Vesturland - 26.09.2013, Qupperneq 6
6 26. september 2013
Bifröst í alþjóðlegu samstarfsverkefni
sem nefnist „Law Without Walls“
Háskólinn á Bifröst tekur þátt í alþjóðlegu samstarfsverk-efni sem nefnist „Law Wit-
hout Walls. “ Margir virtustu háskólar
heims taka þátt í þessu alþjóðlega sam-
starfsverkefni. Þar má nefna lagadeildir
Harvard, Stanford, New York Uni-
versity, Fordham, IE Business School,
University College London, University
of Sydney og Peking University. Ver-
kefnið er skipulagt af lagadeild Uni-
versity of Miami. Aðeins 21 háskóli
hefur fengið þátttökurétt.
Verkefnið er metnaðarfullt sam-
starfsverkefni bestu lagadeilda í
heimi. Markmið þess er að bregðast
við breyttri stöðu lögfræðinga á at-
vinnumarkaði og umbylta þekktum að-
ferðum við lögfræðikennslu. Verkefnið
miðar að því að laganemar fái víðari
sýn á fræðin og nýti menntun sína í
auknum mæli til nýsköpunar. Þátttak-
endur vinna saman í litlum hópum að
þróunarverkefnum á sviði lögfræði
og viðskipta. Hópurinn fundar viku-
lega á netinu þar sem notast er við
Google+ og Adobe Connect. Þá eru
sóttir vinnufundir tvisvar á ári bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum. Umsjónar-
maður verkefnisins hjá Háskólanum á
Bifröst er Helga Kristín Auðunsdóttir,
sviðsstjóri lögfræðisviðs.
Stefna Bifrastar
framsækin
Helga Kristín Auðunsdóttir sviðsstjóri
lögfræðisviðs hefur þetta að segja um
samstarfið: „Við fögnum því að fá að
taka þátt í þessu verkefni,“ segir Helga
Kristín Auðunsdóttir. „Bifröst er eini
háskólinn á Íslandi sem kennir við-
skiptalögfræði og það er ánægjulegt að
margar virtustu lagadeildir heims skuli
horfa í sömu átt með þátttöku sinni í
. . LawWithoutWalls. “ Það staðfestir
að stefna Bifrastar hefur verið fram-
sækin og þjónar bæði nemendum og
atvinnulífi. „ Vilhjálmur Egilsson rektor
segist spenntur fyrir þessu samstarfi.
Verkefnið LawWithoutWalls gefi nem-
endum tækifæri til skerpa framtíðar-
sýnina og nýta betur þá möguleika
sem viðskiptalaganám bjóði upp á. Þá
er alþjóðasamstarf af þessu tagi mik-
ilvægt fyrir Háskólann á Bifröst til að
þróa kennsluhætti og standa áfram í
fremstu röð.
Lögfræðidagur
Lögfræðidagur Háskólans á Bifröst
var haldinn föstudaginn 6. september
sl. á Bifröst þar sem saman komu nú-
verandi og útskrifaðir nemendur úr
viðskiptalögfræði ásamt kennurum á
lögfræðisviði á Bifröst. Dagskráin var
með glæsilegasta móti, þar sem fræðileg
erindi voru í bland við hugarflugsfundi
um námið og tengsl eftir útskrift. Þau
sem héldu erindi voru m. a. Einar Karl
Hallvarðsson Ríkislögmaður og dós-
ent við Háskólann á Bifröst, Þorbjörg
Inga Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður og
stundakennari á Bifröst ásamt Runólfi
Ágústssyni fyrrverandi rektor.
Það kom skýrt fram á fundinum að
viðskiptalögfræðin sem námsgrein
hefur sannað sig á þeim 12 árum sem
boðið hefur verið uppá það nám á Bif-
röst. Viðskiptalögfræðingar útskrifaðir
frá skólanum starfa víða í atvinnulífinu
og sinna fjölbreyttum störfum. Voru
þátttakendur sammála um að sú blanda
af lögfræðifögum og viðskiptafögum
sé ákjósanleg sérhæfing í störfum lög-
fræðinga í dag. Þær kennsluaðferðir
sem viðhafðar eru á Bifröst eru á
margan hátt óhefðbundnar og ólíkar
kennsluháttum í öðrum háskólum
hérlendis.
Mikil samstaða var í hópnum um
gæði námsins og hversu vel kennslu-
aðferðirnar nýtist við störf lögfræðinga
þegar út á vinnumarkaðinn er komið.
