Læknablaðið - 01.02.1968, Síða 97
LÆKNABLAÐIÐ
TILKYNNING
Evrópusamband um krabbameinsrannsóknir (The European
Associatíon for Cancer Research) var stofnað í Amsterdam,
Hollandi, 9. janúar 1968 af nefnd, sem falið var það verkefni
í Vínarborg á Evrópuþingi uni krabbameinsrannsóknir í júlí
1967.
Það er áform þessa sambands að halda þing vísindamanna
annað hvert ár. Hið fyrsta verður haldið í Sviss í október
1969.
Þeir, sem hafa lokið háskólaprófi eða hafa sambærilega
menntun, geta orðið félagar, hafi þeir gegnt föstu starfi við
krabbameinsrannsóknireða verið virkir þátttakendur í krabba-
meinsrannsóknum a. m. k. þrjú ár eða í öðrum rannsóknum
a. m. k. finun ár og hafi í síðara tilfellinu tveim árum verið
varið til krabbameinsrannsókna.
Árgjald, sem greiðist gjaldkera, mun verða um 20 gyllini
á ári.
Umsóknir um upptöku í sambandið sendist til ritara þess,
Dr. G. J. V. Swaen, Academisch Ziekenhuis Wilhelmina Gast-
huis, Pathologisch-Anatomisch Laboratorium, Amsterdam- Oud
West, Eerste Helmersstraat 104, Holland, sem veitir allar nán-
ari upplýsingar. Umsóknir verða teknar til athugunar af fram-
kvæmdaráði og stjórn sambandsins.