Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 75

Læknablaðið - 01.02.1968, Side 75
LÆKNABLAÐIÐ 41 til þess að ljúka byggingu fyrrgreinds húss. Gera þeir því með sér eftirfarandi SAMNING: 1) Byggingin nefnist Domus Medica. 2) Eignarhlutföll í húsinu eru þessi: A. Domus Medica, sjálfseignarstofnun, er eigandi að útbyggingunni allri og hiuta af II. hæð í háhýsinu. B. Nesstofa h/f á IV. og V. hæð háhýsisins og hluta af I. hæð. C. Læknar í Domus Medica eiga III. hæð alla ásamt hluta aí I. og II. hæð. 3) Hver aðilji um sig tilnefnir þrjá menn í húsbyggingarráð, eða samtals níu menn, sem hefur yfirumsjón með byggingu hússins. Það ráð velur úr sínum flokki þrjá menn, einn úr hverjum hópi, til að annast byggingarstjórn og hafa umsjón í samráði við áður ráð- inn umsjónarmann. Er þeim þrem mönnum, með undirskrift ao- iljanna undir samning þennan,. veitt fullt og ótakmarkað umboo til þess að ganga frá lánaskjölum og veðsetja eignina í heild, að fengnu samþykki húsbyggingarráðs. Undirskrift þessara þriggja manna undir aðalskuldabréf og sérskuldabréf er bindandi fyrir heildarsamtökin. 4) Húsbyggingarráð skal á aðalfundi, sem haldinn er í byrjun hvers árs, sjá um, að lagðir verði fram fyrir heildarsamtökin endur- skoðaðir reikningar yfir byggingarkostnað. 5) Gefin verða út sérskuldabréf, með ábyrgð ríkissjóðs og borgar- sjóðs, að nafnverði allt að kr. 15.500.000.00. Heimilt er að veðsetja heildarbygginguna borgarsjóði og ríkissjóði með samhliða I. veð- rétti til tryggingar ábyrgðum þeim, sem þessir aðiljar kunna að taka á sig. 6) Ofangreindir þrír aðiljar, Domus Medica (sjálfseignarstofnun), Nesstofa h/f og Læknar í Domus Medica (einstaklingar), ábyrgj- ast innbyrðis lán þau, er tekin verða, í réttum hlutföllum við eign sína í húsinu. 7) Stjórn Domus Medica (sjálfseignarstofnun) og stjórn Nesstofu h/f undirrita samning þennan, en fyrir hönd Lækna í Domus Medica undirritar núverandi stjórn félagsins, sem hefur fengið til þess umboð. Reykjavík, 18. febr. 1965. F. h. sjálfseignarstofnunar Domus Medica Bjarni Bjarnason, Oddur Ólafsson, Bergsv. Ólafsson, Jón Sigurðsson. F. h. Nesstofu h/f. Þórarinn Guðnason, Guðm. Björnsson, Eggert Steinþórsson. F. h. lækna í Domus Medica (einstaklingar) Stefán Bogason, Hannes Þórarinsson, Kjartan Magnússon.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.