Vesturland - 26.09.2013, Qupperneq 10
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Legur og drifbúnaður
Verkfæri og öryggisvörurLoft- og vökvakerfi
10 26. september 2013
Staðarstaðaprestakall:
Almenn prestskosning verður
laugardaginn 2. nóvember nk.
Almenn prestskosning verður í Staðarstaðarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi
sem auglýst var til umsóknar nú ný-
lega. Kosið verður 2. nóvember nk.
og er kosningin bindandi. Sóknar-
börn í prestakallinu hafa farið fram
á almenna prestskosningu í stað þess
að valnefnd velji sóknarprest. Slíkt er
leyfilegt ef þriðjungur atkvæðisbærra
sóknarbarna í prestakallinu fer fram
á það. Rúmlega þriðjungur sóknar-
barna óskaði eftir almennri kosningu
með söfnun undirskrifta, eða um 100
manns en um 300 manns hafa kosn-
ingarétt. Með kosningu er vísað til
fyrstu málsgreinar 15. greinar starfs-
reglna um val og veitningu prests-
embætta, en ákvæðið hljóðar svo:
„Óski minnst þriðjungur atkvæðis-
bærra sóknarbarna í prestakalli þess,
að almenn prestskosning fari fram er
skylt að verða við því. Skrifleg ósk um
kosningu skal hafa borist biskupi eigi
síðar en að hálfum mánuði liðnum frá
þeim degi er kallið var auglýst laust
til umsóknar. „ Nú hefur undirskrifta-
listi sóknarbarna verið yfirfarinn og
staðfestur og hefur Biskupsstofa því
ákveðið að að kosning fari fram.
Staðarstaðarprestakall var auglýst
laust til umsóknar 28. ágúst síðast-
liðinn og rennur umsóknarfrestur út
í dag,26. september. Sóknir þær sem
mynda prestakallið eru Búðasókn, Fá-
skrúðarbakkasókn, Hellnasókn, Kol-
beinsstaðasókn, Staðarhraunssókn og
Staðarstaðarsókn.
Kristján Þórðarson á Öldkeldu
er formaður sóknarnefndar. Hann
segir að með undirskriftarsöfnunni
hafi eflaust margir hugsað til þess
að með því ættu yngri guðfræðingar
eða prestar meiri möguleiki á að
verða valdir, en valnefnd, sem þegar
var búið að skipa, taki meira tillit
til starfsreynslu og aldurs umsækj-
enda, sem ekki er raunar óraunhæft.
Þrír síðustu prestar sem setið hafa
á Staðarstað hafi allir verið kosnir í
almennum kosningum, ekki hefur
komið til kasta valnefndar og síðan
biskups. Sr. Guðjón Skarphéðinsson,
núverandi sóknarprestur, lætur af
embætti 1. desember nk. þegar nýr
prestur tekur við brauðinu.
Brautskráning nemenda frá Háskólanum á Bifröst:
Nemendur taka að sér að gera
rekstraráætlanir fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki
Þann 14. september sl. voru voru tæplega 60 nemendur útskrif-aðir frá Háskólanum á Bifröst.
Útskrifað var frá frumgreinadeild,
grunnnámi og meistaranámi úr öllum
deildum skólans. Þetta var fyrsta
brautskráning Vilhjálms Egilssonar
rektors. Í ræðu sinni talaði hann um
að útskriftarnemendur myndu auka
hróður Háskólans á Bifröst með
verkum sínum og að þær ólíku leiðir
sem þeir færu myndu liggja til meiri
þroska og spennandi viðfangsefna.
Hann talaði um að Háskólinn á Bifröst
stæði á gömlum og traustum grunni
sem hefði alltaf átt erindi í íslensku sam-
félagi. Hlutverk þeirra sem nú starfa
í skólanum sem og nemenda væri að
skrifa söguna áfram, sögu sem byggð
væri á því sem þau hefðu fengið í arf
og metnaður væri fyrir því að þeirra
sögukafli segði frá nýjum framförum
og aukinni velgengni skólans.
