Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Blaðsíða 31
Haukar
unnu ÍBV í
bikarúrslit-
um kvenna í
fyrra 29-25.
Segja má að þær
hafi farið Krísur-
víkurleið í úrslita
leikinn því þær unnu
Stjörnuna með eins
marks mun 24-23 og
síð-
an Val
25-18
þar sem
staðan
í hálfleik
var 14-3!
Einar Jóns-
son er þjálf-
ari Hauka
og þrátt fyrir
mikla reynslu
sem leikmaður
félagsins í hand-
bolta, þar sem hann
vann allt sem hægt
er að vinna, er þetta
fyrsti bikarúrslitaleikur
hans sem þjálfari.
„Mér lýst ágætlega á
leikinn. Við höfum verið að
spila vel í bikarnum og slegið
út Val og Stjörnuna og það má
eiginlega segja að það hafi verið
önnur stemming í bikarleikjun-
um hjá okkur og sem þjálfari hef
ég fundið það.“
Haukar hafa á að skipa mjög góðu
byrjunarliði þar sem Ramune Pek-
arskyte fer þar fremst í flokki. Þar er
á ferðinni mjög sterkur leikmaður í
vörn og sókn.
„Ég tel að styrkleikar okkar séu
vörn, markvarsla og hraðaupphlaup.
Í undanförnum leikjum hefur það
verið okkar styrkleiki. Við vorum að
fá á okkur of mikið af mörkum í byrj-
un Íslandsmótsins en í bikarleikjun-
um og í síðustu leikjum í deildinni
höfum verið að fá á okkur fá mörk.“
Grótta vann fyrri leik liðanna
með fimm marka mun 27-22 en liðin
skildu jöfn 18. febrúar 19-19.
„Ég óttast ekkert sérstakt í leik
Gróttu liðsins.Þær eru með góð-
an mannskap og styrktu sig vel fyrir
mótið. Fengu fimm nýjar stelpur inn,
endurheimtu þrjár og svo komu tvær
erlendar. Leikurinn verður sérstakur
fyrir mig þar sem ég er að fara í bik-
arúrslit sem þjálfari, maður finnur
að spennan er að magnast í hópnum
og við munum mæta tilbúnar.“
Einhvern tíma verður allt fyrst
Grótta er undir stjórn Alfreðs
Finnsonar sem gerði ÍBV að Íslands-
meisturum í fyrra. Grótta vann Fram
í 16 liða úrslitum 28-15 og síðan
Fjölni 34-11 í átta liða úrslitum. Þær
mættu ÍBV í undanúrslitum í Vest-
mannaeyjum og höfðu betur 29-28 í
miklum spennuleik.
„Fyrirfram þá telur maður að
Haukar verði sterkari. Við verðum
að spila vörn á laugardaginn en hún
hefur oftar en ekki verið okkar aðals-
merki. Við höfum verið í vandræð-
um sóknarlega, sérstaklega á móti 6-
0 vörn Haukaliðsins þar lendum við
í vandræðum.Haukar eru mikil vél,
þær spila góða vörn og eru með fínt
hraðaupphlaupslið og það er erfitt
að lenda í þeim.“
Grótta hefur þrisvar sinnum far-
ið í bikarúrslit en aldrei náð að landa
titlinum. Síðast fóru þær alla leið í
úrslitin árið 2005, þá undir merkjum
Gróttu KR. Haukar eru hins vegar
núverandi bikarmeistarar og þekkja
því hvað þarf til að vinna slíka leiki.
Það er búið að ganga vel hjá okkur
í bikarnum og í raun umfram vænt-
ingar. Strax á móti Fram fann mað-
ur að fólk hafði trú á okkur og að við
gætum gert góða hluti í bikarnum.
Leikurinn á móti Fjölni er ekki mark-
tækur en það var sterkt að vinna í Eyj-
um en við vorum heppnar þar. And-
lega var það mjög sterkt, við vorum í
erfiðu leikjaprógrammi þá en það er
alltaf sterkt að vinna undanúrslita-
leik á jafn erfiðum útivelli.“
Meðalaldur Gróttu liðsins er rúm
22 ár en hjá Haukum er hann einu ári
eldri. Alfreð segir þrátt fyrir að marg-
ar af sínum stelpum séu ungar eru
þær þó með mikla reynslu.
