Læknablaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ
87
voru 28, það er 23 karlar og 5 konur. Börn voru
aðeins tvö og bæði eins árs. Meðalaldur var 52 ár.
Elsti sjúklingurinn var 81 árs. Að frádregnum
börnum var meðalaldur 56 ár.
í helmingi tilfella var um fall að ræða.
Umferðarslys voru mjög fá, eða aðeins fjögur.
Aðeins níu sjúklingar (32%) voru með
höfuðkúpubrot. Innkýld brot voru engin og aðrir
áverkar engir. Aðeins fáir virtust hafa misst
meðvitund við slysið en erfitt að fá um það
áreiðanlegar upplýsingar. Við komu var
meðvitundarástand oftast gott eða sæmilegt og
enginn var í dái eða dauðadái. Sjúklingar komu
yfirleitt seint og aðeins þrír á fyrsta
sólarhringnum, en 23 á næstu 20 dögum (82%).
Komu því 26 (93%) innan þriggja vikna og aðeins
tveir eftir þann tíma.
Heilaæðamyndataka var gerð í öllum tilfellum
nema einu. Það var kornabarn, sem meðhöndlað
var með ástungum (subdural). Aðgerð var gerð á
öllum sjúklingum (ástunga í einu tilfelli). Á fyrsta
sólarhringnum eftir komu voru gerðar 24
aðgerðir, þar af tvær á fyrstu fjórum
klukkustundunum.
Batahorfur virðast góðar. Fékk 21 sjúklingur
ágætan bata og tveir góðan, samtals 23 (82%).
Fimm fengu lélegan bata en enginn dó.
Hœgfara innanbastsblæðing. Með hægfara
innanbastsblæðingu voru 25 manns, 15 karlar og
10 konur (40%), sem er hæsta hlutfall kvenna
meðal áverkategunda. Ekkert barn var með slíka
blæðingu. Meðalaldur var 58 ár og er það
sjálfsagt þeim undrunarefni sem hafa talið að
þessi sjúkdómur væri fyrst og fremst í »gömlu«
fólki, sem komið væri með heilarýrnun. Yngsti
sjúklingurinn var 16 ára og sá elsti 87 ára. Aðeins
einn sjúklingur var með brot á höfuðkúpu
(innkýlt). Aðrir áverkar voru engir. Sárafáir
höfðu misst meðvitund við slysið og næstum allir
voru við sæmilega eða góða meðvitund við komu.
Eins og nærri má geta komu nær allir eða 23
(92%), eftir að fyrsti sólarhringurinn var liðinn
og 19 af þessum 25 (76%) eftir meira en þrjár
vikur.
Heilaæðamyndataka var gerð á öllum sjúklingum
og aðgerð var einnig gerð á þeim öllum.
Batahorfur eru mjög góðar. Allir nema tveir
hlutu ágætan eða góðan bata (92%), einn lélegan
og einn dó. Sá lagðist upphaflega inn með útbreitt
heilamar. Aðgerð var gerð 17 dögum síðar vegna
hægfara innanbastsblæðingar.
Staðbundið heilamar og/eða blœðing í heila. í
þessum hópi voru 68 sjúklingar, 54 karlar og 14
konur. Börn voru allmörg, eða 10 (15%).
Algengustu orsakir voru umferðarslys og fall.
Höfuðkúpubrot voru 59, þar af 29 sinnum
innkýld, eða í nær helmingi tilfella. í þessum hópi
voru nær allir skotáverkar i könnuninni (12 af
13), en einn sjúklingur með skotáverka hlaut ekki
alvarlega heilaáverka og ekki höfuðkúpubrot,
þótt hann legðist inn á gjörgæsludeild. Aðrir
áverkar, til viðbótar höfuðáverkunum, voru í 29
tilfellum (43%). Meirihluti sjúklinga hafði misst
meðvitund. Við komu voru 18 sjúklingar í dái eða
dauðadái (26%) en 50 í betra
meðvitundarástandi. Innan 24 klukkustunda
komu 55 sjúklingar (81%), þar af 37 á fyrsta
klukkutímanum.
Heilaæðamyndataka var gerð á 35 sjúklingum og
aðgerðir á 47, 24 eftir æðamyndatöku og 23 án
slíkrar rannsóknar. Leiddu 11 æðamyndatökur
þannig ekki til aðgerðar. Gert var við 23 innkýld
brot án æðamyndatöku. Engin aðgerð var gerð á
21 sjúklingi. Á 34 sjúklingum var aðgerðin gerð
innan sólarhrings, þar af 23 innan 24
klukkustunda.
Batahorfur eru sæmilegar. Náðu 40 sjúklingar
(59%) ágætum eða góðum bata, en 10 lélegum
(15%). Átján sjúklingar dóu. Innkýld brot í
þessum 68 manna hópi voru 29, þar í innifaldir 12
skotáverkar, eins og áður segir. Lokaðir áverkar
voru því 39. Voru 30 þeirra með höfuðkúpubrot
(sprungu). Tuttugu og þrír af þeim náðu ágætum
eða góðum bata (59%), 6 lélegum og 10 dóu. Um
afleiðingar skotáverka hefur áður verið rætt (4).
Útbreitt heilamar. Með útbreiddu heilamari
(diffuse brain injury) er átt við það sem áður var
kallað heilastofnsáverki, en áverkinn er
útbreiddur í heilanum (diffuse axional lesion)
nema þegar um beina afleiðingu af þrýstingi er að
ræða (9, 13-17). Þetta voru 32 sjúklingar, þar af
12 börn (38%). Umferðarslys voru hlutfallslega
óvenju mörg, en þau voru 26 (81%). Aðeins fjórir
höfðu dottið. Nítján voru með höfuðkúpubrot,
þar af eitt innkýlt. Aðrir áverkar voru
hlutfallslega oft, í 21 skipti (66%) og var það hæst
hlutfall slíka áverka I könnuninni. Allir nema sjö
höfðu misst meðvitund við slysið. Við komu voru
23 sjúklingar (72%) í dái eða dauðadái en aðrir í
betra ástandi.
Innan 24 klukkustunda komu 27, þar af 24 innan
fjögurra klukkustunda. í 21 tilfelli var gerð
æðamyndataka, en aðgerð aðeins á sex