Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2007, Blaðsíða 62
föstudagur 9. mars 200762 Síðast en ekki síst DV
Í dagsins önn
veðrið ritstjorn@dv.is
SunnudagurLaugardagur
8
8
5
10
5
8
8
10
55
0
3
4
4
3
4
0
1
12
20
20
15
25
13
8
10
18
1315
1
2
3
5
4
5
3
1
00
Bjarg úr glerskála
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins skrifar
eitraða pillu á
heimasíðu sína
þar sem hann
veltir fyrir sér
innri kergju á
milli VG ann-
ars vegar og
hinsvegar Sam-
fylkingarinnar.
Bendir hann á
orð Hrannars Björns Arnarsson-
ar, fyrrum borgarfulltrúa Sam-
fylkingarinnar, sem vitnisburð en
hann skrifar pistil þar sem hann
hnýtir í VG. Aftur á móti virðist
Björn ingi hafa gleymt hótunum,
Sivjar Friðleifsdóttur Heilbrigð-
isráðherra, þar sem hún hótar
beinlínis stjórnarslitum verði
ekki fallist á auðlindarákveðið
í stjórnaskráarnefnd. Sigurður
Kári Kristjánsson þingmaður
Sjálfstæðisflokksins heimtaði í
kjölfarið afsagnar Sivjar og benti
á að hótunin væri grafalvarleg.
Maður hlýtur að spyrja í kjölfarið
hvort menn séu ekki að henda
steinum úr glerhúsum. Jú eða
bjargi úr glerskálum.
Bindislaus eða
meðvitundarlaus
Sumir muna eftir deilunni sem
blossaði á milli ungra þing-
manna og
þeirra eldri
þegar deilt
var um hvort
þeir ættu að
bera bindi í
þingsölum eða
ekki. Sú barátta
tapaðist enda
hátíðleikinn
og fundarsköp ofar tískuhyggju
þingmanna. Þess vegna varð
engum brugðið þegar Magnús
Stefánsson félagsmálaráðherra
Framsóknarflokksins fékk aðsvif
og viðbrögð þingmanna. Hann
gekk frá púltinu og mátti sjá Jón
Sigurðsson Iðnaðarráðherra
snarstoppa og búast undir að að-
stoða hann. Sólveig Pétursdóttir
aftur á móti horfði rólega á eftir
honum. Stóð upp og sló bjölluna
til þess að kalla næsta ræðu-
mann upp í púlt. Það er ljóst að
fundarsköp eru ofar öllu á þingi,
hvort sem menn eru bindislausir
eða meðvitundarlausir.
Bjórinn bjargar ofvita
Ofvitinn og formaður Samtök
Hernaðarandstæðinga, Stef-
án Pálsson gerir hassreykingar
Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur að umtalsefni á heimasíðu
sinni. Hann segir farir sínar ekki
sléttar því hann reyndi einu
sinni að prófa hið forboðna efni.
Hann fór víst í partí á mennta-
skólaárum en þar prófaði hann
að reykja. Aftur á móti virðist
einhver hafa sagt honum að það
mætti ekki drekka ofan í reykinn.
Sjálfur grunar hann dópsalann
um að hafa selt sér leir úr tóms-
stundarhúsinu því hann fann
engin áhrif. Allt kvöldið starði
hann á bjórinn og að lokum
hafði pirringurinn yfirhönd-
ina og hann drakk vínið. Hann
vandar ekki kvöldið kveðjurnar
og segir það hafa verið dýrt og
hundleiðinlegt.
Að lokum segir hann, „Kannski
helvítis brennivínið hafi orðið til
að bjarga manni frá fíkniefna-
djöflinum? Hvað veit ég?“
Geir Ólafsson telur það guðlega
forsjón að hann varð ekki fyrir snjó-
flóði í Ísafjarðardjúpi þegar hann
varð veðurtepptur á Steingríms-
fjarðarheiði, síðastliðinn mánudag.
Geir átti erindi við mennstkælinga
á Ísafirði og ætlaði sér að skemmta
þeim í leiðinni. Hann lagði af stað
frá Reykjavík í blíðviðri. Veður gerð-
ust válynd fljótlega eftir að komið var
fram hjá Brú í Hrútafirði. Þegar Geir
var kominn áleiðis inn á Steingríms-
fjarðarheiði var hríðin svo svört að
hann gat ekki rakið eigin hjólför til
baka, eftir að hann ákvað að snúa
við.