Þá var einróma álit þátttakenda að halda
í þá sérstöðu sem viðskiptalögfræðin
á Bifröst hefur skapað sér og bjóða
þannig uppá annað lögfræðinám en
hið hefðbundna. Háskólinn á Bifröst er
eini háskólinn á Íslandi sem býður upp
á þetta nám hérlendis en margir skólar
erlendis bjóða uppá svipað nám. Þá má
geta þess að Háskólinn á Bifröst var
valinn í alþjóðlegan hóp háskóla til að
bregðast við breyttri stöðu lögfræðinga
á atvinnumarkaði í heiminum.
Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri
Auðlindadeild þátttakandi í Vís-
indavöku RANNÍS í Háskólabíói
Vísindavaka er árlegur við-burður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vís-
indamenn sem stunda rannsóknir
í hinum ýmsu vísindagreinum og
kynnast viðfangsefnum þeirra.
Öll fjölskyldan finnur eitthvað við
sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er
haldin samtímis um alla Evrópu
síðasta föstudag í september til
heiðurs evrópskum vísindamönnum.
Í aðdraganda Vísindavöku er hellt
upp á nokkur Vísindakaffi. Rannís
stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi
en hlutverk Rannís er að treysta
stoðir íslensks þekkingarsamfélags
með stuðningi við rannsóknir, ný-
sköpun, menntun og menningu.
Rannís er náinn samstarfsaðili Vís-
inda- og tækniráðs og veitir fag-
lega aðstoð við framkvæmd stefnu
þess. Rannís stuðlar að þróun
þekkingarsamfélagsins með rekstri
samkeppnissjóða, aðstoð og kynn-
ingu á alþjóðlegum sóknarfærum og
samstarfsmöguleikum auk þess að að
greina og kynna áhrif rannsókna, ný-
sköpunar, menntunar og menningar
á þjóðarhag.
Vsindavaka 2013 verður haldin á
morgun, föstudaginn 27. september í
Háskólabíói og hefst kl. 17.00. Albína
Hulda Pálsdóttir, dýrabeinafornleifa-
fræðingur, og Hrannar Smári Hilm-
arson, meistaranemi, verða fulltrúar
Landbúnaðarháskóla Íslands á Vís-
indavöku. Albína mun kynna rann-
sóknir Auðlindadeildar LbhÍ á upp-
runa íslensku húsdýrastofnanna með
fornDNA og dýrabeinafornleifafræði
sem nú er unnið að. Hægt verður
að skoða hauskúpur úr nautgripum,
kindum og hestum og börnin geta
spreytt sig á fornleifauppgreftri.
Hrannar ætlar að einangra erfða-
efni (DNA) úr jarðarberjum. Til
verksins verða notaðir einföld hrá-
efni sem finna má á hverju heimili.
Aðferðin er hættulaus en nokkur
saklaus jarðarber munu fórna sér í
þágu vísindanna. DNA sameindina
er að finna í öllum frumum og er
hún hættulaus. Aðferðin sem er beitt
í þessu tilfelli gerir erfðaefnið, DNA
sameindina, sýnilegt og áþreifanlegt.
Einangrun erfðaefnis er mikilvægt
ferli og fyrsta skrefið í öllum sam-
eindaerfðarannsóknum.
Helga Kristín Auðunsdóttir, sviðsstjóri
lögfræðisviðs.
Þórdís sif sigurðardóttir, Unnar steinn bjarndal, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Ástráður Haraldsson og einar Karl Hallvarðs-
son eru allt kennarar á lögfræðisviði Háskólans á bifröst.
Gestir geta kynnt sér hauskúpur
íslenskra húsdýra og spreytt sig í
fornleifauppgreftri. myndefnið eru
hundshauskúpur frá fornleifarann-
sókninni á Alþingisreit.
Mynd: Brynja Guðmundsdóttir
Gistihús Keavíkur (Bed&Breakfast Keavik Airport)
Valhallarbraut 761 - 235 Reykjanesbæ
Sími 426 5000 - gistihus@internet.is
Frítt - Geymsla á bíl
Frítt - Ferðir til og frá ugvelli
Frítt - Þráðlaust internet
Stór og þægileg herbergi
Morgunmatur innifalinn
Gervihnattasjónvarp
Baðherbergi í öllum herbergjum
Ódýr bílaþrif
frá 1 til 6 manna herbergi
Ertu að fara til útlanda?
Afhverju ekki að losna við stress og læti og gista hjá okkur nóttina fyrir eða eftir
ug? Við geymum bílinn fyrir þig frítt, skutlum þér á ugvöllinn og sækjum þig
aftur. Oft er það ódýrara en bílageymslugjaldið á Leifsstöð.
Hafðu endilega samband...
www.bbkeavik.com
Auglýsingasíminn er 578 1190 - Netfang: auglysingar@fotspor.is.