Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Blaðsíða 27
DV Bíó Þriðjudagur 13. mars 2007 27 Topp 10 Hlutir sem gerðust ekki um Helgina 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Leonardo DiCaprio fór ekki í sleik við íslenska stelpu Netlögga Steingríms J. gerði ekki rassíu á suðurnesjum. Klámhundar komu ekki til landsins og fóru í gufubað eins og stóð til. Fermingabæklingi Smáralindar var ekki dreift á Goldfinger. Íslendingar eignuðust ekki fótbolta- bullur, heldur handboltabullur. Ekkert fannst í garðinum hjá Gumma í Byrginu Páll Pétursson var ekki notaður. Búlgörsku ljónin átu ekki Júlla Kemp og Ingvar Þórðar. Eiður Smári skoraði ekki gegn Real Madrid. Bankarnir fóru ekki úr landi. Gefa út plötu í kjölfar kynlífshneykslis Fyrir helgi fór heldur svæsin ljós- mynd af rapparanum Mc Gauta í umferð á netinu. Gauti sem er í hljómsveitinni Skábræður var að gefa út sína fyrstu plötu um helg- ina og segist bara hlæja að því að myndin hafi ratað á ranga staði. Á plötunni sem ber heitið Ekki treysta vinum þínum má finna blöndu af rappi og rokki ásamt textum um vænissýki, kvenfólk og villt partí í sumarbústöðum. „Það hefur einhver sem er mjög illa við mig setta þetta inn á netið, en mér finnst þetta bara fyndið,“ segir rapparinn Gauti Þeyr Másson bet- ur þekktur sem Mc Gauti um heldur svæsna ljósmynd sem birtist af hon- um á tenglasíðunum, klam.is, b2.is og 69.is fyrir helgi. Á myndinni sést Gauti nakinn í heitum potti ásamt föngulegu kvenfólki í annarlegum stellingum. „Ég meina ég var bara skemmta mér í sumarbústað og svo kemur einhver með myndavél. Þetta átti aldrei að fara á netið en mér er svo sem sama, nenni ekki að velta mér upp úr einhverju svona,“ segir Gauti, sem viðurkennir að myndin hafi kannski birst á besta tíma, þar sem að hljómsveit hans Skábræður sendu frá sér sína fyrstu plötu um helgina. Platan heitir Ekki treysta vinum þínum og samanstendur bandið af Gauta sjálfum og félaga hans Jóhanni Degi Þorleifssyni, sem er þó sjaldnast kallaður annað en Jói Dagur. Geðveiki og stelpur helstu efnistök Ég sé um rappið en Jói um tón- listina undir, en svo skiptum við um hlutverk í einstaka lagi,“ segir Gauti og bætir því við að platan sé til- raunakenndur bræðingur milli hip- hop tónlistar og rokks. „Platan fjallar að mestu leyti um geðveiki og stelp- ur,“ en Gauti neitar því sjálfur að vera geðveikur. „Þetta eru bara persón- urnar sem ég bý til í textunum mín- um sem eru flestar hálf paranoid. Ég sem svo líka flesta textana mína þeg- ar ég er í skrýtnu skapi.“ Gauti verður 18 ára á árinu, en er búinn að vera lengi í rappinu. „Ég byrjaði að rappa árið 2001, þegar ég lá í flensu heima- fyrir,“ segir hann, en Gauti var á sín- um tíma talinn undrabarn í íslensku rappi. Félagsfræði og hjólabretti Íslenska rappið hefur átt undir högg að sækja undanfarin misseri en segir Gauti að sín kynslóð muni full- vissa fólk um að rappið sé langt í frá dautt. Þegar þeir félagar í Skábræðr- um eru ekki að vinna að rappi segir Gauti þá brasa margt. „Jói er í skóla að læra félagsfræði, en ég er bara að skapa list og renna mér á hjólabretti í frítímanum.“ Framundan er mikil spila- mennsku hjá strákunum en þeir hyggjast fylgja plötunni vel eft- ir. Ekki eru enn öll smáatriði kom- in á hreint varðandi útgáfutónleika, en þeir verða nánar auglýstir síðar. Skábræður-Ekki treysta vinum þín- um fæst í fataversluninni Smash í Kringlunni og kostar 1500 krónur. Þeir sem vilja heyra hljóðdæmi með bandinu geta skellt sér á myspace- síðu þeirra pilta, myspace.com/hip- hopmentalhospital. dori@dv.is. Skábræður - Ekki treysta vinum þínum Fæst í versluninni smash og kostar 1500 krónur. SKáBRæðuR Er alveg sama um kynlífs- hneyksli og segjast heldur ætla að spila á tónleikum. Fyrsta plata stúlknana í Amiinu kemur út 21. mars: Aðeins seld á Netinu og á tónleikum Strengjasveitin Amiina gefur út sína fyrstu breiðskífu þann 21. mars næstkomandi, hjá Bláskjá útgáfufyr- irtækinu.Platan hefur fengið nafn- ið Kurr og lauk upptökum á henni síðasta sumar, áður en hljómsveit- in hélt á tónleikaferð um Evrópu og Norður Ameríku. Amiina eyddi stórum hluta síðasta árs á tónleika- ferðalagi með hljómsveitinni Sigur Rós, en sveitirnar tvær hafa ferðast um allan heim saman síðustu árin. Stúlkurnar í Amiina hafa þegar leik- ið efni af plötunni á tónleikum og smáskífan Seoul var gefin út í lok síðasta árs á Evrópumarkaði. Kurr verður ekki seld í plötubúð- um, heldur verður hún einungis fá- anleg á vefsíðu sveitarinnar og á tónleikum, en sveitin heldur í tveggja vikna tónleikaferð um Bandaríkin og Kanada til þess að fylgja útgáfu plötunnar eftir í lok mánaðar. Sveit- in mun meðal annars koma fram á tónleikum Winsconsin, Chicago, Boston og Toronto. Amiina léku nýlega á vel heppn- uðum tónleikum til styrktar Varmár- samtökunum, en sveitin hefur sjálf tekið upp í hljóðveri Sigur Rósar, Sundlauginni. Frá því hljómsveitin var stofnuð árið 2004 hefur Amiina gefið út eina smáplötu sem nefnist AnimaminA. Amiina sveitin hefur ferðast með sigur rós um allan heim. Myndin umdeilda Fór um netið eins og eldur í sinu fyrir helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.