Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2007, Side 11
DV Fréttir þriðjudagur 13. mars 2007 11 Þrengir að robert Mugabe Stjórnmálamenn framtíðarinnar einsleitur hópur: Ungir stjórnmálamenn eru lít- ill og mjög einsleitur hópur sem aðskilur sig frá öðru ungu fólki. Þeir eru líka betur menntaðir, með hefðbundnari gildi og alvarlegri í hugsun. Þetta fullyrðir Louise Er- iksen, danskur félagsfræðingur í viðtali við blaðið Weekendavis- en og byggir á niðurstöðum rann- sóknar sinnar á bakgrunni félaga í ungliðahreyfingum danskra stjórn- málaflokka. Í rannsókninni kemur með- al annars fram að margir unglið- ar leggi stund á samfélagsgreinar í háskóla, búi í þéttbýli og eigi for- eldra sem eru virkir í stjórnmála- starfi. Louise bendir á að margir núverandi þingmenn landsins hafi komið úr ungliðahreyfingunum og haldi sú þróun áfram verði þing- menn framtíðarinnar sprenglært fólk sem hafi verið skólafélagar á háskólaárunum. Aðeins eitt prósent Dana á aldr- inum fimmtán til tuttugu og nýju ára eru meðlimir í stjórnmálaflokki samkvæmt grein Weekendavis- en um könnunina. En samkvæmt fyrrum formanni í ungliðahreyfinu Róttækra hafa flokkarnir reynt að auka áhuga ungs fólks en það hafi lítinn árangur borið. Enda virðist sem flokkarnir séu ekki tilbúnir til að minnka formlegheitin í starfi sínu til að laða að þá sem telja þau fráhrindandi. Stjórnmálasérfræð- ingur sem rætt er við í greininni telur að ungliðahreyfingar danskra stjórnmálaflokka séu að þróast frá því að vera hópur ungs áhugafólks um stjórnmál yfir í hóp þeirra sem ætla sér að starfa sem stjórnmála- menn í framtíðinni. Sama fólkið í mismunandi flokkum Mótmæli í Kaupmannahöfn Litlar líkur eru á að stjórnmálamenn framtíðarinnar komi úr hópi mótmælenda. ungliðar eru með hefðbundnari gildi en almenningur og aðeins eitt prósent ungra dana tilheyra stjórnmálaflokki. Spreyjaði kónginn Svissneskur maður á sextugsaldri hef- ur játað sök fyrir taílenskum rétti, að hafa viðhaft ærumeiðingar í garð kon- ungsins Bhumibols Adulyadej. Oliver Jufer var handtekinn í desem- ber eftir að hafa spreyjað nokkrar myndir af kónginum á vegg. Lögfræðingur Jufers segir að hámarks- refsing fyrir þær sakir sem hann er ákærður fyrir sé 75 ára fangelsi en hann má búast við að lágmarki sjö og hálfs árs fangavist. Heim með nakta sendiherrann Ísrael ætlar að skipta út sendiherra sínum í El Sal- vador eftir að lögreglumenn fundu hann nakinn og drukkinn á götunni. Sendiherrann var þar að auki búinn að hætti bindikynlífs, bundinn á höndum, með gúmmíkúlu upp í sér. Þegar leyst var frá munn- inum gat hann þó sagt skýrt til nafns og embættis. Þetta er mesta hneykslismál sem ísraelska utanrík- isþjónustan hefur lent í í 60 ára sögu landsins. Súdansstjórn ásökuð um mannréttindabrot Rannsóknarnefnd mannréttinda á vegum Sameinuðu þjóðanna ásakar Súdansstjórn um að skipuleggja og taka þátt í grófum mannréttinda- brotum í Darfur. Nefndin ákallaði þjóðir heims að bregðast skjótt við til að vernda mannréttindi í héraðinu. Í skýrslu nefndarinnar er staðan sögð einkennast af grófum og kerfisbundn- um mannréttindabrotum og alvarleg- um brotum á alþjóðlegum mannrétt- indalögum. Handtaka leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Sim- babve þykir vísbending um örvæntingu Mugabes forseta. Stjórnmálaskýrendur segja að andstaða við forsetann fari vaxandi innan hans eigin flokks og þar sé helstu andstæðinga hans að finna. Sjálfur er Mugabe þó ekki á því að gefast upp heldur vill hann tryggja sér forsetaembættið til ársins 2014. kjörtímabilsins ber merki um. Gu- ardian hefur eftir stjórnmálasér- fræðingi í landinu að helstu and- stæðinga forsetans sé nú að finna innan Zanu-flokksins. Enda hafi hann nú misst tengslin við flokks- menn sína á sama hátt og gerst hafi með tengslin við aðra landsmenn. Hann segir margt líkt með ástand- inu í Simbabve nú og í Kóngó þegar stjórnartíð Mobutu var við það að ljúka. Efnahagurinn í molum Ein helsta ástæðan fyrir aukinni andstöðu við Mugabe er ástand efnahagsmála landsins. Hvergi í heiminum er verðbólga jafn há en hún mælist nú rúm sautján hundruð prósent. Samkvæmt frétt The Times hafa eldsneytisbirgðir bensínstöðva horfið síðustu miss- eri vegna orðróms um að smásal- ar verði skyldaðir til að selja bens- ínlítrann á sem samsvarar einni og hálfri íslenskri krónu. En þrjátíu- falt hærra verð fæst fyrir lítrann á svörtum markaði í landinu. Slæmt efnahagsástand má rekja til hruns í landbúnaðarframleiðslu landsins eftir að hvítir bændur voru hraktir af jörðum sínum og land- laust svart fólk tók við þeim. Fram- leiðslan minnkaði gríðarlega í kjöl- farið sem hafði mjög slæm áhrif á efnahaginn sem var og er mjög háður landbúnaði. Margir íbúar landsins treysta því á matargjaf- ir og hundruð þúsunda hafa flú- ið land. Ríkisstjórn landsins tekur ekki undir gagnrýni um að breyt- ingar á landbúnaðarkerfi landsins hafi leikið efnahaginn svona grátt. Kenna þeir langvarandi þurrk- um meðal annars um. Eins hef- ur Mugabe sakað Breta og Banda- menn þeirra um að hafa reynt að rústa efnhag landins í hefndarskyni fyrir þær breytingar sem gerðar voru á eignarhaldi landbúnarðar- jarða. kristjan@dv.is Átök stjórnar og stjórnarandstöðu n Zanu-flokkurinn undir stjórn mugabe vann 78 af 120 þingsætum í kosningunum árið 2005. Framkvæmd kosninganna hefur verið gagnrýnd. n Óflokksbundnir stuðningsmenn forsetans fengu þrjátíu sæti. n amnesty international skýrði frá því fyrir kosningar að fjöldi stuðningsmanna stjórnarandstöð- unnar hafi verið áreittir og þeim ógnað. Eins hafi dreifing matvæla verið aukin rétt fyrir kosningar til auka vinsældir stjórnarinnar. n Eftir kosningar urðu stuðnings- menn stjórnarandstöðunnar fyrir líkamsárásum og eignir þeirra skemmdar. HEimiLd: amnEsty intErnationaL og tHE timEs Sækist eftir endurkjöri robert mugabe sækist eftir endurkjöri á næsta ári. gangi það eftir gæti hann verið forseti til 2014. Handtekinn Einn af helstu leiðtogum stjórnarandstöðunnar var handtekinn á sunnudag. Kosningar Langar biðraðir mynduðust víða þegar simbabvebúar kusu til þings fyrir tveimur árum. margir settu upp regnhlífar til að verjast regninu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.