Læknablaðið - 01.02.1968, Page 77
LÆKNABLAÐIÐ
43
stofu h/f og lækna í Domus Medica fyrir hærri fjárhæð en urn
getur í 1) hér að framan. Skuldbindur Domus Medica sig til að
veita Nesstofu h/f og læknum í Domus Medica veðleyfi, hvenær
sem þeir óska þess, þannig, að þeir geti veðsett eignahluti sína
i fasteigninni.
4) Þegar helmingur af framangreindum lánum (allt að 15.5 millj.
kr.) hefur verið greiddur, skal Domus Medica skylt, ef óskað er,
að gefa Nesstofu h/f og læknum í Domus Medica heimildarskjöl
fyrir eignahlutföllum þeirra .til þinglýsingar. Að því er lækna í
Domus Medica snertir, er það skilyrði sett, að þeir óski allir eftir
slíkum heimildarskjölum.
Reykjavík, 1. marz 1965.
F. h. Domus Medica
Bjarni Bjarnason, Jón Sigurðsson,
Bergsv. Ólafsson.
F. h. Nesstofu h/f
Eggert Steinþórsson, Þórarinn Guðnason,
Guðm. Björnsson.
F. h. lækna í Domus Medica
Stefán Bogason,
Kjartan
Hannes Þórarinsson,
Magnússon.
F y 1 g i s k j a 1 4
SAMNINGUR
um eignaskiptingu milli Domus Medica — sjálfseignarstofnunar — og
Nesstofu h/f, svo og „lækna og tannlækna í Domus Medica“.
1) Domus Medica — sjálfseignarstofnun — er eigandi að 45,1% í
fasteigninni nr. 3 við Egilsgötu. Nánar tiltekið er eignarhluti sjálfs-
eignarstofnunarinnar þessi:
a) Allt lághýsið, sbr. þó tölulið 2 hér á eftir.
b) Bókasafnsherbergi, skrifstofa framkvæmdastjóra og hluti af
gangi á II. hæð aðalbyggingarinnar.
2) Nesstofa h/f og „læknar og tannlæknar í Domus Medica“ eiga
allt háhýsið, sbr. þó 1, b) hér að framan. Enn fremur hluta af
aðalanddyri með útidyrum, snyrtiklefa, símaklefa, sorpgeymsl-
um, hluta af hitaklefa og hluta af göngum í kjallara, allt í óskiptri
sameign.
3) Sköttum og opinberum gjöldum af fasteigninni og áhvílandi lán-
um skal skipt þannig, að Domus Medica greiðir 41,87%, en Nes-
stofa h/f og „læknar og tannlæknar í Domus Medica“ 58,13%, er
skiptist þeirra í milli eftir nánari útreikningum.
4) Nesstofa h/f og „læknar og tannlæknar í Domus Medica“ hafa
greitt kr. 100.000.00 — eitt hundrað þúsund krónur 00/100 — til
standsetningar á bókasafni og lesstofu og til húsgagnakaupa, en
allt þetta er eign Domus Medica — sjálfseignarstofnunar.
Þessi samningur er byggður á samningi milli eigenda, dags. 18.
febr. 1965, og tveim yfirlýsingum, sem báðar eru dags. 1. marz 1965,