Löggan hafði áhyggjur
”Mér hlýnaði virkilega um hjarta-
ræturnar þegar lögreglan á Ísafirði
hringdi. Þeir vissu að ég var á ferð-
inni og höfðu áhyggjur af mér,” seg-
ir Geir. Hann segir að þegar hann
komst aftur niður af Steingrímsfjarð-
arheiðinni og inn í símsamband hafi
síminn hringt og hringt. “Björgunar-
sveitin var að gera sig klára til þess að
leita að mér, en blessunarlega kom
ekki til þess að þeir þyrftu að fara af
stað.”
Geir telur að ef hann hefði verið
ögn fyrr á ferðinni þá hefði hann lík-
ast til orðið fyrir snjóflóði sem féll á
næsta nágrenni. “Vegurinn lokaðist
náttúrulega, þannig að ég hefði alltaf
orðið veðurtepptur.”
Á grand Cherokee
”Ég hringdi í pabba frá Brú í
Hrútafirði og lét hann vita hvar ég
væri staddur. Ég ek venjulega ró-
lega og gæti að öllu. Auk þess stend
ég alltaf við það sem ég segi þannig
að það var engin spurning að keyra,”
segir hann.
Geir ekur um á Grand Cherokee
jeppa á góðum heilsársdekkjum og
segist fær í flestan sjó á jeppanum.
“Þegar ég kom á Hólmavík þá var
alveg ljóst að veðrið hafði tekið að
versna til muna. Ég hafði samt eng-
ar fréttir heyrt um að það væri ófært
í Ísafjarðardjúpinu, hvað þá að það
hefðu fallið snjóflóð, þannig að ég
hélt bara áfram.”
Tók flugið
Til þess að standa við skuldbind-
ingar sínar við menntaskólanema á
Ísafirði tók Geir það til bragðs að aka
aftur alla leið til reykjavíkur. “Ég var
kominn suður eitthvað í kring um
miðnættið. Svo rauk ég á lappir á
þriðjudagsmorgninum og náði flug-
inu vestur.”
Hann var svo fastur á Ísafirði sök-
um veðurs og komst heim til sín að
lokum á miðvikudaginn. “Ég er ákaf-
lega þakklátur fyrir alla þá umhyggju
sem Ísfirðingarnir sýndu mér. Ég tel
að þetta hljóti að vera vegna þess að
ég hef gefið eitthvað gott af mér. Ég
ætla að halda því áfram.”
Skorar á ráðherra
:Geir er nokkuð niðri fyrir vegna
símsambandsins á þjóðvegunum.
“Ég hreinlega skora á samgöngurá-
herra að gera bragarbót í þessum
málum. Það er alveg stórhættulegt
að vera að þvælast á þjóðvegunum.
Það er allra veðra von og ekkert sím-
samband.”
Hann segir að Vestfirðingar eigi
miklu betra skilið og segir ástandið
vera fyrir neðan öll velsaæmismörk.
“Það er líka miklu hættulegra að
símasambandslaus í vandræðum á
fáfarinni heiði heldur en á fjölfarinni
heiði eins og Holtavörðuheiði.
geir Ólafsson, söngvari og skemmtikraftur, komst í hann krapp-
ann í illviðri á Steingrímsfjarðarheiði á mánudaginn. Hann
þakkar Vestfirðingum öllum fyrir umhyggju sem honum var
sýnt. Geir skorar á samgönguráðherra að bæta farsímasamband
á þjóðvegum.
Geir Ólafsson í
kröppum dansi
...Halldóri Hermannssyni að hafa
verið á sjó. Halldór á það
sameiginlegt með...
...Halldóri Halldórssyni að búa á
Ísafirði. Halldór Halldórsson á
það sameiginlegt með...
...grími atlasyni að vera bæjar-
stjóri á Vestfjörðum. grímur á
það sameiginlegt með...
...Einari Bárðarsyni að vera
tónleikarahaldari. Einar Bárðar-
son á það sameiginlegt með...
...Höllu Vilhjálmsdóttur að hafa
grátið í X-Factor. Halla á það
sameiginlegt með...
...Fjölni Þorgeirssyni að hafa
slegið sér upp með breskri
stórstjörnu. Fjölnir Þorgeirsson á
það sameiginlegt með...
... Sigurbirni Bárðarsyni vera
hestamaður. Sigurbjörn Bárðar-
son á það sameiginlegt með...
...Ingibjörgu Pálmadóttir að vera
rauðhærður. Ingibjörg Pálma-
dóttir á það sameiginlegt með...
...Magnúsi Stefánssyni að hafa
fengið aðsvif á alþingi.
Tengsl
Magnús Stefánsson
á það sameiginlegt með...
Skemmtikraftur geir Ólafsson lomst í hann
krappann á stingrímsfjarðarheiði á mánudaginn.
Hann skorar á samgönguráðherra að laga
símsamband á þjóðvegunum.