Læknablaðið - 01.02.1968, Blaðsíða 72
40
LÆKNABLAÐIÐ
sem það hefur nú. Með skipulegum aðgerðum væri þó hægt að koma
félagsheimili lækna á allfastan fjárhagsgrundvöll án meiri fórna af
hálfu lækna landsins en nú er, ef vilji er fyrir hendi hjá forráða-
mönnum læknasamtakanna og ekki sízt hjá læknunum sjálfum, sem
eru eigendur félagsheimilisins.
Núverandi Stjórn Domus Medica — sjálfseignarstofnunar fjallar
stjórn um mál, er varða félagsheimili læknasamtakanna, en í
Egilsgötu 3 henni eiga sæti: Bjarni Bjarnason formaður, Eggert
Steinþórsson ritari, Bergsveinn Ólafsson gjaldkeri, Jón
Sigurðsson og Oddur Ólafsson, Reykjalundi. Varamenn: Arinbjörn
Kolbeinsson, Guðmundur Karl Pétursscn og Ólafur Björnsson.
Húsráð Domus Medica fjallar um sameiginleg mál, er varða há-
bygginguna og hlut hennar í lágbyggingunni. Eftirtaldir fulltrúar eiga
sæti í ráðinu, sem kosið er til tveggja ára. Kjörtímabil hófst í maí 1967:
FRÁ NESSTOFU H.F.: Bjarni Bjarnason, Guðmundur Björnsson
og Þórarinn Guðnason.
FRÁ „LÆKNUM OG TANNLÆKNUM í DOMUS MEDICA“: Ein-
ai Helgason, Hannes Þórarinsson og Þórður Eydal Magnússon. Vara-
menn: Jón G. Hallgrímsson, Kjartan Magnússon og Geir R. Tómasson.
FRÁ DOMUS MEDICA — SJÁLFSEIGNARSTOFNUN: Eggert
Steinþórsson.
FRAMKVÆMDASTJÓRN HÚSRÁÐS SKIPA: Guðmundur
Björnsson formaður, Eggert Steinþórsson varaformaður og Einar
Helgason ritari.
Að lokum vil ég fyrir hönd byggingarnefndar og húsráðs þakka
framkvæmdastjóra hússins, Friðriki Karlssyni, sem hafði umsjón með
byggingu hússins allt frá byrjun, fyrir ósérhlífni hans, trúmennsku
og hagsýni. Jafnframt þakka ég öllum þeim, sem af óeigingjörnum
hvötum hafa lagt hönd á plóginn við að koma byggingunni upp, og þá
fyrst og fremst Bjarna Bjarnasyni, formanni Domus Medica, sem mest
hafði beitt sér fyrir byggingu hússins og stóð alltaf í fremstu víglínu,
meðan á framkvæmdum stóð, og lét aldrei bugast, þótt næðingur léki
stundum um hann og aðra forráðamenn byggingarinnar.
Hafa ber í huga, að skýrslu sem þessa má túlka á ýmsa vegu, en
ég vona, að rétt sé með þær tölur farið, sem ég hef fengið í hendurn-
ar við samningu þessarar greinargerðar. En það, sem missagt kann
að vera, þá er skylt að hafa það heldur, er sannara reynist.
Fylgiskjal 1
Eftirtaldir aðiljar hafa á undanförnum árum staðið að bygg-
ingu stórhýsis við Egilsgötu hér í borg. Bygging þessi ber nafnið
DOMUS MEDICA.
Byggjendur eru þessir:
1) Domus Medica, sjálfseignarstofnun, skipulagsskrá 26. anríl
1960.
2) Nesstofa h/f.
3) Læknar í Domus Medica (einstaklingar).
Ofangreindir þrír aðiljar hafa ákveðið að stofna með sér samtök