Læknablaðið - 15.04.1980, Síða 32
86
LÆK.NABLADID
rannsóknum og jafnframt þarf hann aö
læra að afla sér heimilda á læknisfræðibóka-
söfnum og þessi þáttur pjálfunarinnar f>arf
að leiða till f>ess að hann stundi áfranthald-
andi sjálfsnám,
g) öðlast hæfni til að starfa með og kenna
öðrum heilbrigðisstéttum,
h) kynnast þeirri tækni, sem beitt er í undir-
greinum lyflæknisfræðinnar og vera fær um
að beita einfaldari tæknibúnaði.
Skilyrði til framhaldsmenntunar í
lyflækningum á Islandi
Framhaldsmenntun lyflækna getur aðeins far-
ið fram á lyflæknisdeildum stórra deilda-
skiptra sjúkrahúsa.
Til pess að lyflæknisdeildir teljist hæfar til
að veita framhaldsmenntun purfa pær að
uppfylla eftirtalin almenn skilyrði:
1. Pær purfa að hafa á að skipa sérfræðingum
í öllum helstu undirgreinum lyflæknisfræði
og fleiri en tveir sérfræðingar purfa að vera
í stærstu undirgreinunum. Starfskilyrði und-
irgreinanna purfa að vera fullnægjandi,
bæði hvað snertir fjölda rúma á sérfræðing
og aðstöðu.
2. Pær purfa að taka við bráðveikum sjúkling-
um að minnsta kosti til jafns við sjúklinga
af biðlistum. Vel parf að vera búið að
stoðdeildurh og gagnkvæm fagleg sam-
vinna parf að vera á milli lyflæknisdeildar
og rannsóknadeilda, svo og milli Iyflæknis-
deildar og annarra klínískra sérdeilda.
3. Deildinni og sjúkrahúsinu í heild parf að
vera stjórnað pannig, að pað andrúmsloft
skapist, sem hvetur til framfara í læknis-
fræði og áhugi parf að vera á kennslu á
öllum stigum, frá læknanemum til sérfræð-
inga. Gott bókasafn parf að vera til staðar
og fullnægjandi lestraraðstaða.
Ef ofantalin skilyrði eru ekki fyrir hendi, er
hætt við að framhaldsstöður drabbist niður í
hreinar vinnustöður.
Ef lyfmæknir ætlar að starfa sem sérfræð-
ingur í undirgreinum lyflæknisfræði, parf
hann til viðbótar að afla sér aukinnar fræði-
legrar pekkingar í undirgreininni og auk pess
leikni í beitingu peirra sérstöku rannsóknar-
tækja og tækni, sem tilheyra henni.
Nefndin telur ekki skilyrði til framhalds-
náms í undirgreinum lyflæknisfræði á íslandi,
vegna pess meginvandamáls allrar framhalds-
menntunar í læknisfræði á íslandi, sem er
sjúklingafæðin.
Engin lyflæknisdeild uppfyllir öll pau al-
mennu skilyrði, sem talin eru upp hér að
framan, en nefndin álítur að prjár Iyflæknis-
deildir hafi sameiginlega góða möguleika á að
skapa fullnægjandi skilyrði fyrir framhalds-
nám í almennum lyflækningum, p.e. lyflæknis-
deild Borgarspítalans, Landakots og Landspít-
alans.
Nefndin álítur nauðsynlegt, að allar pessar
deildir verði nýttar til kennslunnar, par sem
pær hafa allar á að skipa sérfræðingum með
mismunandi reynslu og menntun, sem gefur
fjölbreytni í námið. Pað sem enn frekar mælir
með pátttöku allra priggja sjúkrahúsanna í
kennslunni er, að námsreynsla læknanna á
ekki að takmarkast við lyflæknisdeildirnar.
Vegna sjúklingafæðar er peim nauðsynlegt að
fá tækifæri til pess að kynnast lækningum á
öllum deildum sjúkrahúsanna allra og peir
purfa að kynnast náið peim rannsóknaaðferð-
um og tækni, sem beitt er í öðrum sérgreinum
en lyflækningum.
Stjórnun
Nefndin telur nauðsynlegt, að hver lyflæknis-
deild skipi einn sérfræðing í nefnd til pess að
stjórna og samræma kennsluna. Að öðru leyti
verði stjórn námsins í samræmi við tillögur
Árna fCristinssonar. (1)
Komið verði á víxlstöðukerfi, pannig að
allir kandidatar stundi sérnám á öllum spítölun-
um. Sá sem hyggst leggja stund á framhalds-
námið parf að hafa almennt lækningaleyfi,
pegar námið hefst.
Ætla má að u.p.b. 10 læknar geti stundað
námið samtímis og er pá gert ráð fyrir 4-5
stöðum á Landspítala, 2-3 á Borgarspítala og
1-2 á Landakoti. Æskilegt er að kandidatar
verði teknir inn í sérnámið á mismunandi
tímum.
Fyrirkomulag námsins
Læknir í framhaldsnámi skal vinna undir
eftirliti sérfræðinga við umönnun sjúklinga og
skal hann strax í upphafi fá vissa ábyrgð, sem
fer vaxandi eftir pví, sem á námið líður.
Mikilvægt er, að hann standi einnig vaktir og
fái vaxandi ábyrgð á að sinna bráðveikum
sjúklingum. Hann parf einnig að fá aðstöðu til
að fylgja eftir sjúklingum á göngudeild.
Læknirinn skal, meðan á námstíma stend-
ur, vinna með sérfræðingum í öllum helstu