Læknablaðið - 01.02.1968, Síða 95
CELBENIN er framleitt af
BEECHAM RESEARCH LABORATORIES.
UmboSsmaður: G. Ólafsson h.f. — Sími 2 44 18.
CELBENIN
Hið mikilvirka sýklalyf
Blóðtökudiskur, sem œtlað er, að Lister lávarður hafi notað. Diskur þessi er
einn þeirra, sem uppliaflega voru notaðir í Glasgow Royál Infirmary, og þar
var hann fram um 1880.
(Myndin er hér birt með leyfi frá The International College of Surgeons.J
Árið 1965 voru 100 ár liðin frá þvi Lister tók upp sýklavarnir í sambandi við
skurðaðgerðir. Hann varð þannig brautryðjandi að sýklavörnum eins og Þær
þekkjast við skurðaðgerðir nú á dögum. Tilkoma Celbenins markar einnig
tímamót í meðferð sýklasjúkdóma, en það er fyrsta penicillínlyfið, sem virkt
er gegn penicillínasamyndandi klasasýklum.
Celbenin er virkt gegn penicillínasamyndandi klasasýklum; það hefur deyð-
andi verkun á sýklana og er að heita má án eiturverkana. Það á þess vegna
vel við ýmsar ígerðir og bólgur, er klasasýklar valda, t. d. pneumonia, empy-
ema, septicaemia, osteomyelitis, endocarditis, infectiones post operationes og
svo framvegis. — Gjöf: 1 g í vöðva á 4—6 klst. fresti handa fullorðnum og
0,25—0,5 g i vöðva á 4—6 klst. fresti handa börnum.