Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Blaðsíða 8
Alls fluttu 620 manns frá Vestfjörðum á fimm árum, frá 1999 til 2004. Þetta er 7,5 prósent fækkun og svipar til þess að ríflega fjórtán þúsund manns flýðu höfuðborgarsvæðið. Fólksflótti frá Vestfjörðum er helsta einkenni bágborins atvinnuástands. Sturla Böðvarsson lofaði uppbygg- ingu á neyðarfundi árið 2004. Valgerð- ur Sverrisdóttir gerði áætlun vorið 2005 um að verja andvirði blokkarí- búðar til að stuðla að fólksfjölgun á svæðinu. Íbúarnir óttast framtíðina. Baráttuhugur dvínar Uppgangur hefur verið hjá sprota- fyrirtækinu 3xStál á Ísafirði, sem er tæknivædd stál- og blikksmiðja. Fyrir- tækið seldi nýlega 51 prósent af hluta- fé til aðila í Reykjavík. Heimamenn hafa nú áhyggjur af því að fyrirtæk- ið fari frá Ísafirði, á svipaðan hátt og Pólstækni, sem Marel keypti og er nú á leiðinni suður. „Fólk hefur áhyggjur af því að þetta fari eins og með Mar- el,“ segir Guðrún S. Gissurardóttir hjá Vinnumálastofnun á Vestfjörðum. Gísli Halldór Halldórsson, bæjar- fulltrúi á Ísafirði, hefur af því áhyggj- ur að sá baráttuhugur sem ríkt hafi hjá íbúum á Vestfjörðum fari þverr- andi. „Það er mín tilfinning að fólk sé að gefast upp á bjartsýninni. Það hefur ekkert tillit verið tekið til hug- mynda um uppbyggingu sem komið hafa fram,“ segir hann. Laun eru lægri en í Reykja- vík og vör- ur dýrari. „Meira að segja Pól- verjarn- ir sem hingað fluttu leita nú til höfuðborg- arinnar. Þeir freista gæfunnar annars staðar í von um betri lífskjör,“ segir Gísli. Skýringar Sturlu Þann 1. mars árið 2004 hélt bæj- arstjórn Ísafjarðar neyðarfund með þingmönnum Norðvesturkjördæm- is. Þar var aðgerðarleysi stjórnvalda við uppbyggingu á Vestfjörðum rætt. Sturla Böðvarsson, samgönguráð- herra og fyrsti þingmaður kjör- dæmis- ins, sagði við þetta tækifæri að hann kynni ekki skýringu á því hve hægt hafi miðað í uppbyggingu á svæðinu. Í sjónvarpsfréttum eft- ir fundinn sagði Sturla að fljótlega yrði lagt á ráð- in um hvernig bregðast skyldi við ástandinu. „En það er auðvitað miður ef opinberum störfum fækk- ar, það munum við þing- menn skoða sérstaklega,“ sagði ráðherrann. Um 250 manns hafa flutt frá svæð- inu frá því neyðarfundur- inn var haldinn. Vaxtasamningur Valgerðar Vorið 2005 kom Val- gerður Sverrisdóttir, þá iðnaðarráðherra, fram með svokallað- an vaxtasamning þar sem gert var ráð fyrir fjárframlögum til uppbygging- ar á Vestfjörðum. Í samningnum var gert ráð fyrir að 38 milljónir yrðu nýtt- ar til þess að fjölga íbúum á svæðinu um 150 frá 2005 til 2008, samkeppnis- hæfum fyrirtækjum fjölgaði og svæðið yrði gert aðlaðandi fyrir fjárfesta. Rík- ið lagði til tuttugu milljónir, Ísafjarðar- bær og fyrirtæki lögðu til tíu milljónir og ýmsar ríkisstofnanir lögðu til vinnu metna á átta milljónir. Í framsögu á borgarafundi á Ísa- firði á sunndag benti Einar Hreins- son á að framlag ríkisins á þriggja ára tímabili væri tæpast andvirði blokkar- íbúðar í Reykjavík, og að árangur síð- ustu byggðaáætlunar væri 375 brott- fluttir einstaklingar. Borgin veitir styrk Kvenréttindafélag Íslands fær styrk frá Reykjavíkurborg upp á eina milljón króna á ári næstu þrjú árin til þess að styrkja starfsemi félagsins og skrif- stofu þess. Þetta var samþykkt ein- róma á fundi borg- arráðs fyrir helgi. Kvenréttindafélagið var stofnað árið 1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og var hún fyrsti formaður félagsins og hefur félagið unnið að því að bæta réttindi kvenna síðan. Markmið félagsins við stofnun var að starfa að því að íslensk- ar konur fengju fullt stjórn- málajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karl- menn. Félagið varð eitt hundrað ára á þessu ári. þriðjudagur 13. mars 20078 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Nefbraut konu Maður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í byrjun janúar árið 2005. