Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Blaðsíða 19
DV Fréttir föstudagur 9. mars 2007 19
RáðheRRaR með milljón á mánuði
þingmanns vega fundarhalda, ráð-
stefna, námskeiða, risnu og bókaö
og tímaritakaupa svo eitthvað sé
nefnt. Rétt er að taka fram að þing-
ið greiðir símakostnað, blaðaá-
skriftir og burðargjöld af þeim pósti
sem þingmenn senda af skrifstof-
um sínum.
Þó lýsingin gefi til kynna að um
starfskostnaðargreiðslur er að ræða
gefur framkvæmdin til kynna að
hér sé um laun að ræða, alla vega
eru greiðslurnar inntar af hendi
mánaðarlega og staðgreiðsla skatta
dregin af þeim. Þingmenn geta svo
framvísað kvittunum fyrir starfs-
kostnaði til að lækka skattgreiðsl-
urnar. Þingmaður með starfskostn-
að upp á til að mynda 23 þúsund
krónur á mánuði gæti því þegið 40
þúsund krónur af starfskostnaðin-
um sem hrein laun. Rétt er að taka
fram að þingmenn geta valið að fá
ekki mánaðarlegar starfsgreiðslur
heldur einungis endurgreidda þá
reikninga sem þeir leggja fram.
Milljón á mánuði
Ráðherrar eru tekjuhæstu þing-
mennirnir. Ráðherralaun þeirra eru
929 þúsund krónur á mánuði nema
hvað forsætisráðherra fær eina
milljón og þrjátíu þúsund krónum
betur. Forseti Alþingis nýtur svo
sömu kjara og ráðherrar.
Rétt eins og með þingmenn-
ina segja ráðherralaunin ekki alla
söguna. Allir ráðherrar fá 63 þús-
und krónur á mánuði vegna starfs-
kostnaðar frá Alþingi og ráðherr-
ar af landsbyggðinni fá 86 þúsund
króna húsnæðis- og dvalarstyrk.
Ólíkt þingmönnum fá ráðherrar
ekki ferðagreiðslur frá þinginu. Þeir
fá hins vegar bíl og bílstjóra auk
þess sem ráðuneytið greiðir fyrir
ferðir þeirra. Ráðherrar fá svo ríf-
legri dagpeninga en þingmenn.
145 prósenta hækkun
Laun ráðherra og þingmanna
hafa hækkað um 145 prósent frá
í júlí 1997. Þá er miðað við tekj-
ur þeirra eftir launahækkun sem
þeir fengu þetta árið. Eftir hækkun
nam þingfararkaupið 212 þúsund
krónum en hefur hækkað um 306
þúsund krónur síðan þá og nemur
nú 518 þúsund krónum. Ráðherr-
ar fengu 380 þúsund krónur í ráð-
herralaun eftir hækkunina 1997 en
hafa síðan hækkað um 549 þúsund
krónur og fá nú 929 þúsund krón-
ur. Forsætisráðherra hefur hækkað
mest í krónum talið, um rúmar 600
þúsund krónur. 1997 fékk forsætis-
ráðherra 418 þúsund krónur en fær
nú 1.030 þúsund krónur.
Á sama tíma og laun ráðherra
og þingmanna hafa hækkað um
145 prósent hefur launavísitalan
hækkað um 97 prósent. Verðbólgan
á sama tíma hljóðar upp á 48 pró-
sent.
Nær tíföld hækkun
Í kjarasamningum síðustu
ára hefur mikið verið rætt um að
hækka lægstu laun. Ef við berum
saman launaþróun þingmanna og
ráðherra kemur í ljós að þeir hafa
hækkað talsvert umfram þá launa-
lægstu.
Eftir kjarasamninga 1997 námu
lægstu taxtar samkvæmt kjara-
samningum Alþýðusambands Ís-
lands 61 þúsund krónum. Ári síð-
ar tóku gildi ákvæði kjarasamnings
um lágmarkslaun og í dag nema
þau 125 þúsund krónur. Hækkun-
in er 64 þúsund krónur á tíu árum
eða 105 prósent. Eins og að ofan
má sjá hafa þingfararkaup og ráð-
herralaun hækkað um 145 prósent.
Því má segja að ráðherrar og þing-
menn hafi fengið þriggja prósenta
hækkun fyrir hver tvö prósent sem
þeir lægst launuðu hafa fengið. Rétt
er að taka fram að hér er aðeins rætt
um þingmenn. Yfirborganir sem
fólk á lægstu laununum kann að
fá eru undanskildar en sömu sögu
er að segja um fastar yfirborganir
þingmanna og ráðherra.
Ef litið er til krónutöluhækk-
unar kemur í ljós að munurinn er
enn meiri. Þingmenn hafa hækk-
að um rúmar 300 þúsund krónur,
nær fimmfalt meira en lægstu laun.
Ráðherrar hafa hækkað um 549
þúsund krónur hátt í nífalt hærra
en lægstu laun. Laun forsætisráð-
herra hafa svo hækkað um 612 þús-
und krónur hátt í tífalt meira en
lægstu laun.
Alþingi við Austurvöll
Laun þingmanna og
ráðherra við austurvöll
nema á bilinu 625 þúsund
til 1.100 þúsund krónur á
mánuði. Þingfararkaup og
ráðherralaun hafa hækkað
50 prósent meira en
lægstu laun frá árinu 1997.
Þingfararkaup 517.639
Starfskostnaður 63.090
Ferðakostnaður 58.580
Húsnæðis- og
dvalarkostnaður 86.000
Formaður
stjórnmálaflokks 258.820
Samtals 984.329
Þingfararkaup 517.639
Starfskostnaður 63.090
Ferðakostnaður 58.580
Húsnæðis- og
dvalarkostnaður 86.000
Formaður
Þingnefndar 77.645
Samtals 803.154
Þingfararkaup 517.639
Starfskostnaður 63.090
Ferðakostnaður 45.220
Formaður
Þingnefndar 77.645
Samtals 703.594
Þingfararkaup 517.639
Starfskostnaður 63.090
Ferðakostnaður 45.220
Samtals 625.949
Starfskostnaður 63.090Starfskostnaður 63.090
Starfskostnaður 63.090
Samtals 992.085
Samtals 1.078.285Samtals 1.103.023
Ráðherralaun 928.995Ráðherralaun 928.995Ráðherralaun 1.029.933
Húsnæðis- og
dvalarkostnaður 86.200
Formaður
stjórnmálaflokks
steingrímur J. sigfússon
Formaður þingnefndar
Birkir Jón Jónsson
Formaður þingnefndar
Bjarni Benediktsson
Óbreyttur þingmaður
Ásta ragnheiður
Jóhannesdóttir
laun nokkurra þingmanna
Ráðherra
af höfuðborgarsvæðinu
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Landsbyggðarráðherra
Valgerður sverrisdóttir
Forsætisráðherra
geir H. Haarde
Súlurnar sýna þær greiðslur sem þingmennirnir eiga rétt á að fá.