Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Page 56
föstudagur 9. mars 200756 Tónlist DV
Nýjasta afurð rokkarana í Mín-us er væntanleg í verslanir
16.apríl næstkomandi. Beðið hefur
verið með mikilli eftirvæntingu eftir
nýju efni frá hljómsveitinni en sein-
asta breiðskífa þeirra kom út árið
2003. Hún bar nafnið Halldór Lax-
ness og vakti verðskuldaða athygli
hér heima sem og erlendis. Áður hafa
Mínus gefið út plötuna Hey, Johnny!
árið 1999 og Jesus Christ Bobby árið
2001.
Nýja platan heitir The Great Nort-
hern Whalekill. Titillinn er skýrskot-
un til Pantera plötunnar The Great
Southern Trendkill sem kom út árið
1996. Meðlimir Mínus hlustuðu allir
mikið á þá plötu og hafa alla tíð ver-
ið undir miklum áhrifum frá Texas-
rokkhundunum í Pantera. Vanga-
veltur voru uppi á sínum tíma að
skýra plötuna Flugstöð Eiríks Hauks-
sonar en The Great Nortern Whalek-
ill varð ofan á.
Upptökustjórinn unnið með Tool
og Weezer
Platan var tekin upp í Los Ang-
eles í desember á síðasta ári og var
það enginn annar en Joe Baresi sem
stjórnaði upptökunum. Hann stjórn-
aði meðal annars upptökum á nýj-
ustu plötum Queens of the Stone Age
og Tool. Þá stjórnaði Baresi einnig
upptökum á plötunni Pinkerton
sem var önnur breiðskífa nördarokk-
aranna í Weezer.
Nýrra og hlýrra hljóð
Öll platan er tekin upp á ana-
log eða teip sem gefur henni ann-
að hljóð en hefur verið á fyrri plöt-
um hljómsveitarinnar. Baresi hefur
unnið mikið með analog upptökur
en það gefur plötunni mun míkra og
þægilegra hljóð en var á fyrri plötum
sveitarinnar þar sem hljómurinn var
meira skerandi.
Það var íslendingurinn Stein-
gímur Höskuldsson sem sá um eft-
irvinnsluna á plötunni. Steingrímur,
eða Hösskí eins og hann er kallað-
ur, er búsettur í Los Angeles og hefur
unnið með tónlistarfólki á borð við
Noru Jones, Tom Waits og íslands-
vininum Mike Patton úr hljómsveit-
unum Fantomas og Faith No More.
Það eru því fagmenn sem hafa unn-
ið að öllum hliðum plötunnar og má
búast við gæðagrip.
asgeir@dv.is
New York-rappsveitin Beastie
Boys hafa staðfest komu sína á
Hróaskelduhátíðina í ár en hún fer
fram dagana 5. til 8.júlí næstkom-
andi. Beastie Boys hafa einu sinni
áður komið fram á hátíðinni en það
var árið 1998. Þá hafa Las Vegas-
rokkararnir í hljómsveitinni The
Killers einnig staðfest komu sína.
Sveitin var stofnuð árið 2002 og hef-
ur slegið rækilega í gegn með plöt-
unum Hot Fuzz og Sam´s Town.
Fjöldi annara þekktra tónlistar-
manna hafa þegar staðfest komu
sína á hátíðina og þar á meðal hin
alíslenska Björk. Þá hafa einn-
ig staðfest komu sína bandaríska
rokksveitin Red Hot Chille Peppers,
breska sveitin The Who, bandaríska
svetin Slayer, bandaríska sveitin My
Chemical Romance og sænsku ís-
landsvinirnir Peter Bjorn and John.
Í rafræna tónlistargeiranum eru
helstu nöfnin sem hafa skráð sig
Basement Jaxx frá Bretlandi og Dj
Tiesto frá Hollandi. Basemennt Jaxx
verða þó poppaðari með hverju ár-
inu sem líður en Dj Tiesto er meðal
þekktari trance-tónlistarmönnum
heims.
allar nánari upplýsingar um
hátíðina er hægt að nálgast inn á
www.roskilde-festival.is.
asgeir@dv.is
Sífellt bætist í hóp stórra tónlistar atriða á Hróaskelduhátíðinni í
ár og er dagskráin farin að líta mjög vel út
Nýjasta plata rokkhljómsveitarinnar Mínus er væntanleg í verslanir 16.apríl næstkom-
andi. Platan innheldur 11 lög og er nafn hennar skýrskotun í gamla Panthera-plötu.
The GreaT
NorTherN
Whalekill
The Great Northern
Whalekill
Lagalisti -
ekki í réttri röð
Shoot The Moon
Throw Away Angel
Black And Brused
Weekend Lover
The Futurist
Cats Eyes
Kiss Your Self
Not Afraid
Rip It Up
Shadow Heard
Rhythm Cure
Kröftugur á sviði
Platan kemur út sama dag og
Björgin Halldórsson PaBBi
krumma á afmæli
All Saints
sparkað
Breska stúlknabandinu All Saints
hefur verið sparkað af útgáfufyrir-
tækinu Parlophone. Ástæðan er sú
að endurkoma hljómsveitarinnar
með plötunni Studio 1 hefur ekki
gengið vel. Þrátt fyrir mikla mark-
aðssettningu á þremur fyrstu smá-
skífum sveitarinnar hafa lögin ekki
náð vinsældum af neinu ráði. Par-
lophone gaf frá sér yfirlýsinguna
þess efnis að bæði hljómsveitin og
fyrirtækið væru stollt af plötunni en
samstarfið hafi ekki gengið upp.
Vill hjápla
Britney
Ofurpródúserinn Timbaland
hefur boðist til að hjálpa poppsöng-
konunni Britney
Spears að koma
tónlistarferli sín-
um á réttan kjöl.
Timbaland
sem heitir réttu
nafni Timothy Z.
Mosley er með
heitari pródús-
entum í heimi
í dag og aðal maðurinn á bakvið
Justin Timberlake og Nelly Furtado.
Timbaland hefur þá beðið Timber-
lake um að hjálpa sér við að koma
Britney á réttan kjöl og hefur hann
tekið vel í það. „Ég finn til með
henni og þetta veldur mér mikl-
um áhuggjum. Ég vill bara hjálpa
henni. Ég er bara þannig gaur,“ segir
Timbaland.
Vill Pink Floyd
endurfund
Roger Waters fyrrverandi söngv-
ari stórsveitarinnar Pink Floyd vill
að bandið taki saman aftur. Waters
segir að endurfundur þeirra félaga á
Live8-tónleikunum 2005 sé kveikj-
an. „Það var mjög mikilvægt fyrir
mig að taka þátt í Live8-tónleikun-
um. Það var frábært að vera á svið-
inu með hinum þremur strákunum.
Ef mér byðist eitthvað annað gigg í
þeim dúr myndi ég taka því. Ef það
væri eitthvað meira en bara nokkur
lög væru samt kannski vandamál.
Samband okkar er einungis við-
skiptalegs eðlis,“ segir Waters.
Beastie Boys
spila öðru sinni á Hróaskeldu í sumar
the Killers
Verða á skeldunni
Beastie Boys og The Killers á Hróarskeldu