„Auðvitað óttast ég stressið í leik-
mönnum. Sem betur fer hafa flest-
ar af þessum stelpum spilað bikar-
úrslitaleik og ég vona að það hjálpi
þeim. En hefðin er Haukameg-
in. Þær eru búnar að fara í gegn-
um þetta milljón sinnum og vinna
þetta hundrað sinnum. Öll statít-
ik er Hauka meginn en á móti kem-
ur að við ættum að vera hungraðari
og langa í titilinn. Grótta hefur farið
þrisvar sinnum í bikarúrslit á síðustu
10 árun en aldrei unnið. En einhvern
tíma verður allt fyrst.“
Haukar hafa hefðina en Grótta
hungrið
Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals
segir að liðin séu áþekk í getu, þau
spili svipaðan handbolta og það sé
erfitt að spá fyrir um leikinn.
„Grótta hefur ekki ennþá unn-
ið stóran titil og vantar að fara yfir
þennan þröskuld að landa stórum
titli en það kæmi ekki á óvart ef það
myndi gerast á laugardag.
Það er reyndar rosalega erftitt að
spá í þennan leik af því að þessi lið
eru svo lík, spila svo líkan handbolta.
Haukar hafa reynsluna en í Gróttu
eru yngri og ferskari leikmenn. En
byrjunarlið Hauka er gríðarlega
sterkt og ef þær halda út í 60 mínútur
þá held ég að Haukar vinni.
Liðin eru frekar hæg og leggja
mikið uppúr sínum varnarleik.
Grótta er mjög sterkt lið varnarlega
séð, þær eru agaðar og skipulagð-
ar. Bæði liðin eru að spila 6-0 vörn
en markvarslan hefur verið sterka
hlið Gróttu. Hún hefur verið upp og
ofan hjá Haukunum í vetur en á móti
kemur að þegar Haukar ná að stilla
saman strengina varnarlega séð, þá
eru þær með mjög sterkt og öflugt
hraðaupphlaupslið. Þar sem Hanna
Stefánsdóttir og Erna Þráinsdóttir
fara fremstar í flokki.“
Ágúst segist vona að liðin slái af
varnarleiknum og leiki sóknarleik.
„Ég vona að liðin keyri upp smá
hraða í leiknum og það verði töluvert
skorað í leiknum en það gæti kom-
ið niður á skemmtanagildinu ef lið-
in spila sterka vörn. Þó það sé alltaf
gaman að sjá lið spila góða vörn.
Haukar eru svolítið háðar Ramune
Pekarskyte í sóknarleik sínum. Það er
mikið af einstaklingsframtaki í sókn-
arleik Hauka á meðan það er meiri
heildarbragur á sóknarleik Gróttu.“
Alfreð Finnson þjálfari Gróttu
hefur unnið titla sem þjálfari ÍBV
og veit því hvað þarf til. Einar Jóns-
son þjálfari Hauka er á sínu fyrsta ári
sem þjálfari í efstu deild kvenna. Ág-
úst telur að það muni ekki hafa áhrif
á laugardag.
„Haukar hafa mikla hefð á bak við
sig. Harpa Melsted, Hanna Stefáns-
dóttir, Ramune, Helga Torfadóttir og
fleiri hafa spilað marga svona leiki.
Ég held að einhverjar séu að hætta
eftir þetta tímabil þannig þær munu
koma dýrvitlausar í þennan leik. Að
sama skapi fóru Gróttustelpurn-
ar fyrir tveimur árum í bikarúrslit,
hafa upplifað stemminguna og eru
reynslunni ríkari en þá, þannig þetta
verður hörkuleikur.“ benni@dv.is
DV Sport föstudagur 9. mars 2007 31
Landar Grótta
sínum
fyrsta bikar?
Mikilvægur
hlekkur ramune
Pekarskyte
stórskytta Hauka
þarf að eiga
toppleik eigi
Haukar að landa
titlinum
Bikarúrslitaleikur kvenna fer fram
á laugardag. Grótta mætir þar
Haukum og geta unnið fyrsta stóra
titilinn í sögu félagsins. Haukar
eru núverandi bikarmeistarar og
hafa reynsluna fram yfir Gróttu.
SannkaLLaður
draumaúrSLita-
Leikur
Lykilleikmaður anna Úrsúla
guðmundsdóttir er lykilleik-
maður gróttu í vörn og sókn.