Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Page 45
THE MONKEY COFFEE Lægri skattur, meiri lífsgæði Áherslan á sérvalið kaffi og náttúruvernd Hefðbundin kaffirækt í Panama fer fram undir laufkrónum hitabeltistrjánna sem skapa kjöraðstæður og vernda gegn sníkjudýrum. Undanfarin ár hafa sumir kaffiræktendur horfið frá lífrænni ræktun (ecological) og hafið ræktun á skipulögðum svæðum serm eru óvarin gegn sólinni. Afköstin hafa aukist – en á kostnað náttúrunnar. Þessar aðferðir kalla á meira magn af skordýraeitri og tilbúnum áburði. Afleiðingarnar eru upplástur jarðvegsins og skaði fyrir lífríki villtra dýra. 90,75 stig Hettuapinn (Cebus Capucinus) Hettuapinn heldur til á kaffiekrum okkar á eldfjallasvæðinu í Paso Ancho. Hár hans er ljóst á öxlum og hluta höfuðsins en nafn hans er dregið af svörtu munkahettunni á kollinum. Honum líður best í hitabeltistrjánum. Ávextir, kryddaðir ýmsum smádýrum, eru eftirlætisrétturinn, en á haustin borðar hann kaffibaunir. Hettuapinn hjálpar vexti og viðgangi skógarins með því að dreifa fræjum kaffitrjánna og annarra plantna. Ef hettuapanum er ógnað sveiflar hann sér milli trjánna og hristir greinarnar. Náttúrulegir óvinir hettuapans eru ránfuglar og kyrkislöngur. Hettuapinn er bráðgáfuð skepna. Hann er fljótur að læra og verða bændurnir að gæta þess að skjóta ekki úr byssum í návist hans því dæmi eru um að aparnir hafi skotið á húsbændur sína eftir að hafa apað eftir þeim skotfimina. Búgarðurinn okkar, Carmen-býlið, hefur hlotið viðurkenninguna „ECO-OK“ frá samtökum um vernd regnskóga í New York. Kaffið er ræktað í forsælu trjánna í Paso Ancho-dalnum í hlíðum Baru-eldfjallsins. Dökkur og gljúpur eldfjallajarð- vegurinn skapar kjöraðstæður fyrir ræktun okkar afbrigðis af Arabica-baununum. Forsæluræktað kaffi (Shade Grown Coffee) hefur yfir sér blómaangan og er milt á bragðið. Útsölustaðir: Hagkaup, Nóatún, Fjarðarkaup, Melabúðin, Krambúðin, Kjötborg, Aðalkaup Vogum, Bakarinn á Ísafirði, Samkaup úrval og KS Sauðárkróki. Umboðsaðili: Kaffi Latino ehf. sími 517-1720 • 864-7460 • 866-4639 Apakaffið er náttúruræktað úrvalskaffi úr Arabica-baunum frá eldfjallahlíðum Panama (um 1900 m yfir sjávarmáli). Uppskeran er sérvalin og aðeins lítið magn er brennt í hvert sinn til að tryggja ferskleika. Stofn hettuapa býr í skóginum við búgarðinn og nýtur verndar bændanna. Valið besta náttúruræktaða (ecological) kaffið í heiminum árið 2005. (Seattle, Washington USA 2005) Lenti í öðru sæti sem eitt sérstæðasta kaffið í heiminum árið 2006. (Charlotte, North Carolina USA, apríl 2006) Síðustu fimm ár (2001–2006) hefur apakaffið verið valið ein af þremur bestu kaffi- tegundum á alþjóðlegu kaffismökkunarsýningunni sem haldin er í Panama í apríl ár hvert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.