Læknablaðið - 15.04.1980, Qupperneq 47
LÆKNABLADID
97
Haukur Kristjánsson
VINNUSLYS
Námskeið um atvinnusjúkdóma
LÆKNAPING 26. sept. 1979
Þegar rætt er um vinnuslys þarf aö gera sér
grein fyrir hvað við er átt.
Almannatryggingar ríkisins skilgreina sem
vinnuslys, ef einhver meiðist á leið til vinnu,
við vinnu eða á heimleið úr vinnu. Þetta getur
pýtt, að maður sem slasast á tröppunum heima
hjá sér, teljist hafa slasast í verksmiðju eða við
byggingarvinnu. Hér er pað sem sé trygginga-
sjónarmið sem ræður. Læknisfræðilegur skiln-
ingur er auðvitað annar. Þar er spurningin,
hvort viðkomandi hafi meitt sig verandi við
eitthvert ákveðið starf og hvort pað, sem slíkt,
hafi haft einhver áhrif.
í slysadeild Borgarspítalans höfum við reynt
að fylgja síðarnefndri skilgreiningu.
Líklega koma vinnuslys betur til skila í
læknaskýrslum en önnur, að undanskildum
untferðarslysum. Pvi veldur, að par koma til
tryggingabætur í langflestum tilvikum.
Afleiðing pessa verður, að verulegur hluti
skráðra vinnuslysa er tiltölulega lítilfjörlegur,
en pó eru peir, sem slasast alvarlega og jafnvel
missa lífið, óhugnanlega margir.
Mér hefur reynst erfitt að fá haldgóðar
upplýsingar frá öðrum löndum varðandi slys í
hinum ýmsu starfsgreinum. Þó virðist sam-
kvæmt peim fátæklegu heimildum, er mér hafa
áskotnast, að tíðni og stærð vinnuslysa hér sé
svipuð pví, sem gerist í peim löndum, er við
helst tökum mið af.
/ Slysadeild Borgarspítalans er vinnuslysum
skipt i 4 flokka:
1) Slys í verksmidju. Er pá ekki aðeins átt við
pað, sem við í daglegu tali nefndum verk-
smiðju, heldur og ýmiskonar fasta vinnu-
staði, svo sem frystihús, kjötvinnslustöðvar,
viðgerðaverkstæði o.s.frv.
2) Slys á sjó. Þar er um að ræða allvel
afmarkaðan flokk. Tekur hann til alls konar
slysa um borð í skipum og gildir jafnt um
pau, sem eru í höfn.
3) Slys íbyggingavinnu. Þar koma til allir, sem
slasast við bygginguna sjálfa, en ekki peir
Barst ritstjórn 10/01/1980. Sent í prentsmiðju 21/01/1980.
sem t.d. meiðast við smíði glugga og hurða
á verkstæði. Það verður verksmiðjuslys.
4) Önnur vinnuslys. Hér er um að ræða eins
konar ruslakistu og er pessi flokkur stærst-
ur. Væri nánari sundurgreining auðvitað
æskileg, en myndi kosta mikla vinnu.
Langflestir peirra, sem leita til Slysadeildar
vegna vinnuslysa, eru með minniháttar áverka,
en pó eru peir allmargir, sem mikið eru
slasaðir og hljóta varanlega örorku auk mikils
vinnutaps.
Ekki er nema hluti peirra, sem látast á
slysstað, fluttur á sjúkrahús, en samkvæmt
upplýsingum frá Öryggiseftirliti ríkisins urðu á
árunum 1970-1977 20 banaslys í sambandi við
vinnu, par af flest eða 8 talsins í bygginga-
vinnu.
Mjög er pað áberandi, hve mörg slys í
verksmiðjum eru af völdum véla. Einkum má í
pví sambandi nefna handarslys í trésmíðaverk-
stæðum. Koma par til hjólsagir, fræsarar,
vélheflar og afréttarar. Veldur petta oft tætt-
um sárum á fingrum og jafnvel amputationum.
Fylgir pá gjarnan meiri eða minni örorka. í
frystihúsum verða stundum alvarleg slys, t.d. í
sambandi við roðflettingarvélar, afhausunar-
vélar, flökunarvélar, snigla og færibönd. Hafa
par átt sér stað aflimanir, bæði á efri og neðri
útlimum. Annars eru óhrein sár eðlilega tíð
par, og leiða stundum til meiriháttar infektio-
na. Af öðrum verksmiðjuslysum má nefna
áverka af kembivélum í ullarverksmiðjum.
Þannig mætti lengi telja, enda iðnaður orðinn
margpættur og hætturnar að sama skapi.
Sjólys hafa verið algeng á Islandi allt frá
fyrstu tíð, enda landsmenn miklir sjósóknarar.
Lengi vel voru drukknanir af fiskiskipum ein
algengasta dánarorsök í landinu. Hér í raun-
inni um vinnuslys að ræða, pótt pau hafi
yfirleitt ekki verið talin til peirra. Hér hefur
orðið gleðileg breyting hin síðari ár. Hins
vegar eru sjómönnum búnar aðrar og nýjar
hættur um borð í skipum. Mest er pað í
sambandi við vélar t.d. skipavindur. Stundum
slasast menn við lestun. Fá ofan á sig pung