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa slegið konu tvisvar í andlitið með þeim afleiðingum að hún nefbrotnaði, bólgnaði, marðist og fékk heilahristing. Maðurinn játaði sök sína greið- lega. Samkvæmt sakavottorði hafði hann árið áður verið svipt- ur ökuréttindum í eitt og hálft ár. Þótti dóminum tveggja mánaða skilorð hæfileg refsing en mikill dráttur hafði orðið á málinu án skýringa. Ekki refsað Tveimur ungum mönnum var ekki refsað fyrir þjófnaði sem þeir gerðust sekir um snemma vors árið 2005. Menn- irnir voru sautján og átján ára þegar brotin voru framin en þeir bru- tustu inn í gróður- hús í Hveragerði, með því að fjarlægja eina rúðuna, og stálu þaðan átta gróður- húsalömpum. Þá brutust þeir inn á annan stað með kúbeini og stálu þaðan 35 lítrum af bensíni sem þeir notuðu svo til þess að hella á bíl annars þeirra. Mennirnir játuðu brot sín greiðlega. Nærri tvö ár eru liðin frá brotinu og segir í dómnum enga skýringu vera á drættinum. Einnig var tek- ið tillit til þess að mennirnir höfðu á þeim tíma snúið lífi sínu til betri vegar og til þess hversu ungir þeir voru þegar þeir frömdu brotin. Kaupþing kostar prófessor Stúdentaráð HÍ gleðst yfir því að Kaupþing og Háskóli Íslands hafi náð samningum um ótíma- bundna kostun á stöðu prófess- ors í Viðskipta- og hagfræðideild skólans. Um er að ræða stöðu Dr. Friðriks Más Baldurssonar, en hann hefur starfað sem prófessor við deildina frá árinu 2003. Styrk- urinn kemur í kjölfar verulegrar hækkunar framlags til Háskólans úr ríkissjóði. Dagný Ósk Aradóttir formað- ur stúdentaráðs sagði í samtali við DV að sér fyndist þessi styrk- ur góður. Alþingi eigi þó eftir að samþykkja gerninginn. „Ég tel að það sé gott mál að atvinnulífið sé að styrkja HÍ, það er í samræmi við langtímaáætlanir skólans.“ Umhverfisvakning og róttæk jafn- réttisstefna hafa skilað sér í fylgis- aukningu Vinstri-grænna á sama tíma og Samfylkingin tapar fylgi, seg- ir Baldur Þórhallsson, stjórnmála- fræðingur. Hann segir Samfylking- una líka hafa spilað upp í hendurnar á Vinstri-grænum. Kaffibandalag- ið á þingi hafi gefið stefnu Vinstri- grænna aukið lögmæti. Baldur segir fimm atriði geta skýrt fylgisaukningu Vinstri-grænna. „Vax- andi umhverfisvernd og andstaða við stóriðjustefnu ríkisstjórnarinn- ar, auk róttækrar stefnu flokksins í jafnréttismálum, skilar sér í auknu fylgi,“ segir hann. Baldur telur það einnig hafa gagnast Vinstri-grænum að andstaða við stjórnina og þreyta gagnvart henni hafi aukist, þá leiti margir til þess flokks sem stend- ur fjærst ríkisstjórnarflokkunum. „Í fjórða lagi hefur Vinstri-grænum tek- ist að fá til liðs við sig öflugt fólk, sér- staklega öflugar ungar konur,“ segir Baldur. „Þá er ekki síður mikilvægt að flokkurinn hefur frá stofnun verið samkvæmur sjálfum sér. Hann hefur rekið nær óbreytta stefnu frá stofn- un. Það hefur leitt til þess að fólk ber traust til flokksins.“ Nokkrar ástæður eru fyrir því að mati Baldurs að fylgi Samfylkingar minnkar. Eitt er að flokkurinn hefur breytt um stefnu í umhverfismálum og í öðrum málum virðist stefnan óljós, hvort sem það sé rétt skynjun eða röng. Svipaða sögu er að segja af framboðslistum flokksins. „Sam- fylkingin hefur verið gagnrýnd fyrir litla endurnýjun. Ég er ekki viss um að það sé rétt en það er sú mynd sem kjósendum er gefin af Samfylking- unni.“ Loks segir Baldur að það kunni að veikja flokkinn hvernig Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður flokks- ins, talaði á fundi í Reykjanesbæ. „Þá kom það þannig út fyrir kjós- endum að flokksformaðurinn treysti ekki þingflokknum. Það má vera að Ingibjörg Sólrún hafi ekki meint það þannig en fréttaflutningurinn var á þá leið.“ Vinstri-grænir stækka stöðugt meðan fylgi Samfylkingar hrynur: Spilað upp í hendurnar á Vinstri-grænum Steingrímur J. Sigfússon Vinstri- grænir mælast með um og yfir fjórðungs fylgi í skoðanakönnunum. ÍbúðaraNdvirði til uppbyggiNgar Sigtryggur Ari JóhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Sturla Böðvarsson og Valgerður Sverrisdóttir hafa bæði lofað Vestfirðingum að gera bragarbót í atvinnumálum. Þó flýr fólk svæðið og baráttuvilji þeirra sem eftir sitja fer dvínandi. Borgarafundur um helgina gagnrýndi þetta aðgerðarleysi harðlega. 1999 2000 2001 2002 2003 2004 -6% -6% -6% 4% 4% 6% 0% hagvöxtur á Vestfjörðum á tímabilinu 1998-2004 var -6% Mannfjöldaþróun og hagvöxtur á Vestfjörðum 1998-2004 utanríkisráðherra Vorið 2005 lofaði Valgerður sverrisdóttir að leggja andvirði blokkaríbúðar til uppbyggingar á Vestfjörðum. síðan hafa 375 manns flutt brott. Fyrsti þingmaðurinn sturla Böðvarsson sagði á neyðarfundi á Ísafirði árið 2004 að nú myndu stjórnvöld einhenda sér í uppbyggingu fyrir vestfirði. margsvikin loforð segja íbúarnir. yfir Skutulsfjörðinn Fyrirtæki flýja Vestfirði og fólkið fer á eftir þeim. atvinnuleysi mælist lítið fyrir vestan en fólksflótti er mikill.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.