Lífið á Bifröst á fleygiferð
Vilhjálmur sagði að lífið á Bifröst væri
sannarlega á fleygiferð. Skólinn sjálfur
væri að breytast og mikið af nýju fólki
hefði komið til skólans meðan aðrir
hefðu haldið á nýjan vettvang. Sjálfur
hefði hann komið síðastliðið sumar
og tók við hlutverkinu af Bryndísi
Hlöðversdóttur sem hafði leitt skólann
með miklum sóma á erfiðum tímum.
En það er ekki bara hann sjálfur sem er
í nýju hlutverki. Anna Elísabet Ólafs-
dóttir hefur tekið við sem aðstoðar-
rektor og breytingar eru í öllum svið-
stjórahlutverkunum. Sagði rektor að
skólinn væri líka að fá nýjan yfirmann
fyrir rekstur og fjármál auk töluverðrar
endurnýjunar í kennaraliðinu.
Nemendur taka að sér að
gera rekstraráætlanir fyrir
lítil og meðalstór fyrirtæki
Vilhjálmur sagði frá því að skólinn væri
að vinna saman með sveitarfélögum á
Vesturlandi að Sóknaráætlun. Verkefni
Bifrastar í því ferli væri að auka tengsl
atvinnulífs og skóla og að Háskólinn á
Bifröst væri að fara af stað með sérstök
nemendaverkefni þar sem nemendur
taka að sér að gera rekstraráætlanir fyrir
lítil og meðalstór fyrirtæki. Þetta verk-
efni kemur til með að skapa mikil tæki-
færi fyrir nemendur og nýja sérstöðu
fyrir Háskólann á Bifröst ef vel tekst til.
Nám í matvælarekstrar-
fræði og tækifæri í sí-
menntun
Rektor sagði að skólinn stefndi á að
hefja nám í matvælarekstrarfræði næsta
haust þar sem að bætt væri inn í við-
skiptafræðina þekkingu í matvælafræði
og tækni. Þá talaði hann einnig um
að Háskólinn á Bifröst væri umsjónar-
aðili með rekstri tilraunaverkefnis um
hækkað menntunarstig í Norðvestur-
kjördæmi sem vonandi mun marka
spor í símenntunarstarfið á Bifröst.
Rektor sagðist hafa mikinn áhuga á
að skólinn settir upp sérstaka sýningu
um íslenskt atvinnulíf. Hugmyndin væri
að kynna nútíma atvinnulíf á Íslandi,
nýta húsnæði skólans fyrir sýninguna
og laða gesti og gangandi inn á staðinn.
Sagði hann að nemendur fái hlutverk
við að búa til efnið á sýningunni og
að hún verði stór þáttur í kynningu og
markaðssetningu skólans. Mun fleiri
mál eru í gangi sem eiga að gera skólann
að ennþá betri kosti fyrir nemendur.
Sagði Vilhjálmur að þau sem væru nú
í forystusveit skólans ætluðu sér hvergi
að slaka á í metnaði sínum fyrir skól-
ans hönd. Þau gerðu miklar kröfur til
þeirra sjálfra og vissu að á þeim byggir
góður árangur í skólastarfinu.
Útskrift frá bifröst 14. september sl.
Kirkjan á staðarstað. Í kaþólskum sið var á staðarstað kirkja helguð maríu
guðsmóður. Núverandi kirkja er steinkirkja, reist á árunum 1942-1945, með
forkirkju og turni og tekur um 100 manns í sæti. Líklegast er staðastaður
einn sögufrægasti bær á snæfellsnesi. Þar er t. d. talið að Ari fróði, faðir
íslenskrar sagnaritunar, hafi búið og er þar minnisvarði um hann eftir ragnar
Kjartansson myndhöggvara og var minnisvarðinn afhjúpaður þann 22.
ágúst 1981. Niðjar Ara áttu heima á staðarstað og höfðu þar mannaforráð.
Horft til austurs frá Fróðárheiði yfir hluta prestakallsins.
Horft að altarinu í staðarstaðakirkju.