Læknablaðið - 01.02.1968, Page 75
LÆKNABLAÐIÐ
41
til þess að ljúka byggingu fyrrgreinds húss. Gera þeir því með sér
eftirfarandi
SAMNING:
1) Byggingin nefnist Domus Medica.
2) Eignarhlutföll í húsinu eru þessi:
A. Domus Medica, sjálfseignarstofnun, er eigandi að útbyggingunni
allri og hiuta af II. hæð í háhýsinu.
B. Nesstofa h/f á IV. og V. hæð háhýsisins og hluta af I. hæð.
C. Læknar í Domus Medica eiga III. hæð alla ásamt hluta aí
I. og II. hæð.
3) Hver aðilji um sig tilnefnir þrjá menn í húsbyggingarráð, eða
samtals níu menn, sem hefur yfirumsjón með byggingu hússins. Það
ráð velur úr sínum flokki þrjá menn, einn úr hverjum hópi, til
að annast byggingarstjórn og hafa umsjón í samráði við áður ráð-
inn umsjónarmann. Er þeim þrem mönnum, með undirskrift ao-
iljanna undir samning þennan,. veitt fullt og ótakmarkað umboo
til þess að ganga frá lánaskjölum og veðsetja eignina í heild, að
fengnu samþykki húsbyggingarráðs. Undirskrift þessara þriggja
manna undir aðalskuldabréf og sérskuldabréf er bindandi fyrir
heildarsamtökin.
4) Húsbyggingarráð skal á aðalfundi, sem haldinn er í byrjun hvers
árs, sjá um, að lagðir verði fram fyrir heildarsamtökin endur-
skoðaðir reikningar yfir byggingarkostnað.
5) Gefin verða út sérskuldabréf, með ábyrgð ríkissjóðs og borgar-
sjóðs, að nafnverði allt að kr. 15.500.000.00. Heimilt er að veðsetja
heildarbygginguna borgarsjóði og ríkissjóði með samhliða I. veð-
rétti til tryggingar ábyrgðum þeim, sem þessir aðiljar kunna að
taka á sig.
6) Ofangreindir þrír aðiljar, Domus Medica (sjálfseignarstofnun),
Nesstofa h/f og Læknar í Domus Medica (einstaklingar), ábyrgj-
ast innbyrðis lán þau, er tekin verða, í réttum hlutföllum við eign
sína í húsinu.
7) Stjórn Domus Medica (sjálfseignarstofnun) og stjórn Nesstofu h/f
undirrita samning þennan, en fyrir hönd Lækna í Domus Medica
undirritar núverandi stjórn félagsins, sem hefur fengið til þess
umboð.
Reykjavík, 18. febr. 1965.
F. h. sjálfseignarstofnunar Domus Medica
Bjarni Bjarnason, Oddur Ólafsson,
Bergsv. Ólafsson, Jón Sigurðsson.
F. h. Nesstofu h/f.
Þórarinn Guðnason, Guðm. Björnsson,
Eggert Steinþórsson.
F. h. lækna í Domus Medica (einstaklingar)
Stefán Bogason, Hannes Þórarinsson,
Kjartan Magnússon.