingjörnum hvötum hafa lagt hönd á plóginn við að koma byggingunni upp, og þá fyrst og fremst Bjarna Bjarnasyni, formanni Domus Medica, sem mest hafði beitt sér fyrir byggingu hússins og stóð alltaf í fremstu víglínu, meðan á framkvæmdum stóð, og lét aldrei bugast, þótt næðingur léki stundum um hann og aðra forráðamenn byggingarinnar. Hafa ber í huga, að skýrslu sem þessa má túlka á ýmsa vegu, en ég vona, að rétt sé með þær tölur farið, sem ég hef fengið í hendurn- ar við samningu þessarar greinargerðar. En það, sem missagt kann að vera, þá er skylt að hafa það heldur, er sannara reynist. Fylgiskjal 1 Eftirtaldir aðiljar hafa á undanförnum árum staðið að bygg- ingu stórhýsis við Egilsgötu hér í borg. Bygging þessi ber nafnið DOMUS MEDICA. Byggjendur eru þessir: 1) Domus Medica, sjálfseignarstofnun, skipulagsskrá 26. anríl 1960. 2) Nesstofa h/f. 3) Læknar í Domus Medica (einstaklingar). Ofangreindir þrír aðiljar hafa ákveðið að stofna með sér samtök

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.